Fréttablaðið - 11.05.2007, Blaðsíða 56
hús&heimili
1. Túlipanastóllinn eftir Finnann
Eero Saarinen (1910-1961). Saarinen
ólst frá þrettán ára aldri upp í Banda-
ríkjunum en lagði stund á listnám í
París og Yale í Bandaríkjunum. Árið
1937 hóf hann samstarf með öðrum
þekktum hönnuði, Charles Eames, en
sameiginleg húsgagnalína þeirra vakti
mikla athygli.
2. Tungustólar eftir Frakkann Pierre
Paulin. Stóllinn kom fyrst á markað
1967.
3. Ludwig Mies van der Rohe (1886-
1969) hannaði þennan stól úr krómi
og leðri. Mies van der Rohe fæddist í
Þýskalandi en bjó bróðurpart ævinnar í
Bandaríkjunum. Hann er álitinn braut-
ryðjandi nútíma arkitektúrs.
4. Kúamynstur prýðir setuna á
þessum stól eftir Ilmari Tapiovaara
(1914-1999). Hinn finnski Tapiovaara er
þekktastur fyrir húsgögn sín og textíl-
hönnun.
5. Garðstóll eftir ungverska hönn-
uðinn Peter Ghyczy (1940). Stóllinn
ber nafnið Eggið og var hannaður af
Ghyczy árið 1968. Hann var upphaflega
ætlaður sem garðhúsgagn en hægt er
að leggja bakið niður og þannig verður
stóllinn vatnsþéttur.
Fáðu þér sæti
3
2
4
5
1
Fáir nytjahlutir hafa orðið hönnuðum
oftar að viðfangsefni en stólar. Þessir
einföldu hlutir, sem gegna þó lykil-
hlutverki í daglegu lífi okkar, taka
á sig ýmsar listilegar furðu-
myndir í höndum hönnuða um
allan heim. Sumir stólar eru
hannaðir með þægindin í
huga en aðrir eru meira
fyrir augað en rassinn.
hönnun
WILLIAM MORRIS
(1834-1896) var enskur
listamaður, rithöfundur,
sósíalisti og aðgerðarsinni.
Hann var einn af stofnend-
um breska lista- og iðn-
sambandsins en er þó best
þekktur fyrir hönnun sína á
veggfóðri og textíl. Morris
stofnaði ásamt vinum
sínum, Dante Gabriel Ross-
etti, Edward Burne-Jones,
Ford Madox Brown og
Philip Webb, listamanna-
sambandið The Pre-
Raphaelite Brotherhood.
Morris og félagar hans vildu
að allir hefðu efni á list. Hér
má sjá tvenns konar vegg-
fóður úr smiðju Morris.
11. MAÍ 2007 FÖSTUDAGUR12