Fréttablaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 30
30. MAÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR12 fréttablaðið bjartir dagar
Þjóðahátíð verður haldin
hátíðleg á Björtum dögum í
Hafnarfirði. Kolfinna Baldvins-
dóttir er verkefnastjóri hátíðar-
innar.
Síðustu ár hefur verið lögð
áhersla á fjölmenningu á
Björtum dögum. Þjóðahátíðin
verður nú haldin í fjórða sinn
í íþróttahúsinu í Hafnarfirði
við Strandgötu frá kl. 12 til 18
laugardaginn 2. júní. Í fyrra var
hátíðin haldin í gamla Blóma-
vali en um fjörutíu þátttakendur
frá ólíkum löndum kynntu lönd
sín og þjóðir með ýmsum hætti.
Höfuðskipuleggjandi hátíðar-
innar er Alþjóðahúsið en verk-
efnastjóri þetta árið er Kolfinna
Baldvinsdóttir.
„Þjóðahátíðin hefur sömu
merkingu og venjuleg þjóðhátíð
en lögð er áhersla á fjölbreyti-
leika og sameiningu í senn.
Þjóðahátíðin felur í sér að þar
koma saman öll þau þjóðabrot
sem búa á Íslandi og kynna sín
lönd og gera sér glaðan dag. Á
Íslandi býr fólk af um 132 þjóð-
ernum en á hátíðinni verða um
40 lönd með bása til að kynna
sig og sína. Sumir gera það með
mat, aðrir gera það með dansi og
tónlist og fleiru en síðan verður
haldið uppi fjöri allan daginn.
Þar á meðal eru ýmiss konar
skemmtiatriði sem eru kannski
ekki eins og við eigum að venjast
þar sem skemmtikraftarnir eru
alls staðar að úr heiminum. Þetta
er fólk frá Afríku, Asíu, Suður-
Asíu, Evrópu og víðar þannig að
fjölbreytnin er mikil. Þarna geta
því Íslendingar komið og kynnst
„þessu fólki“ eins og okkur er
oft tamt að kalla innflytjendur
og fengið að upplifa í senn fjöl-
breytnina en líka hvað við eigum
margt sameiginlegt.“
Hátíðin verður opnuð form-
lega og verða þar ráðherrar og
bæjarstjóri en heiðursgestir
þetta árið eru Toshiki Toma,
prestur innflytjenda, sem flutti
hingað til lands frá Japan, og
Gérard Lemarquis, kennari og
leikari, sem er franskur að upp-
runa. Þeir hafa báðir búið á Ís-
landi í fjölda ára og eru þekktir
í þjóðlífinu. Við opnunina munu
kórar syngja og má þar nefna
Regnbogakonur sem er kór
kvenna frá ýmsum heimshorn-
um. Mikið verður um þjóð-
dansa og þjóðlagatónlist og
fram koma þekktir flytjend-
ur eins Balkanbandið sem kom
fram með Björk, Tríó Leone
Tinganelli, Delizie Italiane og
Sigurður Hall og Sigurlaug M.
Jónasdóttir munu dæma þann
mat sem verður á boðstólum.
Það mun því kenna ýmissa grasa
á Þjóðahátíð og hvetur Kolfinna
sem flesta til að koma við og
gera sér glaðan dag.
„Því miður hefur innflytj-
endaumræðan hallast svolítið á
neikvæðu hliðina upp á síðkast-
ið og því er mikilvægt að halda
hátíð sem þessa til að fólk geti
komið og upplifað hvað það er í
raun mikil gleði að búa í svona
fjölbreyttum heimi og á svona
fjölbreyttri eyju.“ - hs
Sameinuð en fjölbreytt
„Lögð verður áhersla á fjölbreytileika og sameiningu í senn,“ segir Kolfinna Baldvinsdóttir, verkefnastjóri Þjóðahátíðarinnar.
Mikil gleði ríkir á Þjóðahátíð og verður að öllum líkindum
stiginn dans.
Um fjörutíu lönd verða með kynningarbása á hátíðinni.
Firði Hafnarfirði S: 555-4420
Text
Full búð
af nýjum
vörum og ýmis
spennandi
tilboð
Firðinum, Hafnarfirði