Fréttablaðið - 03.03.2007, Page 36
Vafalaust hafa aðdáendur
Hondunnar beðið spenntir eftir
því að fá að berja hinn nýja
CR-V augum, en fáir bílar hafa
notið jafn mikilla vinsælda í
jepplingaflokknum og fyrir-
rennarinn.
Nú er Honda CR-V búinn að fara í
það sem við getum kallað „Extreme
Makeover“ eða algera umbreyt-
ingu. Það er búið að gerbreyta
útliti bílsins, skipta um vél og
hlaða hann svo mörgum fídusum
að varla er hægt að kalla þetta
sama bílinn lengur. Þó er ekki
hægt að segja að umbreytingin
hafi verið eitthvað litla ljóta andar-
ungaævintýri því gamla útlitið
hafði einnig sinn sjarma.
Með nýju útliti eru framleið-
endur Honda meðal annars að
keppa við fleiri framleiðendur.
Toyota RAV4 og Nissan X-Trail
voru fram að þessu samkeppnis-
aðilar en framleiðendur Hondunn-
ar tóku stefnu á stórt og stilla sér
núna nær BMW X3 sem og Audi
Q5 og VW Tiguan sem eru væntan-
legir á markað. Til þess að höfða
til aðdáenda þýska stálsins hafa
hönnuðir hins nýja CR-V meðal
annars stolið skemmtilegum hönn-
unaratriðum og smellt á Honduna.
Eitt af því sem er mest áberandi í
þessu samhengi er krómröndin
fína sem liggur í kringum allar
hliðarrúður og býr þannig til eina
stóra, straumlínulagaða og þýsk-
ættaða rúðu.
Frampartur bílsins er einskon-
ar kokteill af franskri og japanskri
hönnun og sker sig þannig frá
sambærilegum bílum. Í raun er
þetta nýstárlega útlit fremur
skemmtilegt og gefur bílnum
ákveðinn léttleika en um leið hefur
hann einkenni stöðugleika.
Straumlínulögun bílsins og
mýkri línur sjá fyrir minni loft-
mótstöðu og vindhljóðum. Það
gerir farþegarýmið hljóðlátara en
það er einn af kostum þessa bíls að
hann er sérlega hljóðlátur. Að
innan er bíllinn einstaklega skyn-
samlega hannaður þegar kemur
að þörfum fjölskyldufólks. Undir
speglinum er víðsjárspegill sem
gerir ökumanni kleift að fylgjast
með því hvað gengur á í aftursæt-
inu sem kemur sér eflaust vel.
Þegar það kemur að því að lýsa
því hvernig það er að aka þessum
bíl verð ég að viðurkenna að ég
bjóst við meiri lipurð og léttleika.
Útlit hans og einkenni gefa í skyn
að þarna sé á ferðinni lipur skepna
sem stekkur léttilega um og er
ekki lengi að spretta úr spori, en
Honda CR-V býður þó ekki upp á
þetta. Bíllinn er sannarlega hlýð-
inn og samviskusamur, en það er
lítið um fimleika í aksturseigin-
leikum hans ... sem mörgum finnst
kannski bara ágætt?
Ég myndi ætla að nýja Honda
CR-V eigi ekki eftir að bregðast
þeim sem einu sinni hafa kynnst
þessum ágæta bíl. Hann býður
markhópnum það sem markhópur-
inn þarfnast, þægindi, stöðugleika
og fleira sem fjölskyldufólk kann
vel að meta og það gerir hann vel.
Hann sameinar í raun marga þætti
sem eru almennt á víð og dreif í
öðrum bílum, hvort sem um er að
ræða hönnunaratriði eða aðra eig-
inleika og þannig ættu margir að
kunna Honduna vel meta.
Extreme Makeover –
Hondu-útgáfan
SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN
SÆTÚNI 4 • SÍMI 562 6066
SUMARDEKK
HEILSÁRSDEKK
OLÍS SMURSTÖÐ
BÓN OG ÞVOTTUR
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
RAGEYMAÞJÓNUSTA
BREMSUKLOSSAR
PÚSTÞJÓNUSTA
Ökunám í fjarnámi !!!!
Ekill ökuskóli er eini ökuskólinn á landinu sem býður upp
á ökunám í fjarnámi. Þú getur unnið námskeiðin
í tölvunni heima þegar þér hentar.
Skoðaðu þennan frábæra kost á ekill.is
Námskeið sem hægt er að taka nú þegar eru fyrra námskeið
til almennra ökuréttinda (Ö1) og bifhjólanámskeið.
Fleiri námskeið eru væntanleg á næstu mánuðum
Ö2 námskeið / Aukin ökuréttindi / Fyrir lesblinda ofl.
Ekill ökuskóli. Sími 461-7800 www.ekill.is ekill@ekill.is
Rafmagnsdrif til að aka hjólhýsum.
Einnig mögulegt fyrir hestakerrur,
eira.
i sem leggst við dekkið og knýr það áfram,
Stjórnað með fjarstýringu, allt að 6 m. frá.
Tilvalið til að aka á dráttarkúlu, inn á
.
Truma fékk hönnunarverðlaun verkfræðinga
2006 fyrir Euro Mover.
Ekkert streð, láttu
Euro Mover færa til vagninn
HJÓLHÝSA EIGENDUR!
Umboðið, Bílaraf, Auðbrekku 20, s.564 0400
Euro Mover
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
FJAÐRIR OG GORMAR
Í FLESTAR GERÐIR
JEPPA
Japan/U.S.A.