Fréttablaðið - 11.05.2007, Blaðsíða 90
Bjóðum ykkur velkomin í nýjar sælkeraverslanir okkar
að Búðakór 1 Kópavogi og Tjarnarvöllum 15 Hafnarfirði.
Ný upplifun
Kosningasteikin er smjörsprautuð nautasteik að hætti Ómars í Gallerí Kjöt.
Nauta- og sjávarréttagrillsprjótin eru tilvalin í Eurovisionpartíin!
Vi ð l e g g j u m m i k i n n m e t n a ð í a ð b j ó ð a þ é r a ð e i n s u p p á f y r s t a f l o k k s h rá e f n i o g
t i l b ú n a ré t t i . E i n n i g b j ó ð u m v i ð u p p á ú r va l a f s ó s u m o g ö ð r u g æ ð a m e ð l æ t i .
verslanir Fiskisögu verslanir Gallerí Kjöts
Miðjarðarhafs skötuselur í tómat og basil
Gísli Ásgeirsson þýðandi er helsti sérfræð-
ingur Íslands í póker. Nú gefst áhorfendum
Sýnar tækifæri á að fylgjast með gengi
fimm Íslendinga sem tóku þátt í World Cup
of Poker sem fram fór í Barcelóna fyrir
nokkrum mánuðum.
„Þetta var fínt,” segir Halldór Már Sverrisson póker-
spilari með meiru. Og er ófáanlegur til að tjá sig nánar
um hvernig upplifun það hafi verið að taka þátt í meiri
háttar pókermóti. „Við skulum bara láta myndirnar tala
sínu máli,“ segir hann.
Halldór keppti, ásamt fjórum öðrum Íslendingum,
fyrir hönd lands og þjóðar, í risastóru pókermóti sem
fram fór í Barcelona fyrir nokkrum mánuðum, World
Cup of Poker. Byrjað er að sýna frá þessu móti á Sýn en
þar hafa þættir um póker notið mikilla vinsælda. Sem
fara vaxandi.
„Já, Sýn var að kaupa tvær pókerseríur sem verða
keyrðar samtímis. World Cup of Poker og World Series
of Poker. Þetta er alvöru póker þar sem spilað er upp
á milljónir. Jafnvel Bjarni Ármanns væri þar eins og
meðal jafningja,“ segir Gísli Ásgeirsson þýðandi en
hann hefur fengist við að þýða og lýsa pókerþáttum
sem hafa verið til sýninga á Sýn.
World Cup mótið þar sem Íslendingarnir kepptu var
einkar glæsilegt og var stjan-
að við keppendur á glæsihót-
elum þar sem þeir gistu.
Auk Halldórs voru það
Brynjar Valdimarsson,
Þorkell Þórisson, Birg-
ir Guðmundsson og
Gústaf Björnsson sem
spiluðu. Sannkallað
pókeræði ríkir
á Íslandi þó
ekki fari
það hátt og
er spilað
af miklum
þrótti bæði í
heimahúsum sem
og á netinu.
„Úti í löndum er póker ekkert feimnismál eins og
hér heima,“ segir Gísli sem hefur lýst því opinberlega
hversu lítt honum þykir til tvískinnungsins sem hér
ríkir gagnvart casino-spilum. En það er efni í annað
vers.
Gísli vill ekkert gefa uppi um gengi Íslendinganna –
að vonum. „Það kemur í ljós í þáttunum. Ég sé sérstaka
ástæðu til að hrósa Birgi Guðmundssyni. Hann tók allt-
af réttar ákvarðanir,“ segir Gísli. Svo er það spurning
um heilladísirnar því þó póker sé vissulega spil sem
menn eru missleipir í þá spilar lukkan þar inn í.
The Ghost That Carried Us Away
er fyrsta plata Seabear í fullri
lengd, en áður hafði sveitin sent
frá sér EP-plötuna Singing Arc.
Seabear er í dag sex manna sveit,
en Sindri Már Sigfússon telst vera
forsprakki hennar – hann semur
öll lögin og textana og syngur auk
þess að spila á fjölmörg hljóð-
færi.
Tónlist Seabear er kántrískotið,
rólegt og seiðandi indí-popp. Hún
einkennist af melódískum laga-
smíðum og hlýjum og hljómfögr-
um útsetningum. Tónlist sveita
eins og Slowblow, Skakkamanage,
múm og Funerals kemur upp í
hugann þegar maður hlustar á
plötuna þó að Seabear líkist engri
þessara sveita beinlínis.
Lagasmíðarnar eru margar
mjög flottar og söngurinn er fínn,
en það sem gerir The Ghost That
Carried Us Away jafn frábæra og
raun ber vitni eru útsetningarnar.
Það hefur verið nostrað við þessi
lög. Kassagítar, píanó, fiðlur og
klukkuspil setja sterkan svip á út-
komuna, en ýmis önnur hljóðfæri
eru notuð á mjög áhrifaríkan hátt
í einstaka lögum, þ.á m. munn-
harpa, banjó, horn og orgel. Og
ekki má gleyma bakröddunum.
Þær eru mjög vel heppn-
aðar og lyfta lögum eins
og Libraries, Hospital
Bed, Owl Waltz upp
á annað plan. Heild-
arsvipur plötunnar
er líka sterkur. Hún
rennur vel í gegn
og stemningin held-
ur sér frá fyrsta lagi til
þess síðasta þó að flestar
sterkustu lagasmíðarnar
séu á fyrri hluta plöt-
unnar.
Á heildina
litið er The
Ghost That
Carried
Us Away flott frumsmíð og heill-
andi plata sem ætti að geta höfðað
til nokkuð breiðs hóps poppá-
hugamanna.
Íslenska tónlistarárið
2007 hefur farið frábær-
lega af stað. Þegar eru
komnar út nokkrar plötur
sem ættu að geta blandað
sér í hóp bestu platna árs-
ins í árslok. The Ghost That
Carried Us Away er ein af
þeim.
Rólegt og seiðandi
l.