Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.03.2007, Qupperneq 76

Fréttablaðið - 03.03.2007, Qupperneq 76
...á kúpunni Ef það er röð á mánudagseftirmið- degi kl. 14.00 í ofsaveðri með 20 metrum á sekúndu, er augljóslega eitthvert leynivopn í sinnepinu. Það er fátt sem jafnast á við vænan alíslenskan skyndibita. Við mælum með extra gusu af gula kryddinu yfir bátinn (hver slær hendinni á móti góðri þriðjakrydds-vímu) og góðri slettu af Hlöllasósunni. Nauta- lamba- eða svínakjöt með heiðvirðu rauðkáli og asíum. Snilldin ein. Lóuhreiður er heiðarleg matstofa sem hentar valkvíðasjúkum mjög vel því það eru einungis einn til tveir réttir í boði hvern dag. Á mánudögum og þriðjudögum er alltaf fiskur í boði, framreiddur á klassískan hátt án allra exótískra stæla. Búlla fyrir menn í hádeginu sem nenna engu veseni, einstaka róni situr þarna með stóran bjór, sólstofan fyrir framan er reyk- laus, og þjónustustúlkan gengur um með rjóma og býður gestum slurk út í súpuna. Það er eitthvað sérlega viðeigandi við að hafa skyndibitastaði í Hafn- arstrætinu: Nonna-biti, Pizza- King, Purple Onion að ógleymdum pylsuvagninum á Ingólfstorgi sem setur tóninn með chili-pylsunum (pylsa með nautahakki og baun- um). Gatan þjónar sama tilgangi fyrir átfíklana og Fifth Avenue í New York. Þess vegna er Hafnar- strætið falið leyndarmál á mið- bæjarsvæðinu. Síðan er einstaka spúkí bar inn á milli fyrir þá sem eru fyrir að fá sér í tána milli rétta. Fyrir þá sem taka ekki áhættuna er American Style auðvitað hand- an við hornið. Frí áfylling á gos skal aldrei, undir neinum kring- umstæðum, vanmetin. Sérlega gott fyrir stórar fjölskyldur því krakkaskríllinn drekkur svo mikið. ...á fyrsta stefnumóti Veitingastaður fyrir fyrsta stefnu- mótið verður að vera hress og full- bókaður því það er fátt jafn vand- ræðalegt og að heyra nöldrið í kokkinum inni í eldhúsi á tómu veitingahúsi. Fyrsta stefnumótið má vera pínu neyðarlegt og er í hugum sumra dæmt til að mistak- ast. Á Domo má að minnsta kosti hugga sig við það að maturinn hafi verið stórfenglegur þó að sögu- skoðun stefnumótsins fái ef til vill seint þann dóm. Og svo virkaði hann líka ekki sem verst fyrir Jude Law og Höllu Vilhjálmsdótt- ur. Það hjálpar ekki alltaf að vera með góðærisstæla á fyrsta stefnumóti. Því er oft betra að velja látlausan stað með gómsætum mat í stað þess að torfleggja stemninguna með yfirdráttar-innréttuðum og humarbrösuðum flottheitum. Í kjallara ostabúðarinnar eru hollar og góðar súpur, salöt, fiskur og fleira í boði í hádeginu og klassinn kemur til skjalanna með framandi ostum og góðu næði. Hafi forleikurinn átt sér stað á einkamal.is, eða vinkonur eða vinir farið með þig eins og hvern annan söluvarning á skiptimarkaði blindra stefnumóta skaltu gera ráð fyrir barmafullum vandræðaleg- heitum í tómum rauðvínsglösum. Farðu því þangað sem athyglinni má dreifa á löngum matseðli, þjón- arnir útlista hráefni máltíðanna eins og samviskusamir parketsölu- menn og því nóg annað hægt að gera en að þurfa að halda uppi samræðum. Að deila er ást ríma þeir í amer- ísku útgáfunni af línunni og á Aust- ur-Indíafélaginu er hægt að spreyta sig á léttu umferðarprófi í rómantík en þar geta matargestir deilt mat af sameiginlegum fötum og sýnt listir sínar í að skipta hrís- grjónum og öðru gúmmelaði á milli diskanna. Birtan er stórkost- lega útlitsvæn og það langt á milli borða að hægt er að fara fljótlega á trúnó. Biður maður um meira? ...átt plássfreka og hávaðasama stórfjölskyldu Öskjuhlíðin, með sinni ylströnd, kanínunýlendum og skógarþykkni er orðin að vin fyrir reykvískar fjölskyldur. Uppi á hæðinni gnæf- ir svo risavaxið tívolítæki í líki veitingahúss og þar við borð sitja börnin sem steinrunnin á meðan þau snúast í gegnum hvern réttinn á fætur öðrum. Og foreldrarnir njóta friðarstundar yfir dýrindis máltíð. Staðir með fría áfyllingu hafa vinninginn þegar um stórar fjöl- skyldur er að ræða og þessi húlíó- staður í Faxafeni stendur American Style hvergi að baki hvað það varð- ar. Þar inni vinna suðrænir menn sem lífsleiðar mæðurnar geta horft á meðan fjölskyldan slafrar í sig matinn. Umgjörð þessa mex- íkóska skyndibita er öll úr plasti, meira að segja glösin svo að eng- inn tekur kast á börnin og allir fara glaðir heim. Hvað geturðu sagt þegar þér er skipað að taka U-beygju á 80 kíló- metra hraða á Miklubraut og í bak- sýnisspeglinum mætirðu mænandi augum um leið og þau skríkja barnabox. Ætlarðu að benda þeim á aðframkominn Ameríkana sem næstum dó af því að éta borgar- ana? Hvað vegur það á móti barna- leikfangi, ostborgara og frönsk- um. Það þarf hvort sem er að kippa í vinsældatauminn öðru hverju. ...stórlax á viðskiptafundi Hafir þú spurnir af því að fundar- menn verði það smartir í tauinu að hætt er að við að þeir tóni ekki við innréttingarnar skaltu ekki taka neina áhættu og fara með liðið á Silfur. Þar er ekki svo auðvelt að toppa silfurlitað barokkveggfóðr- ið eða ljósakrónurnar úr Saltfélag- inu. Matur í boxi er töff, hvernig sem á það er litið. Og sjávarréttir eru góð og prótínrík máltíð. Töff og prótín. Er það ekki það sem málið snýst um þegar þú ert stórlax? Séu fundarmenn viðskiptafundar- ins ekki úr nýríku deildinni þýðir ekkert að taka þá með á gamalt-út og allt-nýtt-inn uppastað. Gömlum peningi líður best í klassísku og eilítið þungu umhverfi þar sem dökk og massíf leðurhúsgögn og málverk meistaranna umlykja þig og færa þér innri ró. Einnig gott fyrir stórar og miklar ákvarðanir. ...í nostalgísku skapi Hornið er eins og að fara í gamlan og þægilegan inniskó. Pöntunin getur ekki týnst, auðvelt er að teygja sig í þjóninn eða jafnvel kokkinn og enginn þarna inni hefur þörf fyrir að koma þér á óvart. Maður er ekki alltaf í skapi fyrir óvæntar uppákomur eða þjóna sem henda í mann litlum smökk- unartilraunum fyrir aðalréttinn. Pítsa með pepperóní, miðlungs- rauðvín og ekkert fuss. Ekkert stórkostlegt, en traust og það er það sem maður vill þegar maður er í nostalgísku skapi. Einhverjir muna eflaust eftir sér sitjandi í askarlaga umgjörð við Laugaveg þegar Askur var þar. Í dag er hann fluttur á Suðurlands- braut og þótt hin dásamlegu borð séu því miður á bak og burt er hægt að taka hlaðborðið með trompi með kjarngóðri sunnudags- máltíð þar sem allt er innifalið, frá sósum, grænum baunum, brúnuð- um kartöflum og heila dæminu. Snilld fyrir svangar fjölskyldur. Umhverfi Ítalíu er eins og klippt út úr stúdíóumhverfi lélegrar sápu- óperu. Myntugrænir og ferskjulit- aðir tónar níunda áratugarins með smá klípu af sítrónugulum eru allsráðandi og gerviblómin flækj- ast hvert fyrir öðru. Engu að síður er staðurinn alltaf, og kannski ein- mitt þess vegna frábær. Þjónustan sker sig úr og maður getur alltaf gengið að því vísu að sumt í þess- um heimi breytist aldrei. ...með saumaklúbbnum Sá staður trónir í hásæti sauma- klúbbsstaða. Staðurinn er hér um bil reyklaus og þar sitja þær gjammandi í hreinu lofti. Litli blómkálsfrauðskammturinn (2 munnbitar) er sérstaklega góður fyrir þær sem eru í aðhaldsdeild- inni. Þegar staðurinn opnaði var mikið hlegið að stælunum með frönsku kartöflurnar, sem bornar eru fram í bréfpoka, en að öllu gríni slepptu þá er maturinn þar stórkostlegur. 101 er eins og sett Spaugstofunnar. Þar má sjá erkitýpur þáttarins, Kára í deCODE, Jón Ásgeir, Ara Edwald og fleiri hræra í einum móhító. Augu vinkvennanna glennast upp og þær jafnvel ná að þegja í svo sem eina mínútu enda snarhitna hnakkablöðin við það að skrá atburðarásina inn á harða diskinn. Sérútbúið umhverfi fyrir reykj- andi saumaklúbba. Þar sitja gjald- kerar allra landsmanna og reykja á meðan þær bíða eftir crépes- pönnukökunum með hrísgrjónun- um og sinnepssósunni. Minnir á stemninguna þegar gömlu Sam- vinnuferðar-Landsýnar dragtirnar sóluðu sig á Austurvelli þegar vel viðraði. Þær eru í mat, reykja sína sígó, drekka sinn kaffibolla og ekkert múður. Út að borða hljómar stórkostlega í eyrum flestra. Stjörnukvöldið getur þó auðveldlega breyst í martröð og ef kviknað hefur í brauðkörfunni áður en kvöldið er liðið eða fullur saumaklúbbur á næsta boði haldið stefnu- mótinu í gíslingu þarf greinilega að taka ferlið til endurskoðunar. Júlía Margrét Alexandersdóttir þræddi veitingastaði borgarinnar og kynnti sér hvernig hægt er að baktryggja sig með því að velja rétta veitingastaðinn út frá aðstæðum. Reykvískar lautarferðir Snætt úti þegar þú ert...
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.