Fréttablaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 24
 30. MAÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR6 fréttablaðið bjartir dagar Marín Hrafnsdóttir er menningar- og ferðamálafulltrúi Hafnar- fjarðar. Hún hefur tekið þátt í að skapa Bjarta daga frá byrjun og segir tilgang hátíðarinnar helst vera að efla menningarlíf og vekja athygli á þeirri miklu list- sköpun sem á sér stað í bænum og á hafnfirskum listamönnum. „Hátíðin skilar blómlegu menningarlífi í bænum enda virkjum við ótrúlega marga til þátttöku,“ segir Marín og nefnir þar leikskólana, grunnskól- ana, unglingana og eldri borg- ara. „Fyrir unga fólkið erum við með menningarhús en þar erum við líka svolítið í uppeldisleg- um stellingum því unga fólkið skipuleggur sína dagskrá sjálft. Það þarf að sjá til þess að hún gangi upp, fjárhagslega og að umfangi. Það er ekki nóg fyrir þau að koma til okkar og segja að þau langi að halda tónleika heldur verða þau að láta dæmið ganga upp,“ bætir Marín við og segir hátíðina einnig til þess fallna að vekja athygli á menn- ingarstofnunum bæjarins. Marín segir að þótt þorri lista- manna hátíðarinnar séu heima- menn þá dragi þau einnig til sín list annars staðar frá til að bjóða Hafnfirðingum upp á ýmislegt af því besta sem er að gerast í tónleikum, myndlist, danslist og öðru. „Svo er ekki leiðinlegt að segja frá því að Þjóðahátíð er núna hluti af Björtum dögum og þannig tökum við enn frekar utan um það að vera fjölmenningar- leg hátíð,“ segir Marín ánægð og bætir því við að fyrstu skrefin í þá átt hafi verið stigin í fyrra þegar sérstakur fjölmenningar- dagur var hluti af hátíðinni. Spurð hvernig þátttakan hefur verið á Björtum dögum undan- farin ár, segir Marín: „Nú er há- tíðin haldin í fimmta sinn og þátt- takan hefur verið vaxandi. Þegar svona margir taka þátt í að skapa viðburðinn þá er þátttakan góð. Síðan höfum vð verið með mjög fjölbreytta dagskrá og haft það að markmiði að það sé mikið af viðburðum þar sem er ekki að- gangseyrir. Það má því segja að það sé ákveðið einkenni á Björt- um dögum að við bjóðum upp á ókeypis tónleika, danssýningar og fleiri viðburði.“ Marín segist vona að sem flestir taki þátt og að dagskráin sé þannig að allir finni eitthvað við sitt hæfi. „Við reynum að koma til móts við alla og það er mikil jákvæðni gagnvart þess- ari hátíð. Hún er á skemmtileg- um tíma þegar fólk er að byrja að kveikja á því að það sé komið sumar en við erum samt ekki búin að missa það út úr bænum,“ segir Marín og brosir. - sig Hátíðin skilar blómlegu menningarlífi Marín Hrafnsdóttir er menningar- og ferðamálafulltrúi Hafnarfjarðar. Hún segir dagskrá Bjartra daga setta upp með það í huga að allir eigi að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Jaðarleikhúsið frumsýnir Super- hero á Björtum dögum. Super- hero er fimmta verk leikhússins en um dramatískan og súrrealísk- an gamaleik er að ræða. Fyrir um einu og hálfu ári stofn- aði Eyrún Ósk Jónsdóttir Jaðar- leikhúsið. Leikhúsið er í Miðvangi í Hafnarfirði þar sem rekin er til- rauna- og listasmiðja. „Við setj- um upp lítil og ódýr leikverk þar sem ungum listamönnum er gef- inn kostur á að gera tilraunir,“ segir Eyrún. „Við höfum sett upp um fjögur verk á þessu eina og hálfa ári sem við höfum starfað og nú munum við frumsýna það fimmta. Ásamt því að sýna leik- verk eru líka myndlistarsýning- ar í rýminu og núna er til dæmis sýning á pennateikningum Brynju Árnadóttur.“ Stofnun sjálfstæðs leikhóps var lengi draumur Eyrúnar en hún starfaði með einum slíkum á námsárum sínum í London. „Hann heitir Dan Kai Teatro og þar fékk ég tækifærið að gera það sem mig langaði og prófa mig áfram,“ segir Eyrún. „Þegar ég kom hing- að aftur fann ég að það vantaði rými fyrir unga listamenn til að gera nákvæmlega það án þess að það kostaði margar milljónir og án þess að sækja þyrfti um endalausa styrki frá menntamálaráðuneyti.“ Í öllum leikverkum Jaðarleik- hússins er kostnaði haldið í lág- marki enda þurfa verkin að standa undir sér. Reyndar er umgjörðin ekki það eina ódýra í leikhúsinu heldur er miðaverði haldið í lág- marki. Á Superhero kostar til að mynda aðeins 600 krónur. Superhero er einleikur eftir Eyrúnu og hefur hún fengið skóla- bróður sinn Erik Håkansson til að leika. Leikritið fjallar um ungan mann sem stendur frammi fyrir mjög erfiðum aðstæðum sem hann getur ekki leyst. Þá leitar hann til ofurhetjanna eftir hjálp, en þeim kynntist hann gegnum hasarblöð- in þegar hann var ungur. „Þetta er svona dramatískur og súrreal- ískur gamanleikur,“ segir Eyrún. „Við frumsýnum 1. júní og sýnum á Björtum dögum eða 2., 5, og 8. júní.“ Af þeim fimm verkum sem Jaðarleikhúsið hefur sett á svið hafa þrjú verið á ensku, þar með talið Superhero. Þetta er vegna sterkra tengsla við Dan Kai Teatro en þaðan hafa leikarar komið og tekið þátt í sýningum Jaðarleik- hússins. „Það er bæði vegna þess að ég var partur af hópnum úti og líka einfaldlega vegna þess að þá fæ ég fjármagn hjá þeim og það hjálpar okkur að til að setja upp verkin,“ segir Eyrún og hlær. Hægt er að panta miða á Super- hero í síma 846-1351 eða á jadar- leikhusid@hotmail.com. tryggvi@frettabladid.is Ofurhetjur í Jaðarleikhúsinu Erik í hlutverki sínu í Superhero. Hann leikur ráðvilltan ungan mann sem leitar til ofurhetja barnæsku sinnar eftir leiðsögn og aðstoð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Leikskólabörn eiga stóran þátt í Björtum dögum og skreyta fyrirtæki og stofnanir í Hafn- arfirði með verkum sínum. Þá verða ljóð 6. bekkinga víða um bæinn og 4. bekkingar taka þátt í samsöng á Thorsplani undir heit- inu Söngurinn ómar um bæinn. Afrakstur litla listafólksins má sjá á eftirtöldum stöðum: ARNARBERG - Bókasafn Hafnarfjarðar ÁLFABERG - HB búðin ÁLFASTEINN - Þjónustuverið HJALLI - Heilsugæslan miðbæ HLÍÐARBERG - Fjarðarkaup HLÍÐARENDI - Heilsugæslan Sólvangi HVAMMUR - Suðurbæjarlaug HRAUNVALLASKÓLI - Hraunvallaskóli, leik- og grunnskóli HÖRÐUVELLIR - Fjörður 1. hæð KATÓ - St. Jósepsspítali NORÐURBERG - Bæjarskrifstofur SMÁRALUNDUR - Kænan STEKKJARÁS - Skólaskrifstofa TJARNARÁS - Landsbankinn VESTURKOT - Fjörður 2. hæð VÍÐIVELLIR - Samkaup Leikskólalist í hávegum höfð Teikningar eftir leikskólabörn verða til sýnis á mörgum stöðum í bænum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.