Fréttablaðið - 11.05.2007, Page 64
BLS. 12 | sirkus | 11. MAÍ 2007
Brjóstin á útopnu
Jessica Simpson var að
sjálfsögðu mætt á
galakvöldið í kjól frá
Roberto Cavalli. Kjóllinn
var vel fleginn og fengu
brjóstin svo sannarlega
að njóta sín. Undanfarið hafa þau verið
meira áberandi en Jessica sjálf. John
Mayer, kærasti Jessicu, hlýtur alveg að
fíla þetta.
Ástfangin af módeli
Kate Bosworth er yfir sig ástfangin af
nýja kærastanum sínum James
Rousseau. Það fór ekki á milli mála hver
væri hennar maður á galakvöldinu. Þessi
sæta mynd náðist af mjög innilegri
stund.Bumbulínur á galakvöldi
Leikkonurnar Naomi Watts og
Salma Hayek létu ekki óléttuna
stöðva sig og mættu
stórglæsilegar á galakvöldið.
Watts geislaði í kjól frá Zac
Posen og greinilegt að
óléttan fer henni mjög vel.
Hayek mætti ásamt
unnusta sínum á
galakvöldið í kjól frá
Balenciaga. Salma
verður án efa
kynþokkafyllsta
mamman í
Hollywood.
E f það er eitthvert kvöld sem Hollywood-liðið vill alls ekki missa af þá er það
Costume Institute Gala sem
haldið er árlega í Metropolitan-
safninu í New York. Ef þú ert
alvörustjarna þá mætirðu
þangað. Aðalatriði kvöldsins er
að vera í flottasta kjólnum og
mæta með hönnuð upp á
arminn. Þetta er svo vinsælt
kvöld að mamma ársins í
Hollywood, Jennifer Garner,
skildi dóttur sína eftir hjá Ben
Affleck til að mæta og Sandra
Bullock lét einnig sjá sig þrátt
fyrir að einhver kolklikkuð kona
hafi nýverið reynt að drepa
mann hennar. Njótið kjólanna.
GALAKVÖLD ÁRSINS Í NEW YORK
EKKI SMART Kirsten
Dunst er nú yfirleitt
mjög töff týpa, en þessi
kjóll er ekki alveg að
gera sig. Nýi kærastinn
er samt sætur.
SKYLDUMÆTING!
SVAKA SKVÍSUR Stella
McCartney fékk að klæða
Scarlett Johansson og
Amber Valletta.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FLOTT
Renée
Zellweger
er engin
Bridget
Jones í
þessum
Carolina
Herrera-
kjól.
SÆTUST
Cameron Diaz
var ómótstæði-
leg í þessum
Christian Dior-
kjól.
HEITAR BLEIKAR
VARIR Christina
Ricci fer ekki
framhjá neinum
með þennan
bleika varalit.
Kjóllinn er frá
Calvin Klein.
STÓRGLÆSILEG
Sandra Bullock
hefur sjaldan
litið jafn vel út
og í þessum
Alberta Ferretti-
kjól. Hún lét sig
ekki vanta á
þetta stór-
skemmtilega
kvöld þótt hún
og maður
hennar séu enn
að jafna sig eftir
morðtilraun
sem hann varð
fyrir.