Fréttablaðið - 11.05.2007, Side 58
hús&heimili
Colombo sá fyrir sér að menn myndu
búa í alrýmum í framtíðinni eins og hér
sést þar sem eldhús, borðstofa og stofa
eru saman í einum pakka.
Æpandi litir eru áberandi í hönnun
Colombo, samanber húsakynnin Visiona
„habitat of the future“, sem hann gerði
árið 1969.
Á stuttum en glæstum ferli hann-
aði Ítalinn Joe Colombo (1930-
1971) ýmsar nýjungar, sem gerðu
hann um tíma að áhrifamesta
vöruhönnuði á Ítalíu eða þar til
hann lést um aldur fram úr hjarta-
áfalli.
Colombo byrjaði tiltölulega
seint að hanna, eða í kringum þrí-
tugt. Hann hafði upphaflega ætlað
sér að að verða málari og mynd-
höggvari, en hætti við þegar
hann fékk tækifæri til að innrétta
djassklúbb í Mílanó og innritaðist
í hönnunarnám við skólann Milan
Polytechnic undir lok sjötta ára-
tugarins.
Colombo var afkastamikill í
þann rúma áratug sem hann starf-
aði við hönnun og var upptekinn af
því að hanna húsgögn framan af.
Er fram liðu stundir fór hann að
innrétta vistarverur í framtíðar-
legum stíl.
Colombo taldi hlutverk sitt sem
hönnuðar að skapa framtíðar-
legt umhverfi. Húsgögn hans eru
ágætis vitnisburður um þá sann-
færingu og mætti í því samhengi
nefna Universale-stólinn frá árinu
1965, sem var eingöngu gerður úr
plasti, og vakti lukku þegar hann
var fjöldaframleiddur tveimur
árum síðar.
Hugmyndaflug Colombos virt-
ust engin takmörk sett og fyrr en
varði var hann farinn að hanna
heilu húsakynnin, sem minntu á
innvols geimskipa í vísindakvik-
myndum frá sjötta og sjöunda ára-
tugnum.
Alrýmin Visiona „habitat of
the future“ frá árinu 1969 og
Rotoliving system frá árinu 1970
eru nærtæk dæmi um ímyndunar-
afl Colombos. Hann hannaði þau
með þarfir og þægindi framtíð-
arfjölskyldunnar í huga, þar sem
plasthúsgögn, svefnhylki og loðin
teppi í æpandi litum voru fyrir-
ferðarmikil.
Colombo entist ekki aldur til að
sjá þegar síðasta hönnunarverk-
efni hans, Total Furnishing, var
afhjúpað á sýningunni The New
Domestic Landscape í MoMa í
New York 1972. Hönnuðurinn lést
á sjálfan afmælisdaginn sinn, 30.
júlí, aðeins 41 árs gamall.
roald@frettabladid.is
Um heima
og geima
Ítalinn Joe Colombo gat sér góðan orðstír fyrir hönnun
framtíðarlegra vistarvera.
Colombo taldi hlutverk sitt vera að
hanna fyrir framtíðina og eru sköpunar-
verk hans undir augljósum áhrifum frá
þeirri trú, samanber þetta eldhús.
Rotoliving system dregur dám af innvolsi geimskips
Barbarellu í samnefndri kvikmynd frá árinu 1968.
Þessi framtíðarlegi svefnklefi er hluti af Rotoliving system, húsa-
kynnum framtíðarfjölskyldunnar sem Colombo hannaði 1970.
BAKKAR koma ávallt
að góðum notum þegar
gesti ber að garði. Ekki
sakar að bakkarnir séu
fallegir eins og þessi
fagurlega skreytti egg-
laga bakki frá Habitat.
3.900 krónur.
hönnun
NÝ NOT FYRIR NAGLALAKK
Naglalakk hefur meira notagildi en margan
gæti grunað. Fyrir utan augljósan tilgang er hægt
að mála alla silfurlituðu lyklana á kippunni með
ólíkum tegundum naglalakks. Þetta er nefnileg fín
leið til að aðgreina lyklana og leggja síðan á minnið
hvaða litur gengur að hvaða hurð. Svo er líka
skemmtilegt að hafa lyklana í öllum regnbogans
litum, rauðum, grænum, svörtum og fjólubláum.
húsráð
TANNBURSTADODDI
geymir tannburstann þinn
þegar hann er ekki í notk-
un. Doddi er úr gúmmíi og
því lítið mál að þrífa þessa
skemmtilegu viðbót við bað-
herbergið. Doddi er til í Fríðu
frænku og kostar 800 krónur.
Verbúð 8 við Geirsgötu, 101 Reykjavík, Sími 553 1500Opið 7-21 alla daga vikunnar
G S æ g r e i f a n s
Humarsúpa
r i l l ve is l a
Fiskur á grillið
Hin fullkomna
humarsúpa
samkvæmt New York Times
11. MAÍ 2007 FÖSTUDAGUR14