Fréttablaðið - 11.05.2007, Blaðsíða 104
Íaðdraganda kosninga fer allt þjóðfélagið að klæja í görnina
um að tjá sig. Dagblöðin eru vin-
sæll vettvangur skoðanaskipta en
hafa yfirleitt ekki undan að birta
aðsendar greinar. Það leysti net-
væðing þeirra á þægilegan hátt.
Illræmdust er flóðbylgja Mogga-
bloggsins og ég er viss um að all-
margir Moggabloggarar gæfu
aðra höndina fyrir 400 orð á bak-
síðu Fréttablaðsins daginn fyrir
kosningar. Einmitt þess vegna
ætla ég ekki að tala um pólitík. Hí
á ykkur.
Ellý Ármanns sem
hefur skotið öðrum Moggablogg-
urum ref fyrir rass – ekki með
röfli um stjórnarmyndunarmögu-
leika heldur með erótískum smá-
sögum. Nú skilst mér að hún hafi
fengið boð um birtingu í dönskum
blöðum, en það hefur reynst mörg-
um íslenskum höfundi vel í upp-
hafi ferils.
Ellýjar eru lipurlega
skrifaðar, tilvaldar með kaffinu
eða fyrir svefninn. Þær fjalla um
flengingar, sprautublæti og kynlíf
á bílaþvottastöðvum með afslapp-
aðri kímni og lesandi fær strax
samúð með aðalpersónunum, vel-
viljuðum konum sem eru flæktar
í grátbroslegar aðstæður.
á borð við þessar
eru sólargeisli í andlegum doða og
lifandi samkeppni hins ritaða máls
við afþreyingarefni sjónvarps.
Hvort sem landinn liggur í próf-
lestri eða kosningaþunglyndi er
slíkt léttmeti bráðhollt fyrir sálar-
lífið. Ég leyfi mér einnig að mæla
með Ísfólkinu, 47 binda bókaflokki
norsku skáldkonunnar Margit
Sandemo, þar sem kynóðir djöflar,
ættbálkaerjur og heygafflamorð
hrærast saman í ómótstæðilegt
léttklám fyrir unglingsstúlkur.
vilja frekar eitt-
hvað íslenskt má nefna unglinga-
bækur frá 9. áratugnum. Að mínu
mati ber þar hæst skáldsöguna
Brosað gegnum tárin, sem fjallar
um unglingsstúlku á Suðurnesjum
sem hefur lágt sjálfsmat en tekur
síðan þátt í fegurðarsamkeppni
og öðlast trú á sjálfa sig. Ekki er
boðskapurinn bara frábær held-
ur eru ýmsir skemmtilegir hnökr-
ar á frásögninni, til dæmis skipt-
ir aðalpersónan nokkrum sinnum
um nafn.
ekkert miðað við að-
stæður föður hennar, sem í upp-
hafi bókar er í sárum eftir dauða
eiginkonu sinnar og blindur í ofan-
álag, en gerist á síðu 138 sekur um
ölvunarakstur. Þegar stúlkan sér
blindan föður sinn skjögra út úr
bílnum spyr hún sár: Pabbi, varstu
að drekka? Manstu ekki að fegurð-
arsamkeppnin er í kvöld?
Sögur fyrir
sálarlífið
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI