Fréttablaðið - 11.05.2007, Síða 96
Einn besti handknatt-
leiksmaður heims, Nikola Kar-
abatic, er gríðarlega eftirsóttur
þessa dagana.
Félag hans, Kiel, vill fram-
lengja samning hans við félagið
sem rennur út árið 2009. Það gæti
reynst erfitt þar sem spænsku
risarnir Ciudad Real og Barce-
lona vilja bæði fá þessa stórkost-
legu 23 ára skyttu í sínar raðir.
Þau geta boðið honum hærri laun
en Kiel og samkvæmt þýskum
fjölmiðlum er Ciudad tilbúið með
sex ára samning en Barcelona er
klárt með samning sem er eins
langur og Frakkinn vill.
Slegist um
Karabatic
Íslendingar hafa ekki
fagnað sigri í körfubolta karla á
Smáþjóðaleikunum síðan 1993. Í
ár fara leikarnir fram í Mónakó
og mun karlaliðið nú freista þess
að endurheimta gullið frá Kýpur-
liðinu sem hefur verið helsti and-
stæðingur liðsins á leikunum um
árin.
Sigurður Ingimundarson lands-
liðsþjálfari hefur valið 20 manna
æfingahóp en alls fara tólf leik-
menn á leikana. Þó býst hann við
því að nokkrir af sterkustu leik-
mönnum liðsins muni forfallast.
„Tímasetningin er ekki frá-
bær fyrir okkur,“ sagði Sigurð-
ur. „Margir okkar manna í Evrópu
eru enn að spila með sínum liðum.
Ég býst ekki við að Damon John-
son geti verið með og jafnvel ekki
Jón Arnór Stefánsson heldur. Ég
á von á því að hann verði í úrslit-
um ítölsku úrvalsdeildarinnar ein-
mitt þá.“
Snæfellingarnir Hlynur Bær-
ingsson og Sigurður Þorvaldsson
verða þó ekki með að þessu sinni.
„Hlynur er enn að jafna sig af
hnémeiðslum sínum en Sigurður
gaf ekki kost á sér vegna anna.“
Annars eru átta nýliðar í tut-
tugu manna æfingahópi Sigurðar
en æfingar hefjast nú um helgina.
„Það er nú kominn tími á sigur
á þessu móti enda ansi langt
síðan við unnum þetta mót síðast.
Yfirleitt höfum við lent í öðru sæti
á eftir Kýpverjum sem eru með
hörkulið sem er skemmtilegur
andstæðingur.“ Sigurður er nú að
fara á sína fyrstu Smáþjóðaleika
sem þjálfari en hann var leikmað-
ur í sigurliði Íslands árið 1991.
Hann hefur þó farið með landslið
kvenna á leikana.
Í haust heldur áfram Evrópu-
keppni B-þjóða en Sigurður segir
að leikarnir í Mónakó hafi lítið að
segja í undirbúningnum fyrir þá
leiki. „Tímasetning leikana hent-
ar ekki þannig að undirbúningur-
inn verði marktækur. Þetta verð-
ur allt skoðað upp á nýtt í haust og
hópurinn mun líta einhvern veg-
inn öðruvísi út, það er klárt.“
Hann hlakkar þó til Smáþjóða-
leikanna. „Það verður gaman að
koma til Mónakó og gaman fyrir
íþróttamennina að koma saman og
keppa í þessu móti.“
Smáþjóðaleikarnir hefjast í Mónakó fjórða júní næstkomandi. Sigurður Ingi-
mundarson, landsliðsþjálfari karla í körfubolta, hefur sett stefnuna á gullið.
Stefán Gíslason, leikmað-
ur Lyn, segir í samtali við Dags-
avisen í Noregi að hann vilji kom-
ast að í sterkari deild í öðru landi
í framtíðinni. Þess vegna hafi
hann ekki framlengt samning
sinn við Lyn. „Ég mun ákveða mig
eftir tímabilið og þá kemur þetta
allt í ljós,“ sagði hann.
Henning Berg, þjálfari liðsins,
sagðist skilja Stefán vel. „Ég vil
að leikmenn mínir séu metnaðar-
fullir og ef við getum fengið smá
aur í kassann fyrir þá er það ekki
verra.“
Vill komast í
sterkari deild
Freddy Shepherd, stjórn-
arformaður Newcastle, sagði
við fjölmiðla í gær að Michael
Owen þurfi að vera félaginu trúr.
Fregnir þess efnis að hann gæti
farið frá félaginu í sumar fyrir 10
milljónir punda hafa birst í ensk-
um fjölmiðlum undanfarið.
„Michael á tvo kosti. Annað
hvort kemur hann og segir stuðn-
ingsmönnum liðsins að hann sé
ánægður hér eða ég segi honum
að ekkert fjögurra stórliðanna
hafi áhuga á honum. Því það er
tilfellið,“ sagði Shepherd.
Owen hefur spilað 13 leiki síðan
hann kom til Newcastle fyrir
tveimur árum fyrir 17 milljónir
punda.
Owen þarf að
vera okkur trúr
Dave Whelan, eigandi
Wigan, vill að stjórn ensku úr-
valsdeildarinnar framreiði fleiri
sönnunargögn þess efnis að
Carlos Tevez hafi mátt spila með
West Ham gegn Wigan í botnslag
liðanna. West Ham vann, 3-0,
og Tevez gegndi lykilhlutverki í
leiknum.
West Ham var sektað um 5,5
milljónir punda fyrir brot á
félagaskiptareglum en mun hafa
rift ólöglega samningnum við
Tevez og samið við hann upp á
nýtt. Whelan efast þó um það.
„Samningnum þarf væntan-
lega að segja upp af hálfu beggja
aðila,“ sagði Whelan og bætti við
að hann vildi sjá sannanir þess
efnis að nýr samningur hafi legið
fyrir áður en leikur liðanna var
háður þann 28. apríl.
Vilja sjá meiri
sönnunargögn
Þetta einstaka tilboðsfargjald
gildir til allra áfangastaða
Flugfélags Íslands innanlands
er fyrir börn 2 – 11 ára í fylgd
með fullorðnum og í sömu bókun
bókanlegt frá 11. maí
ferðatímabil 15. – 31. maí
býðst eingöngu þegar bókað er
á netinu, www.flugfelag.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/ F
LU
37
57
0
05
/0
7
1 kr. aðra leiðina + 489 kr.
(flugvallarskattur)
Aðeins 1 króna fyrir börnin
www.flugfelag.is | 570 3030