Fréttablaðið - 11.05.2007, Blaðsíða 6
Ætti að auglýsa aftur eftir
umsækjendum í stöðu aðstoðar-
ríkislögreglustjóra?
Horfðir þú á undankeppni
Eurovision í gærkvöldi?
Fullkomnasti farsími í heimi
Nokia N95
5 megapixla myndavél
mp3 spilari
3 Kynslóð
WLAN
GPS
100 fríar stafrænar framkallanir
frá Hans Petersen fylgja
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
S
K
3
75
91
0
5/
07
INNRITUN
www.hi.is
Umsóknarfrestur
í grunnnám
er til 5. júní
Allt sem þú vilt vita og rafrænar umsóknir á www.hi.is
Tjón á bílum og gríðarleg rykmengun er
daglegt brauð á þeim hluta Djúpvegar sem liggur um
Bæjarhrepp á Ströndum. Um veginn fer öll umferð
til Ísafjarðar, en hann er afar illa farinn á um 16 kíló-
metra kafla þar sem skiptast á grjót og holur.
„Þetta er skelfingarástand á veginum,“ segir Hann-
es Hilmarsson, bóndi á Kolbeinsá, en bær hans stend-
ur við Djúpveginn. Hann þekkir veginn vel, enda sér
hann um vetrarþjónustu á honum.
„Bílarnir hjá okkur liggja undir skemmdum vegna
þess að vegurinn er allur út í holum annars vegar, og
vegna þess hvað hann er grýttur hins vegar. Yfirlagið
er allt farið og það er verið að keyra á undirlaginu,“
segir Hannes, sem segir þolinmæðina á þrotum.
Á þurrum dögum er rykmengun af veginum gríðar-
leg þegar flutningabílar með tengivagna keyra þar
um hver á eftir öðrum, og segir Hannes að ekki sé
hægt að hafa opna glugga á bænum þegar þurrt sé í
veðri.
Hann bendir á frétt Sjónvarpsins á dögunum þess
efnis að vinna hafi verið stöðvuð við niðurrif húsa í
Reykjavík eftir að rykmökkur gaus upp. Mengunin
sem þar gaus upp sé þó eins og hreinn barnaleikur
samanborið við rykmengunina við Djúpveg, og þó
taki enginn í taumana.
Hannes segir að málið sé allt sorglegra en ella
sökum þess að vegurinn sé að heita má tilbúinn undir
bundið slitlag. Búið sé að styrkja veginn og hann sé
nægilega breiður. Allt sé til staðar annað en fjármagn
og framkvæmdavilji.
Tekin hefur verið ákvörðun um að leggja veg um
Arnkötludal, og þegar hann verður tilbúinn mun
umferð til Ísafjarðar fara um hann en ekki þennan
slæma kafla Djúpvegs. Hannes segir það þó ekki
leysa vandann, blómleg byggð sé á svæðinu sem þurfi
að nýta veginn áfram, auk þess sem líklegt sé að hann
verði notaður sem varavegur fyrir nýja veginn þar
sem líklega verði hann snjóléttari.
Sveinn Karlsson, bifvélavirki á Borðeyri, þekkir
áhrif aksturs um Djúpveg á bíla heimamanna betur
en flestir, enda margir sem hafa komið beint á verk-
stæðið hans eftir að hafa farið um veginn.
Sveinn segir að mjög reglulega verði skemmdir á
bílum. Sprungin dekk séu algeng, og dæmi séu um
ónýtar felgur þegar bílar hafi keyrt á grjót eða í djúpa
holu. Einnig sé endingin á fjöðrunarbúnaði bíla afar
slök, dæmi sé um bíl sem ekið var tvisvar á dag eftir
veginum og fjöðrunarbúnaður entist í minna en ár.
Þolinmæði á þrotum
vegna Djúpvegarins
Skelfingarástand ríkir á hluta Djúpvegar á Ströndum að sögn kunnugra. Gríð-
arleg rykmengun er frá veginum. Skemmdir bílar eru daglegt brauð, enda yfir-
lagið af veginum horfið og holur og grjót hrista bíla sundur og saman.
Kínverskur dómstóll
dæmdi mann í lífstíðarfangelsi á
miðvikudag fyrir að hafa tekið
við sem svarar um 32 milljónum
króna í mútur þegar hann þóttist
vera blaðamaður eða ritstjóri
opinbers dagblaðs Kommúnista-
flokksins í Kína.
Lágt settir embættismenn í
útjaðri höfuðborgarinnar Peking
borguðu Liu Yonghong sem
sagðist myndu hjálpa þeim til
metorða innan flokksins.
Starfsmaður dagblaðsins sagði
Liu aldrei hafa starfað hjá því.
Hann fagnaði dómnum sem hann
sagði sanngjarnan og nauðsynlegt
væri að læra af.
Þáði mútur sem
blaðamaður
„Ljósmæður á
Landspítalanum segjast kvíða
sumrinu,“ segir Guðlaug Einars-
dóttir, formaður Ljósmæðrafélags
Íslands.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landspítalanum er búist við um
fimmtungi fleiri fæðingum í sumar
en spáð var fyrir sumarið 2006.
Fram hefur komið að nýútskrifað-
ar ljósmæður neita að ráða sig til
starfa vegna óánægju með launa-
kjör. Hjúkrunarforstjóri spítalans
og sviðsstjóri kvennadeildar sögðu
í Fréttablaðinu í gær að brugðist
yrði við fyrirsjáanlegri aukningu í
fæðingum og að ekkert væri að ótt-
ast, meðal annars myndu yfirmenn
ganga í störf. Guðlaug er ekki eins
bjartsýn.
„Mönnunin er svo knöpp að ljós-
mæðrum á Landspítalanum er gert
að skerða sumarfrí sitt og yfir-
mennirnir eru ekki svo margir að
það skipti sköpum. Þess utan er
rætt um að fæðingardeildinni í
Keflavík verði lokað í fjórar vikur
í júlí þannig að fæðingar þaðan
færast til Reykjavíkur,“ segir Guð-
laug.
Að sögn Guðlaugar er hún
nýkomin af Norrænu þingi ljós-
mæðra í Helsinki:
„Niðurstaða þingsins af rann-
sóknum á öllum Norðurlöndunum
og Bretlandi er að það skipti öllu
máli að ljósmæður hafi næði og
tíma til að sitja yfir konum í fæð-
ingu. Ég sé ekki fram á að það verði
hægt að sinna yfirsetu sem skyldi
ef ljósmæður þurfa að hlaupa á
milli kvenna í fæðingu.“
Ljósmæður kvíða sumrinu
Fólki úr tannlækna-
stétt og fjölmiðlum var boðið að
fylgjast með tannlæknisaðgerð í
Salnum í Kópavogi í gærkvöldi.
Þetta er í fyrsta sinn sem slík
aðgerð er gerð á Íslandi en tann-
þeginn var tannlaus í efri gómi og
settir voru sex tannplantar í hann
og tennur festar strax á.
Elín Sigurgeirsdóttir tannlæknir
er í forsvari fyrir aðgerðina en
Kaspar Hermansen tannlæknir
gerði hana.
„Myndatökumaður tók nærmynd
af aðgerðinni og henni var varpað
á stóran skjá uppi á sviði. Hingað
til hafa tannplantar þurft að gróa í
þrjá til sex mánuði áður en hægt
hefur verið að festa tennurnar á,“
segir Elín.
Hún telur sýningu aðgerðarinn-
ar ekki brjóta í bága við reglur um
auglýsingar heilbrigðisstétta.
„Landlæknir og heilbrigðisráðu-
neytið staðfestu við mig að okkur
bæri skylda að fræða almenning
um nýjungar í
faginu,“ segir
Elín.
Sigurjón Bene-
diktsson, formað-
ur Tannlæknafé-
lags Íslands,
segir uppákomur
sem þessar á
mjög gráu svæði
hvað varðar lof-
orð um bata og
lög um auglýsing-
ar innan heil-
brigðisstéttarinnar.
„Mér finnst þetta jaðra við
skrum. Í bæklingi sem fylgir þessu
er sagt að aðgerðin sé endanleg
lausn fyrir fólk en endanleg lausn
er ekki til í lækningum. Enginn
veit hvað gerist eftir tvo eða þrjá
daga hjá sjúklingnum. Ég tel að
kynningar sem þessar eigi að vera
lokaðar öðrum en tannlæknastétt-
inni,“ segir Sigurjón.
Hann segir hæfni tannlæknisins
ekki til umræðu heldur framsetn-
inguna. Einnig gildi viss lög um
auglýsingar heilbrigðisstétta og
þar sé uppákoman á mjög gráu
svæði.
Uppákoman jaðrar við skrum