Fréttablaðið - 11.05.2007, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 11.05.2007, Blaðsíða 1
Hvað er hyggilegt að hafa á borðum þegar Júró- visjón og kosningar ber upp á sama kvöldið? Tónlistarmaðurinn Felix Bergsson og stjórnmála- fræðingurinn Baldur Þórhallsson gefa hér góð ráð. Fyri k „Já, þetta var lærdómsríkt og fyrst við erum spurðir álits á hvernig kosninga- og Júróvisjónmatseðill eigi að líta út þá mælum við með þeim franska. Smá- réttum, ávöxtum, berjum og ískúlu. Ég sé fyrir mér kjúkling í satay-sósu á teini með hrí jó einn af réttunum S Eurovision-veitingar upp á franska vísu Gulla á Þremur hæðum hús&heimili FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2007 INNLIT Uppgert hús á Bakkastíg HÖNNUN Gulla á Þremur hæðum EUROVISION Tilbúin í slaginn Stíllinn breytist og hárið með Ragnheiður Elín Árna-dóttir, aðstoðarkona forsætisráð- herra og frambjóðandi Sjálfstæðis- flokksins í Suðvesturkjördæmi, hleypir Sirkus í fata-skápinn hjá sér. Hún segir stílinn hafa breyst með aldrinum og aðhárið hafi tekið enn meiri breytingum. Bls. 6 Hárspangir í Vogue Thelma Jónsdóttir, fatahönnuður í París, hefur vakið mikla athygli fyrir hár- spangir sem hún hannar. Grein um hana birtist í breska Vogue en hún handsaumar allar spangirnar sjálf. Bls. 4 SI RK US M YN D /H Ö RÐ UR Kasólétt Ellý Ármanns bloggar um samskipti kynjanna KYNLÍF ER NÁTTÚRULEGURPARTUR AF TILVERUNNI sirkus Freyja fjölgar mannkyninu FitnessdrottninginFreyja Sigurðardóttir og maðurinn hennar, Haraldur Guðmunds- son, eiga voná barni í október. Þau ætla að fá að vita kynið í næsta sónar. Bls. 2 ÞENUR RADDBÖNDIN Á WEMBLEY Tenórinn Garðar Thor Cortes hefur verið fenginn til að syngja á Wembley-leikvanginum fyrir úrslitaleikinn um sæti í ensku úrvalsdeild- inni 28. maí næstkomandi. BLS. 2 11 . m aí 2 00 7 H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA 8 1 3 1 SKRÁÐU ÞIG NÚNA Á GLITNIR.IS www.xf.is FLOKKUR SEM ÞORIR! Kosið verður á morgun til Alþingis og kemur þá í ljós hvernig atkvæðin falla í þess- um þingkosningum. Samkvæmt síðustu skoðanakönnun Frétta- blaðsins fyrir þessar kosningar mælist Sjálfstæðisflokkurinn með 42,2 prósent og fengi 28 þingmenn kjörna. Fylgið dalar hjá þeim um 0,3 prósentustig frá könnun blaðs- ins sem birt var á sunnudag. Vik- mörk eru 2,0 prósentustig. Þann fyrirvara verður þó að setja, þar sem Fréttablaðið spyr ekki hvort svarendur séu líklegri til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða annan flokk, að reynsla af könnunum fyrir kosningar sýnir að Sjálf- stæðisflokkurinn reynist oft of hátt mældur. 24,6 prósent segjast myndu kjósa Samfylkingu, sem dygði til að fá sextán þingmenn. Vikmörk eru 1,8 prósentustig. Fylgi flokks- ins eykst um 0,6 prósentustig frá því á sunnudag. Fylgi Vinstri grænna mælist nú 16,1 prósent, með vikmörk upp á 1,5 prósentustig. Það er nánast sama fylgi og á sunnudag. Ef það verða niðurstöður kosninganna fengi flokkurinn tíu þingmenn. Framsóknarflokkurinn mælist nú með 9,1 prósents fylgi, 0,4 pró- sentustigum minna en á sunnudag. Samkvæmt því fengi flokkurinn sex þingmenn kjörna. Þegar fylg- ið er brotið niður á hvert kjör- dæmi eru líkur á að Jón Sigurðs- son geti fengið úthlutað jöfnunarsætinu í Reykjavíkur- kjördæmi norður. Fylgi Frjálslynda flokksins hefur ekki breyst frá því um helgi og segjast enn 5,4 prósent myndu kjósa flokkinn. Vikmörk eru 0,9 prósentustig. Samkvæmt því fengi flokkurinn þrjá jöfnunarþing- menn kjörna, en samkvæmt útreikningum Fréttablaðsins á hvert kjördæmi ná þingmennirnir Magnús Þór Hafsteinsson, vara- formaður flokksins, og Sigurjón Þórðarsson ekki kjöri. Íslandshreyfingin nær enn ekki nægjanlega miklu fylgi til að fá mann kjörinn. 2,6 prósent segjast nú myndu kjósa flokkinn, hálfu prósentustigi meira en um helg- ina. Vikmörk eru 0,7 prósentustig. Fylgi flokka í hverju kjördæmi er greint á síðu 24 í blaðinu í dag. Stjórnin með meirihlutafylgi Sjálfstæðisflokkurinn fengi 28 þingmenn, Samfylking sextán, Vinstri græn tíu, Framsóknarflokkur sex, Frjáls- lyndi flokkurinn þrjá og Íslandshreyfingin engan samkvæmt síðustu könnun Fréttablaðsins fyrir kosningar. Útlit er fyrir blíðviðri sunn- an- og suðvestanlands á kjördag á morgun. Sólin ætti að skína og hit- inn slaga upp undir tíu gráður um miðjan dag. Hins vegar má gera ráð fyrir slyddu með köflum og tveggja til fjögurra stiga hita á Norður- og Austurlandi, en annars léttskýjuðu að mestu. Ýmsar kenningar eru til um áhrif veðurfars á kjörsókn og kosn- ingaúrslit. Rannsóknir í Bretlandi hafa til dæmis sýnt að gott veður sé hagstætt fyrir sitjandi valdhafa. Einar Sveinbjörnsson, veðurfræð- ingur og aðstoðarmaður umhverf- isráðherra, segir erfitt að spá fyrir um áhrif veðurs á kosningar. „En mér finnst þetta alls ekkert ósenni- legt, að ef það er gott veður og allir glaðir þá séu kjósendur síður reiðir og tilbúnir að refsa. Á móti hafa margir bent á að í góðu veðri sé fólk líklegra til að fara út úr bænum og sleppa því að kjósa. Hins vegar held ég að almenn stemning fyrir kosningunum skipti þegar upp er staðið öllu meira máli en veðrið.“ Trausti Jónsson veðurfræðingur segir veður hafa sífellt minni áhrif eftir því sem fleiri eru á bíl. „Ég hugsa að Evrópusöngvakeppnis- mál komi til með að hafa meiri áhrif á kosningarnar heldur en veðrið ef okkur gengur vel í þeirri keppni.“ Rokkuð frammi- staða Eiríks Haukssonar og félaga á sviðinu í Helsinki í Finnlandi dugði ekki til að fleyta framlagi Íslands í Eurovision- söngvakeppninni í úrslitakeppn- ina sem fer fram á laugardags- kvöld. Eiríki og félögum þótti takast vel upp við flutning lagsins Valentine lost í undankeppninni, en lagið var ekki eitt af tíu lögum sem komust áfram. „Að sjálfsögðu er ég svekktur, en ég er svo sem ekkert undr- andi. Skoðið bara úrslitin og þá sjáið þið hver ástæðan er,“ sagði Eiríkur þegar úrslitin voru ljós, og vísaði til þess að þjóðir frá Austur-Evrópu réðu lögum og lofum í gærkvöldi. Alls bitust 28 þjóðir um tíu laus sæti í úrslitunum, en ekki verður gefið upp fyrr en eftir úrslita- keppnina í hvaða sæti framlag Íslands lenti. Þau lönd sem komust áfram í úrslitin voru Hvíta-Rússland, Makedónía, Slóvenía, Ungverjaland, Georgía, Lettland, Serbía, Búlgaría, Tyrkland og Moldóva. Ísland úr leik í Eurovision
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.