Fréttablaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 19
Kristlaug María Sigurðardóttir rithöfundur féll fyrir gamalli kirkju í vinnuferð um Tallinn. „Ég fór til Tallinn til að kynna mér nýjungar í teiknimyndagerð fyrir íslenska sjónvarpsþáttaseríu og kvikmynd um Ávaxtakörfuna sem ég er að vinna að og verður sýnd á næsta ári,“ segir Kristlaug María Sigurðardóttir rithöfundur. Kristlaug hafði aldrei heimsótt borgina áður og notaði því tæki- færið til að skoða sig um þegar tækifæri gafst. „Ég tók einn túr- istadag og gekk um borgina þvera og endilanga. Gamli borgarhlut- inn er rosalega fallegur og heill- andi. Svo fannst mér rússablokk- irnar mjög athyglisverðar og gisti einmitt í einni slíkri hjá vinkonu minni.“ Kristlaug segir margt áhuga- vert hafa borið fyrir augu, en gömul rússnesk rétttrúnaðarkirkja hafi þó verið einna tilkomumest. „Kirkjan heitir Alexander Nevsky dómkirkjan og er merkileg fyrir margra hluta sakir, meðal annars þá staðreynd að Rússar ákváðu að hlífa gamla hluta hennar þegar þeir sprengdu Tallinn í tætlur í seinni heimsstyrjöldinni. Hefði kirkjunn- ar ekki notið við væri gamli bær- inn því líklegast ekki til í dag.“ Kristlaug mælir hikstalaust með að fólk kíki í kirkjuna eigi það leið um Tallinn og fari þá helst í messu, sem er um sexleytið. „Ég fór í kirkj- una um það leyti og fannst upplif- unin mögnuð. Þarna þuldi prest- ur bænir á rússnesku og sveifl- aði reykelsi á meðan. Ég skildi því miður ekki hvað hann sagði, en af látbragðinu að dæma gat ég mér nú til að það væri trúarlegs eðlis,“ segir hún hlæjandi og bætir við að þótt innihaldið hafi ekki allt kom- ist til skila hafi hún notið hverrar mínútu. Hvað upprunalegan tilgang ferð- arinnar varðar segist Kristlaug hafa komið heim reynslunni ríkari eftir heimsóknina í teiknimynda- fyrirtækið. „Til dæmis verða teikn- aðir bakgrunnar í myndinni um Ávaxtakörfuna, sem verður leikin kvikmynd í fullri lengd og byggð á söngleiknum. Ég hvet bara sem flesta að heimsækja borgina. Þarna er einstaklega ódýrt og alveg yndis- legt að vera.“ Trúarstef og teikni- myndagerð í Tallinn Fagmenntaðir kayak kennarar og leiðsögumenn KAUPMANNAHÖFN – LA VILLA Heimagisting á besta stað í bænum. Býður alla Íslendinga velkomna. Geymið auglýsinguna. www.lavilla.dk. S.0045 3297 5530. GSM. 0045 2848 8905 Skráning á sumarnámskeið Hraðlestrarskólans er hafin á www.h.is og í síma 586-9400 Hvað segja nemendur okkar um námskeiðið: Frábært, markvisst, hnitmiðað, æviábyrgð, nytsamlegt, krefjandi, skemmtilegt, mjög gott, skipulagning, einbeiting, jákvæðni, mikil aðstoð, góður kennari, spennandi, árangursríkt, hvetjandi, góð þjónusta. Náðu forskoti með okkur í sumar! “Snilldarnámskeið..kom skemmtilega á óvart hversu miklum hraða ég náði.” Guðbjörg Jónsdóttir, 40 ára Framhaldsskólakennari. “Loksins sé ég fram á það að geta klárað lesbækur fyrir próf” Elín Björk Jónsdóttir, 15 ára nemi. “Ég sexfaldaði lestrarhraða minn á 3 vikum! Frábært!” Guðjón Bergmann, 34 ára rithöfundur, f yrirlesari og jógakennari. “Ykkur að þakka mun ég rúlla upp samræmdu prófunum.” Jökull Torfason, 15 ára nemi. “Þetta mun nýtast mér alla ævi.” Jóhanna Helga, 15 ára grunnskólanemi. “...á eftir að spara mér hellings tíma af námsbókalestri.” Ragna Björk Ólafsdóttir, 17 ára nemi og golfari.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.