Fréttablaðið - 26.04.2007, Qupperneq 40
26. APRÍL 2007 FIMMTUDAGUR4 fréttablaðið útivist
Fiskur og kjöt á grillið
Jón grillar bæði kjöt og fisk. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
SKÖTUSELUR
Fyrir 4
1 kg skötuselur
3 dl olía
4-5 hvítlauksrif
3 steinseljubúnt
3 stk lime
hrísgrjón
ferskt salat
sæt sojasósa
salt og pipar
Skötuselurinn er penslaður með smá olíu og
settur á grillið. Olían, hvítlauksrifin og steinseljan
er sett í matvinnsluvél og blandað saman til að
búa til sósu. Börkurinn er rifinn af súraldininum
og stráð yfir grillaðan fiskinn og safinn kreistur úr
þeim út í sósuna. Borið fram með hrísgrjónum og
fersku salati.
Skötuselur með hvítlauks- og steinseljusósu og
hrísgrjónum.
LAMBALUNDIR
Fyrir 4
800 g lambalundir
400 g matarolía
200 g BBQ hickory brown sósa
1 stk. hvítlaukur
2 msk. timian
1 msk. rósmarín
1 tsk. worchester sósa
4 bökunarkartöflur
bearnaisesósa
ferskt salat
spagettí
Byrjað er á að búa til marineringu úr matarol-
íunni, BBQ-sósunni, hvítlauknum, timianinu, rós-
maríninu og worchester-sósunni. Lambalundirnar
eru látnar liggja í marineringunni í svona þrjá til
sex tíma og síðan grillaðar. Borið fram með kartöfl-
um, bearnaisesósu og fersku salati. Til skrauts má
nota spagettí sem er fyrst soðið, síðan djúpsteikt
og loks saltað.
Lambalundir með bearnaisesósu og spagettí.
Í sumar getur verið gaman að prófa sig áfram
með grilluppskriftir.
Þegar fer að hlýna í veðri og dagurinn lengist draga sí-
fellt fleiri fram útigrillin sín. Á grillinu má elda nánast
allt og löngu liðin tíð að ekkert sé grillað nema pylsur
og hamborgarar. Jón Líndal Guðnason, yfirmatreiðslu-
maður á Grillhúsinu, er vanur grillari og lumar á mörg-
um góðum uppskriftum. Hann ætlar að deila tveimur
þeirra með lesendum Fréttablaðsins, annars vegar upp-
skrift að skötusel og hins vegar að lambalundum.
frá18.400
Vika í Þýskalandi
kr. - ótakmarkaður akstur,
kaskó, þjófavörn, flugvallargjald
og skattar.
VW Fox eða sambærilegur
522 44 00 • www.hertz.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
E
R
3
69
19
0
4/
07
Bókaðu bílinn heima fyrir 1. maí
- og fáðu 1.000 Vildarpunkta
Fljótasiglingar - Klettaklifur
Hestasýningar - Gönguferðir - Gisting
Veitingar - Ratleikir - Hestaleiga
Hafið samband og við gerum tilboð
Verið velkomin!
bakkaflot@islandia.is
Sími 453-8245 & 899-8245
Ferðaþjónustan Bakkaflöt
560 Varmahlíð, Skagafirði
www.bakkaflot.is
Skólahópar!