Fréttablaðið - 11.05.2007, Blaðsíða 94

Fréttablaðið - 11.05.2007, Blaðsíða 94
Í sérflokki síðustu sumur Nokkur óvissa er um hvort hægt verði að spila hand- bolta í tveimur deildum næsta vetur. Til þess þurfa 14 félög að skrá sig til leiks en ef aðeins 13 lið tilkynna þátttöku verður að leika í aðeins einni deild samkvæmt lögum Handknattleikssambands- ins. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst er klárt að 12 lið boði þátttöku sína en nokkur óvissa er með önnur lið. Víkingur og Fjölnir hafa slit- ið samstarfi sínu en Víkingur ætlar engu að síður að senda lið til keppni rétt eins og Selfoss. Fylk- ismenn funduðu um framhaldið á miðvikudag og eru meiri líkur en minni á að félagið tefli fram liði. Það er þó ekki ákveðið. Forráða- menn Hattar telja aðeins 10 pró- sent líkur á að þeir verði næsta vetur. Ekki náðist í forráðamenn Gróttu til að spyrja um framhald- ið í gær. Þá standa eftir svokölluð B-lið félaganna en Haukar voru með B-lið í 1. deild í vetur undir nafn- inu Haukar 2. Forráðamenn ÍR eru á meðal þeirra sem vilja sjá eina deild enda telja þeir erfitt að reka félagið af þeim metnaði sem þeir vilja í 1. deildinni enda sér fé- lagið fram á að missa sína bestu menn fari svo að liðið leiki í næst- efstu deild eins og staðan er í dag. Björgvin Hólmgeirsson mun til að mynda ekki taka ákvörðun um framtíð sína fyrr en ljóst er hvort leikið verði í einni eða tveim deild- um. ÍR-ingar hafa falið lögfræðing- um að kanna réttmæti þess að lið 2 hjá félögum sé talið sem annað lið í deildakeppni. Þeir vilja ekki sætta sig við að það sé gert því þá geti stærri liðin rúllað inn þátttökutil- kynningum til HSÍ sem geri það að verkum að spilað verði í tveimur deildum. Umsóknarfrestur rennur út 20. maí næstkomandi. Ef 14 lið eða fleiri skrá sig til leiks þá verður spilað í tveimur deildum en ef ein- hver liðanna ganga síðan úr skaft- inu í sumar og fjöldi liða fer í 13 þá verður leikið í einni deild. „Metn- aður HSÍ liggur klárlega í því að spila áfram í tveimur deildum,“ segir Einar Þorvarðarson, fram- kvæmdastjóri sambandsins. „Það mun taka tíma að byggja upp sterkari deild og hugmyndin að deildaskiptingunni var að auð- velda nýjum liðum að koma inn. Það skiptir öllu máli að okkar mati að halda tveimur deildum gang- andi en við gerum okkur grein fyrir því að það fylgir ákveðinn sársauki í fyrstu skrefunum. Von- andi getum við haldið sextán liðum áfram og svo fjölgað í kjölfarið,“ sagði Einar. Það mun ráðast 20. maí næstkomandi hvort það verði ein eða tvær deildir í handboltanum á Íslandi. Óvissa er með þáttöku nokkurra liða en fjarvera þeirra gæti gert það að verkum að aðeins væri leikið í einni deild. Þáttaka 12 liða er örugg en 14 félög þarf svo hægt sé að spila í tveim deildum. Gísli Gíslason, formaður rekstrarstjórnar meistaraflokks karla í ÍA, segir að einhver bið sé enn á því að liðið verði styrkt með erlendum leikmönnum. Guðjón Þórðarson, þjálfari liðsins, hefur leitað víða að nýjum leikmönnum og fór meðal annars til Englands í þeim tilgangi. „Við erum vandlátir. Við viljum styrkja liðið en ekki bara stækka æfingahópinn,“ sagði Gísli við Fréttablaðið í gær. Enn bið eftir nýjum mönnum Einar Árni Jóhanns- son þjálfari mun í dag, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, skrifa undir samning um að taka að sér þjálfun Breiðabliks. Liðið missti af úrvalsdeildarsæti í vor en nú á að blása í herlúðra í Kópavoginum og koma liðinu á ný í hóp þeirra bestu. Pétur Hrafn Sigurðsson, for- maður körfuknattleiksdeildar Breiðabliks, staðfesti í gær að fé- lagið ætti í viðræðum við Einar Árna. „Þetta er ekki algerlega klárt, það á eftir að hnýta alla lausa enda,“ sagði Pétur. Sjálfur vildi Einar Árni ekki staðfesta þetta en hann sagði að hann hefði þegar neitað öðrum liðum. „Ég sagði nei við Skallagrím á mánudaginn og er ekki að fara að þjálfa í úrvalsdeildinni. Það voru þrjú önnur lið sem ég var að skoða, þar af eitt kvennalið. En ég reikna með því að þetta verði klárað á morgun,“ sagði Einar Árni í gær. Talið er að hann hafi einnig átt í viðræðum við Hauka um að taka að sér þjálfun karlaliðsins þar og kvennaliðsins í Grindavík. Pétur Hrafn segir að það yrði mikill fengur í Einari Árna. „Já, vissulega. Við yrðum mjög ánægð að fá hann til okkar.“ Einar Árni semur við Blika í dag Skrifað er um frammi- stöðu Íslands á Evrópumóti U-17 landsliða í Belgíu og fer greinar- höfundur lofsamlegum orðum um íslenska liðið. Hann segir að þrátt fyrir að íslenska liðið hafi ekkert stig fengið í mótinu hafi það það eitt að taka þátt verið mikið afrek fyrir þessa litlu þjóð. Ísland vann sér þátttökurétt í úrslitakeppninni í Belgíu með því að sigra í milliriðlakeppni sem fór fram í Portúgal. „Það er eftirtektarvert fyrir hvaða unglingalandslið sem er að ná jafntefli við Portúgal á útivelli en enn athyglisverðara að sigra núverandi titilhafa til að tryggja sér sæti í úrslitunum. Það er ótrúlegur árangur að komast 6-0 yfir gegn núverandi Evrópumeisturunum og ná svo að landa 6-5 sigri fyrir hvaða þjóð sem er, hvað þá þjóð með 300 þús- und íbúa.“ Þá segir greinarhöfundur að leikmenn eins og Kolbeinn Sig- þórsson, Hólmar Örn Eyjólfsson og Björn Jónsson hafi sýnt góða takta í leikjum íslenska liðsins sem og markverðirnir Vignir Jó- hannesson og Arnar Darri Pét- ursson. Lúkas Kostic sagði í viðtali í greininni að þessi reynsla myndi verða íslenskri knattspyrnu- hreyfingu dýrmæt. „Við munum nú fara heim og ræða við félög- in og þjálfarana. Við ætlum að reyna að koma á fót sérstöku verkefni og taka þátt í þessum mótum aftur. Við erum sífellt að læra og erum betri knattspyrnu- þjóð eftir þessa keppni,“ sagði Lúkas. Eftirminnileg frammistaða Íslands í Belgíu SMS LEIKUR V in n in g ar ve rð a af h en d ir h já B T Sm ár al in d . K ó p av o g i. M eð þ ví a ð t ak a þ át t er tu k o m in n í SM S kl ú b b. 9 9 kr /s ke yt ið . SENDU SMS JA GTF Á 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ BÍÓMIÐA! VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR, DVD MYNDIR, TÖLVULEIKIR OG MARGT FLEIRA! 9. HVER VINNUR! Frábær gamanmynd um strák og stelpu og stelpu og strák! Frumsýnd 11. maí
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.