Fréttablaðið - 11.05.2007, Blaðsíða 8
Í þessum kosningum getur fram-
tíð Íslands verið undir í fleiri en
einum skilningi. Í ráði
er að reisa sex álver
en ef þau verða í lág-
marksstærð vegna
krafna um hagkvæmni
þyrfti til þess alla
virkjanlega orku landsins, vænt-
anlega á útsöluverði, með stór-
felldum spjöllum á mesta verð-
mæti landsins, náttúrunni. Hitt
vekur líka ugg að nú sést hvernig
öll álver landsins gætu komist í
eigu eins fyrirtækis. Reynslan af
hótunum Alcans við Hafnfirð-
inga sýnir hvílíkt tak slíkt fyrir-
tæki hefði á þjóðinni. Í þriðja lagi
hringja allar bjöllur þegar byrjað
er að selja orkuverin og þar með
orku, sem hækkar hratt í verði.
Það sýnir nauðsyn þess að staldra
við og tryggja ævarandi og full
yfirráð þjóðarinnar yfir auðlind-
inni.
Til þess að mynduð verði ríkis-
stjórn undir forystu
Sjálfstæðisflokksins
að loknum kosningum
verður flokkurinn að
fá góða kosningu á
morgun. Það er mikil-
vægt að þeir kjósendur sem vilji
slíka ríkisstjórn veiti Sjálfstæð-
isflokknum atkvæði sitt. Fyrir
liggur sú yfirlýsing stjórnarand-
stöðuflokkanna að þeir ætli að
mynda ríkisstjórn eftir kosning-
ar, fái þeir tækifæri til, og ljóst
er að atkvæði greidd þeim flokk-
um eru atkvæði greidd slíkri rík-
isstjórn. Undanfarin ár höfum
við náð frábærum árangri.
Atkvæði til Sjálfstæðisflokksins
tryggir að þar verði áframhald á.
Ein afleiðing stóriðjustefnunnar
og hagstjórnarmistaka ríkis-
stjórnarinnar er hið himinháa
vaxtastig sem gerir auglýsingar
Sjálfstæðisflokksins
um efnahagslegan
stöðugleika að léleg-
um brandara. Stöðug-
leiki ríkisstjórnarinn-
ar lýsir sér best í
hækkun stýrivaxta úr 5,3% í
14,25% á kjörtímabilinu. Verst er
að herkostnaðinn bera skuldsett
heimili landsins og almennt
atvinnulíf en þessa reikninga er
sem betur fer hægt að jafna með
kjörseðlinum á morgun. Við í
Vinstri grænum viljum snúa
þessari þróun við þannig að hið
almenna atvinnulíf blómstri og
vaxtabyrði heimilanna minnki.
Nú er framundan síðasti dagur
kosningabaráttunnar.
Kannanir sýna miklar
sveiflur í fylgi stjórn-
málaflokkanna. Við
getum ekki leyft okkur
að láta þær hafa of
mikil áhrif á okkar
störf. Það er kosningin á morgun
sem skiptir máli. Við framsókn-
armenn þurfum á öllu okkar að
halda. Ef niðurstaðan verður sú
sem kannanir gefa til kynna er
ljóst að Framsóknarflokkurinn
víkur úr ríkisstjórn að kosning-
um loknum. Jafnvel þótt ríkis-
stjórnin haldi meirihluta þing-
sæta fer Framsóknarflokkurinn
ekki í ríkisstjórn með útkomu í
námunda við það sem kannanir
dagsins sýna. Við þurfum því enn
að bæta í, auka fylgi okkar og
leggja okkur fram, allt þar til
kjörstöðum lokar á morgun. Ég
trúi því að ef við leggjum okkur
öll fram muni uppskeran verða
góð.
Ég er sannfærð um að við Íslend-
ingar höfum gríðarleg
sóknarfæri á næstu
árum. Fréttir dagsins
um áhuga upplýsinga-
tæknirisans Yahoo á
því að setja upp net-
þjónabú á Íslandi sýna þetta svart
á hvítu. Þessi áhugi Yahoo stað-
festir að við þurfum ekkert að
óttast þó við hægjum á ferðinni í
uppbyggingu stóriðju. Hin vist-
væna orka Íslands á bara eftir að
hækka í verði og við höfum nú
gullið tækifæri til að koma á jafn-
vægi í hagkerfinu, bæta umhverfi
sprotafyrirtækja og búa í haginn
fyrir jafnan og öruggan hagvöxt
á komandi árum.
Ég, sem þessi orð rita, hef varað
við afleiðingum kvótakerfisins
frá fyrstu tíð. Frjálslyndi flokk-
urinn hafnar, enn sem fyrr, mein-
gölluðu fiskveiði-
stjórnunarkerfi.
Stefnufesta okkar í
málefnum aldraðra og
öryrkja síðastliðin 7 ár
um hátt frítekjumark,
án skerðinga, ætti að
vera öllum ljós. Þá hefur hækk-
un skattleysismarka verið bar-
áttumál flokksins mörg undan-
farin ár. Sú barátta heldur áfram.
Samgönguáherslur Frjálslynda
flokksins eru að flýta Sunda-
braut, tvöfalda Vesturlands- og
Suðurlandsveg, flýta jarðganga-
gerð og þverunum fjarða, leysa
daglega umferðarhnúta á höfuð-
borgarsvæðinu og hafa Reykja-
víkurflugvöll áfram í Vatnsmýr-
inni. Frjálslyndi flokkurinn vill
halda landinu öllu í byggð, hann
er traust verður. Kjósandi ! Við
treystum á þinn stuðning.
Hæstiréttur staðfesti í
gær sjö ára fangelsisdóm yfir
tveimur Litháum á fertugsaldri,
Sarunas Budvytis og Virunas
Kavalciukas, fyrir innflutning á
tólf kílóum af sterku amfetamíni
til landsins.
Mennirnir voru handteknir á
Seyðisfirði í júlí í fyrra eftir að átta
eins og hálfs lítra plastflöskur full-
ar af hvítu dufti fundust í eldsneyt-
istanki bíls sem þeir fluttu með sér
til landsins með ferjunni Norrænu.
Í ljós kom að í flöskunum var afar
sterkt amfetamín sem hægt hefði
verið drýgja og fá úr því um þrjátíu
kíló af amfetamíni af tuttugu pró-
senta styrkleika til söludreifingar.
Báðir mennirnir neituðu sök.
Sarunas kvaðst hins vegar hafa
verið fenginn til að flytja til
landsins ótilgreint magn af hesta-
sterum, sem faldir yrðu í bílnum,
vitandi að hann hlyti aldrei nema
í mesta lagi tveggja mánaða skil-
orðsbundinn dóm yrði hann tek-
inn. Af vitnisburði mannanna
þótti ljóst að báðum hefði verið
fullkunnugt um amfetamínið í
bílnum. Mennirnir hafa báðir
hlotið refsidóma í öðrum ríkjum.
Frá dómnum dregst gæslu-
varðhaldsvist frá 7. júlí í fyrra.
Málið dæmdu Gunnlaugur
Claessen, Garðar Gíslason,
Hrafn Bragason, Ingibjörg Bene-
diktsdóttir og Markús Sigur-
björnsson.