Tíminn - 08.12.1979, Blaðsíða 19

Tíminn - 08.12.1979, Blaðsíða 19
Laugardagur 8. desember 1979 IÞROTTIR IÞROTTIR 19 Víkingar eiga harma að hefna Við munuin le allt í sölumar Við munum leggja allt i sölurnar, til að leggja Heim að velli — og ég tel að við eigum mikla möguleika að vinna upp ' fjögurra marka forskot Svíanna. Við erum stað- ráðnir í að nýta mark- tækifæri okkar, en við fórum oft illa að ráði okkar í leiknum út í Gautaborg — létum Claes Hellgren verja skot frá okkur, úr dauðafærum, sagði Páll Björgvinsson, fyrirliði Vikingsliðsins, sem mætir Heim i Evrópu- keppni bikarhafa í handknattleik — i Laugardalshöllinni ann- að kvöld kl. 7. Vikingar töpuðu 19:23 fyrir Heim i Gautaborg, eftir að staðan hafði verið 18:19 rétt tíl að slá Heim út úr Evrópukeppninni” segír Páll Björgvinsson fyrir leikslok. — „Leikurinn gegn Vikingi i Reykjavik, verður mjög erfiður og ég þori ekki aö segja, hvort fjögurra marka forskot okkar dugar okkur þar, sagði Stig „Julle” Johansson, þjálfari Heim, eft- ir leikinn i Gautaborg. Sviarnir eru mjög hræddir við áhorfendur i Laugardals- höllinni. — Það tekur á taugarnar að leika fyrir fram- an 2000 öskrandi áhorfendur i Reykjavik, sögðu þeir. Eiga harma að hefna Vikingar eru staðráðnir i þvi að vinna markamuninn upp og kemur tvennt til — þeir ætla sér að komast áfram i 8-liöa úrslit Evrópukeppninnar og einnig eiga þeir harma að hefna frá þvi i fyrra, en þá slógu Vikingar út sænska liðið Ystad i Evrópukeppninni — þeir voru siðan dæmdir úr leik á stórfurðulegri og óiþrótta- mannlegri framkomu Svians Kurt Wadmarks, en eins og mönnum er i fersku minni kærði hann Vikinga og dæmdi siðan sjálfur i málinu. Wad- mark telur að sænskur hand- knattleikur sé mörgum gæða- flokkum fyrir ofan islenskan handknattleik og þolir ekki að sænskt lið sé slegið út af is- lensku liöi. Vikingar eru þvi ákveðnir að leggja Heim að velli — það væri góð ráðning fyrir Wadmark. Handknattleiksunnendur PALL BJÖRGVINSSON eru hvattir til að mæta i I Laugardalshöllina og styðja við bakið á Vikingum i baráttu j þeirra og hvetja þá til sigurs. -SOS I Valsmenn ætla ai 5 skióta Brentwood á bólakaf — leika gegn enska liöinu I Laugardals* hollinni I dag Valsmenn eru ákveðnir að skjóta enska liðið Brentwood á bólakaf i Evrópukeppni m eistara liða, þegar þeir leika gegn Englend- ingunum i LaugardalshöIIinni I dag. Markmiö þeirra er að fá á sig færri en 10 mörk, en eins og menn muna, þá unnu þeir sigur 32:19 yfir Brentwood i London. Leikurinn hefst i Laugardalshöll- inni kl. 14.30 i dag. KR-ingar sviptír umsjá... — á næsta heimaleik þeirra i „Úrvalsdeildin” Aganefnd KKt ræddi um skrils- lætin sem urðu eftir ieik KR-inga og Valsmanna I Laugardalshöll- inni i „Orvalsdeildinni” I körfu- knattieik, en eins og hefur komið fram, þá urðu geysileg læti eftir leikinn — þar sem bæði KR-ingar og stuðningsmenn þeirra gerðu aðför að dómurum leiksins. Aga- nefndin ákvað að svipta KR-inga umsjá á næsta heimaleik þeirra. —SOS Þorsteinn búinn að skrifa ÞORSTEINN ÓLAFSSON undir. — $g er búina aö ganga endan- lega frá málunum við IFK Gautaborg — sagöi landsiiðs- markvöröurinn sterki ' I knatt- spyrnu, Þorsteinn ölafsson, sem er nýkominn frá Gautaborg , þar sem hann skrifaöi undir samning við sænska liðið IFK Gautaborg. Þorsteinn og eininkona hans, Katrin Guðjónsdóttir, fóru til Svi- þjóðar nú i vikunni, þar sem gengið var frá samningnum — og völdu þau sér um leið ibúð, sem veröur heimili þeirra i framtið- inni. Þorsteinn, sem er efna- fræðingur, fékk vinnu á rann- sóknarstofu Lefnafræðum. —samning við IFK Gautaborg Leikmenn IFK Guataborg munu byrja að æfa af fullum kraftistrax eftir áramót, þar sem liðið leikur i 8-liöa úrslitum Evrópukeppni bikarhafa og má Þorsteinn leika meö liöinu i keppninni. Þorsteinn hefur haldið sér i æfingu, frá þvi að Keflvikingar léku gegn Brno i Evrópu- keppninni — hann æfir og leikur með Keflvikingum i handknatt- leik. Hann mun einnig æfa sig sérstaklega — fyrir Sviþjóöarför- ina. —SOS Stórslagur f ,JJónagryfjuniii” . Jackson leíkur ekkl með KR-lDgnmi£3£tv_i Blökkumaðurinn Marvin Jack- son mun ekki leika með KR-ing- um, þegar þeir mæta Njarðvlk- ingum i „Ljónagryfjunni” I Njarðvlk. Jackson var dæmdur I eins leiks bann af aganefnd K.K.í. á fimmtudagskvöldið. Þetta er mikil blóðtaka fyrir KR-liðiö, þar sem Jackson hefur veriö þeirra besti maður að undanförnu og skorað mikið af stigum. Það má búast við fjörugum, leik i „Ljónagryfj- unni” i dag kl. 2, þegar Njarð- vikingar og KR-ingar leiða saman hesta sina. Njaröviking- ar standa mjög vel að vigi — þeir leika með alla sina bestu leikmenn, og ef þeir knýja fram sigur, þá hafa þeir náð 6 stiga forskoti á Islandsmeistara KR i „Úrvalsdeildinni”. Njarðvikingar leggja örugg- lega allt i sölurnar til að leggja KR-inga að velli, en KR-ingar undir stjórn Jóns Sigurðssonar reyna örugglega að klóra i bakkann i „Ljónagryfjunni”. Einn annar leikur verður leik- inn I „Úrvalsdeildinni” — ÍR- ingar mæta Stúdentum I Haga- skólanum á morgun kl. 7. -SOS Nú geta leikir ekki endað með jafntefli... — I Reykjavikurmótinu í knattspyrnu Þær brcytingar hafa verið ákveðnar á Reykjavikurmótinu I knattspyrnu, aö enginn leikur geti endað með jafntefii. Ef leikur endar meö jafntefli —t.d. 1:1, þá mun fara fram „bráðabana- keppni”, sem er eins og vlta- spyrnukeppni f Bandarikjunum. Leikmaöur byrjar þá með knött- inn á miðju og fær hann 15 sek. til að reyna að skora mark, en markvöröur má koma út á móti honum.tilað reyna að koma i veg fyrir að mark veröi skoraö. „Brá ða b ana kepp nin” mun standa yfir, þar til úrslit fást — þ.e.a.s. að annað iiðið misnoti tækifæri sitt, en hitt liðiö nýti þaö. Þetta var ákveöið á ársþingi K.R.R. á fimmtudagskvöldiö, en á þinginu var Ólafur Erlendsson endurkjörinn formaöur ráðsins -SOS Bob Starr 111 Fram — stjómar æfingum þar til nýr Bandarikjamaður maður kemur I stað Johnsons Bob Starr, þjálfari Ármenninga I körfuknattieik, stjórnaði æfingu hjá Fram i gærkvöidi, en hann hefur boðist til að hjálpa Frömur- um, þar til þeir fá nýjan þjálfara. — Við erum nú að leita eftir nýj- um þjálfara og leikmanni og höf- um haft samband við aöila i Bandarikjunum. Þá hcfur Bob Starr boöist til að útvega okkur bróöir Danny Shous hjá Armanni, en hann er 19 ára — og Stars segir að hann sé mjög góður, sagöi Hrannar Haraldsson, formaður körfuknattleiksdeildar Fram, I stuttu spjalli við Timann I gær. — SOS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.