Fréttablaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 58
Það er þungt yfir KR-
ingum þessa dagana. Liðið situr
eitt í botnsæti Landsbankadeild-
arinnar með eitt stig eftir fjóra
leiki og þar af eru þrír leikjanna
heimaleikir.
Þetta er versta byrjun KR í
deildinni síðan árið 1977 en þá féll
liðið úr efstu deild í fyrsta og eina
skiptið. 1977 var líka fyrsta árið
sem tíu lið tóku þátt í efstu deild.
Þá féllu tvö lið og KR varð í níunda
sæti en aðeins eitt lið fellur í ár.
Árið 1977 var KR með marka-
töluna 1-5 eftir fjóra leiki en í dag
er hún 4-7. KR hefur aðeins náð í
8,3 prósent stiga í boði og ef sagan
er skoðuð eru miklar líkur á því að
Teitur Þórðarson klári ekki tíma-
bilið.
„Við erum ekki að fara á taugum.
Staðan er vissulega ekki góð en
við munum nýta tímann vel fram
að næsta leik til að byggja okkur
upp. Við mætum svo tvíefldir til
leiks og sjáum hver lokaniðurstað-
an verður í mótinu,“ sagði Jónas
Kristinsson, formaður KR Sports,
við Fréttablaðið. En hvað með
stöðu Teits Þórðarsonar? „Það er
ekki tímabært að ræða þau mál á
þessum tímapunkti.“
Við erum ekki að fara á taugum
• Mótið er 18 holu punktamót.
• Glæsileg verðlaun fyrir 6 efstu sætin.
• Nándarverðlaun á öllum par 3 holum
(4 holur).
• Verðlaun fyrir lengsta drive á 4. braut
karlar/konur.
• Dregið verður úr skorkortum viðstaddra
í mótslok.
• Mótsgjald 3.700 kr.
• Skráning á www.golf.is og í síma
486 4495.
Kiðjabergi laugardaginn 2. júní
Opna
Húsasmiðju
Golfmótið
Eins og í Hollywood-mynd
FH er á góðri leið með
að stinga af í Landsbankadeildinni
eina ferðina enn eftir góðan 0-2
sigur á Fram í Laugardalnum í gær.
FH-ingar voru ekki upp á sitt besta
gegn Fram í gær en fóru samt heim
með þrjú stig enda nýta þeir færin
sín vel ólíkt andstæðingunum.
Það gerðu ekki margir ráð fyrir
því að Fram myndi veita FH ein-
hverja keppni í leiknum og nánast
búið að setja þrjú stig á FH á töfl-
unni. Umræðan virðist hafa kveikt
í Frömurum, sem mættu mjög vel
stemmdir til leiks og voru betri að-
ilinn í fyrri hálfleik.
Þeir réðu ferðinni á miðjunni
lengstum og tókst nokkrum sinn-
um að opna vörn FH-inga laglega
en FH-vörnin var óvenju brothætt
og leikmenn í litlum takti hver við
annan.
Ekki tókst Frömurum að nýta
færin og þeir máttu síðan þakka
fyrir að lenda ekki undir þegar FH-
ingar loksins vöknuðu undir lokin
og áttu nokkrar laglegar sóknir.
Það er ekkert lát á yfirburðum FH í Landsbankadeildinni en meistararnir eru
með fullt hús og fjögurra stiga forystu eftir fyrstu fjórar umferðirnar.
FH-ingar mættu betur stemmd-
ir til síðari hálfleiks og Matthías
kom þeim yfir með laglegu marki í
upphafi hálfleiksins. Hjálmar fékk
dauðafæri skömmu síðar en skaut
framhjá en Hjálmar fór ákaflega
illa með færin sín í leiknum.
Það fjaraði undan leiknum þegar
um hálftími lifði leiks. Þegar leik-
tíminn var að renna út komst Atli
Guðnason einn í gegn, Reynir braut
á honum og réttilega dæmd víta-
spyrna. Úr henni skoraði Tryggvi af
öryggi.
„Hlutirnir eru að detta fyrir mig
og ég er sáttur en þó aðallega við
stigin þrjú,“ sagði Matthías Guð-
mundsson sem var að skora í sínum
fjórða leik í röð. „Baráttan er ekki
búin og við hlustum ekkert á slíkt
kjaftæði. Við mættum hér góðu
Framliði í dag sem á hrós skilið
fyrir góðan leik.“
Leikurinn í gær var hugsanlega
sá slakasti hjá FH-ingum í sumar
en þeir vinna samt enda nýta fá
lið færin sín jafn vel og þeir refsa
öllum liðum grimmilega sem ekki
nýta sín tækifæri.
Framarar sýndu verulega góða
spretti á köflum í gær þar sem Al-
exander Steen fór mikinn lengi vel
og sá til þess að glufur komu á FH-
vörnina. Félagar hans nýttu ekki
færin og þá er ekki von á góðu.
„Þetta er okkar saga hingað til.
Við erum betra liðið en skorum ekki
mörk. Við verðum að finna lausn á
þessu. Annar vandi er að við erum
að fá of ódýr mörk á okkur og þessa
hluti verðum við að laga,“ sagði Ól-
afur Þórðarson.