Fréttablaðið - 03.03.2007, Side 76
...á kúpunni
Ef það er röð á mánudagseftirmið-
degi kl. 14.00 í ofsaveðri með 20
metrum á sekúndu, er augljóslega
eitthvert leynivopn í sinnepinu.
Það er fátt sem jafnast á við vænan
alíslenskan skyndibita. Við mælum
með extra gusu af gula kryddinu
yfir bátinn (hver slær hendinni á
móti góðri þriðjakrydds-vímu) og
góðri slettu af Hlöllasósunni.
Nauta- lamba- eða svínakjöt með
heiðvirðu rauðkáli og asíum.
Snilldin ein.
Lóuhreiður er heiðarleg matstofa
sem hentar valkvíðasjúkum mjög
vel því það eru einungis einn til
tveir réttir í boði hvern dag. Á
mánudögum og þriðjudögum er
alltaf fiskur í boði, framreiddur á
klassískan hátt án allra exótískra
stæla. Búlla fyrir menn í hádeginu
sem nenna engu veseni, einstaka
róni situr þarna með stóran bjór,
sólstofan fyrir framan er reyk-
laus, og þjónustustúlkan gengur
um með rjóma og býður gestum
slurk út í súpuna.
Það er eitthvað sérlega viðeigandi
við að hafa skyndibitastaði í Hafn-
arstrætinu: Nonna-biti, Pizza-
King, Purple Onion að ógleymdum
pylsuvagninum á Ingólfstorgi sem
setur tóninn með chili-pylsunum
(pylsa með nautahakki og baun-
um). Gatan þjónar sama tilgangi
fyrir átfíklana og Fifth Avenue í
New York. Þess vegna er Hafnar-
strætið falið leyndarmál á mið-
bæjarsvæðinu. Síðan er einstaka
spúkí bar inn á milli fyrir þá sem
eru fyrir að fá sér í tána milli
rétta.
Fyrir þá sem taka ekki áhættuna
er American Style auðvitað hand-
an við hornið. Frí áfylling á gos
skal aldrei, undir neinum kring-
umstæðum, vanmetin. Sérlega
gott fyrir stórar fjölskyldur því
krakkaskríllinn drekkur svo
mikið.
...á fyrsta stefnumóti
Veitingastaður fyrir fyrsta stefnu-
mótið verður að vera hress og full-
bókaður því það er fátt jafn vand-
ræðalegt og að heyra nöldrið í
kokkinum inni í eldhúsi á tómu
veitingahúsi. Fyrsta stefnumótið
má vera pínu neyðarlegt og er í
hugum sumra dæmt til að mistak-
ast. Á Domo má að minnsta kosti
hugga sig við það að maturinn hafi
verið stórfenglegur þó að sögu-
skoðun stefnumótsins fái ef til vill
seint þann dóm. Og svo virkaði
hann líka ekki sem verst fyrir
Jude Law og Höllu Vilhjálmsdótt-
ur.
Það hjálpar ekki alltaf að vera með
góðærisstæla á fyrsta stefnumóti.
Því er oft betra að velja látlausan
stað með gómsætum mat í stað
þess að torfleggja stemninguna
með yfirdráttar-innréttuðum og
humarbrösuðum flottheitum. Í
kjallara ostabúðarinnar eru hollar
og góðar súpur, salöt, fiskur og
fleira í boði í hádeginu og klassinn
kemur til skjalanna með framandi
ostum og góðu næði.
Hafi forleikurinn átt sér stað á
einkamal.is, eða vinkonur eða vinir
farið með þig eins og hvern annan
söluvarning á skiptimarkaði
blindra stefnumóta skaltu gera ráð
fyrir barmafullum vandræðaleg-
heitum í tómum rauðvínsglösum.
Farðu því þangað sem athyglinni
má dreifa á löngum matseðli, þjón-
arnir útlista hráefni máltíðanna
eins og samviskusamir parketsölu-
menn og því nóg annað hægt að
gera en að þurfa að halda uppi
samræðum.
Að deila er ást ríma þeir í amer-
ísku útgáfunni af línunni og á Aust-
ur-Indíafélaginu er hægt að
spreyta sig á léttu umferðarprófi í
rómantík en þar geta matargestir
deilt mat af sameiginlegum fötum
og sýnt listir sínar í að skipta hrís-
grjónum og öðru gúmmelaði á
milli diskanna. Birtan er stórkost-
lega útlitsvæn og það langt á milli
borða að hægt er að fara fljótlega
á trúnó. Biður maður um meira?
...átt plássfreka og
hávaðasama
stórfjölskyldu
Öskjuhlíðin, með sinni ylströnd,
kanínunýlendum og skógarþykkni
er orðin að vin fyrir reykvískar
fjölskyldur. Uppi á hæðinni gnæf-
ir svo risavaxið tívolítæki í líki
veitingahúss og þar við borð sitja
börnin sem steinrunnin á meðan
þau snúast í gegnum hvern réttinn
á fætur öðrum. Og foreldrarnir
njóta friðarstundar yfir dýrindis
máltíð.
Staðir með fría áfyllingu hafa
vinninginn þegar um stórar fjöl-
skyldur er að ræða og þessi húlíó-
staður í Faxafeni stendur American
Style hvergi að baki hvað það varð-
ar. Þar inni vinna suðrænir menn
sem lífsleiðar mæðurnar geta
horft á meðan fjölskyldan slafrar í
sig matinn. Umgjörð þessa mex-
íkóska skyndibita er öll úr plasti,
meira að segja glösin svo að eng-
inn tekur kast á börnin og allir
fara glaðir heim.
Hvað geturðu sagt þegar þér er
skipað að taka U-beygju á 80 kíló-
metra hraða á Miklubraut og í bak-
sýnisspeglinum mætirðu mænandi
augum um leið og þau skríkja
barnabox. Ætlarðu að benda þeim
á aðframkominn Ameríkana sem
næstum dó af því að éta borgar-
ana? Hvað vegur það á móti barna-
leikfangi, ostborgara og frönsk-
um. Það þarf hvort sem er að kippa
í vinsældatauminn öðru hverju.
...stórlax á
viðskiptafundi
Hafir þú spurnir af því að fundar-
menn verði það smartir í tauinu að
hætt er að við að þeir tóni ekki við
innréttingarnar skaltu ekki taka
neina áhættu og fara með liðið á
Silfur. Þar er ekki svo auðvelt að
toppa silfurlitað barokkveggfóðr-
ið eða ljósakrónurnar úr Saltfélag-
inu.
Matur í boxi er töff, hvernig sem á
það er litið. Og sjávarréttir eru
góð og prótínrík máltíð. Töff og
prótín. Er það ekki það sem málið
snýst um þegar þú ert stórlax?
Séu fundarmenn viðskiptafundar-
ins ekki úr nýríku deildinni þýðir
ekkert að taka þá með á gamalt-út
og allt-nýtt-inn uppastað. Gömlum
peningi líður best í klassísku og
eilítið þungu umhverfi þar sem
dökk og massíf leðurhúsgögn og
málverk meistaranna umlykja þig
og færa þér innri ró. Einnig gott
fyrir stórar og miklar ákvarðanir.
...í nostalgísku skapi
Hornið er eins og að fara í gamlan
og þægilegan inniskó. Pöntunin
getur ekki týnst, auðvelt er að
teygja sig í þjóninn eða jafnvel
kokkinn og enginn þarna inni hefur
þörf fyrir að koma þér á óvart.
Maður er ekki alltaf í skapi fyrir
óvæntar uppákomur eða þjóna
sem henda í mann litlum smökk-
unartilraunum fyrir aðalréttinn.
Pítsa með pepperóní, miðlungs-
rauðvín og ekkert fuss. Ekkert
stórkostlegt, en traust og það er
það sem maður vill þegar maður
er í nostalgísku skapi.
Einhverjir muna eflaust eftir sér
sitjandi í askarlaga umgjörð við
Laugaveg þegar Askur var þar. Í
dag er hann fluttur á Suðurlands-
braut og þótt hin dásamlegu borð
séu því miður á bak og burt er
hægt að taka hlaðborðið með
trompi með kjarngóðri sunnudags-
máltíð þar sem allt er innifalið, frá
sósum, grænum baunum, brúnuð-
um kartöflum og heila dæminu.
Snilld fyrir svangar fjölskyldur.
Umhverfi Ítalíu er eins og klippt
út úr stúdíóumhverfi lélegrar sápu-
óperu. Myntugrænir og ferskjulit-
aðir tónar níunda áratugarins með
smá klípu af sítrónugulum eru
allsráðandi og gerviblómin flækj-
ast hvert fyrir öðru. Engu að síður
er staðurinn alltaf, og kannski ein-
mitt þess vegna frábær. Þjónustan
sker sig úr og maður getur alltaf
gengið að því vísu að sumt í þess-
um heimi breytist aldrei.
...með
saumaklúbbnum
Sá staður trónir í hásæti sauma-
klúbbsstaða. Staðurinn er hér um
bil reyklaus og þar sitja þær
gjammandi í hreinu lofti. Litli
blómkálsfrauðskammturinn (2
munnbitar) er sérstaklega góður
fyrir þær sem eru í aðhaldsdeild-
inni. Þegar staðurinn opnaði var
mikið hlegið að stælunum með
frönsku kartöflurnar, sem bornar
eru fram í bréfpoka, en að öllu
gríni slepptu þá er maturinn þar
stórkostlegur.
101 er eins og sett Spaugstofunnar.
Þar má sjá erkitýpur þáttarins,
Kára í deCODE, Jón Ásgeir, Ara
Edwald og fleiri hræra í einum
móhító. Augu vinkvennanna
glennast upp og þær jafnvel ná að
þegja í svo sem eina mínútu enda
snarhitna hnakkablöðin við það að
skrá atburðarásina inn á harða
diskinn.
Sérútbúið umhverfi fyrir reykj-
andi saumaklúbba. Þar sitja gjald-
kerar allra landsmanna og reykja
á meðan þær bíða eftir crépes-
pönnukökunum með hrísgrjónun-
um og sinnepssósunni. Minnir á
stemninguna þegar gömlu Sam-
vinnuferðar-Landsýnar dragtirnar
sóluðu sig á Austurvelli þegar vel
viðraði. Þær eru í mat, reykja sína
sígó, drekka sinn kaffibolla og
ekkert múður.
Út að borða hljómar stórkostlega í eyrum flestra. Stjörnukvöldið getur þó
auðveldlega breyst í martröð og ef kviknað hefur í brauðkörfunni áður
en kvöldið er liðið eða fullur saumaklúbbur á næsta boði haldið stefnu-
mótinu í gíslingu þarf greinilega að taka ferlið til endurskoðunar. Júlía
Margrét Alexandersdóttir þræddi veitingastaði borgarinnar og kynnti sér
hvernig hægt er að baktryggja sig með því að velja rétta veitingastaðinn
út frá aðstæðum.
Reykvískar lautarferðir
Snætt úti þegar þú ert...