Fréttablaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 21
Hægt er að sækja um störf hjá Alcoa Fjarðaáli á capacent.is (áður IMG-Mannafl). Nánari upplýsingar fást á www.alcoa.is og hjá Sigurlaugu Þorsteinsdóttur (sigurlaug.thorsteinsdottir@capacent.is) og Guðlaugi Arnarsyni (gudlaugur.arnarson@capacent.is) hjá Capacent í síma 540 1000. www.alcoa.is Fjölbreytt og örugg störf Starfsmenn Fjarðaáls er nú orðnir um 300 og álframleiðsla er hafin. Okkur vantar fleiri starfsmenn í álframleiðslu og málmvinnslu. Verkefni hvers starfsmanns eru fjölbreytt. Störfin felast meðal annars í stjórnun tækja og framleiðslu- kerfa í tæknivæddu umhverfi. Mikil áhersla er lögð á öryggi og góða umgengni. Góð launakjör Unnið er á vöktum í sjálfstýrðum teymum. Laun eru greidd samkvæmt vinnustaðarsamningi Alcoa Fjarðaáls og Afls - Starfsgreinafélags Austurlands. Samninginn er hægt er að nálgast á alcoa.is. Boðið er upp á akstur til og frá vinnu og eina heita máltíð á dag. Þjálfun og starfsþróun Til framleiðslustarfsmanna eru ekki gerðar ákveðnar kröfur um menntun eða kunnáttu. Allir fá viðamikla þjálfun og fræðslu í fyrirtækinu. Mikið er lagt upp úr starfsþróun og símenntun. Jafnrétti og velferð Fjarðaál á að styðja öflugt og fjölskylduvænt samfélag. Stefnt er að jöfnu kynjahlutfalli og góðri aldursdreifingu starfsmanna. Álverið er hannað þannig að öll störf henti jafnt konum sem körlum. Konur er nú um þriðjungur starfsmanna Fjarðaáls. Starfsmenn fá líkamsræktarstyrk og hafa aðgang að öflugri velferðarþjónustu. ÍS L E N S K A S IA .I S A L C 3 78 27 0 5. 20 07 Á Mið-Austurlandi er að myndast öflugur byggðaklasi í skjóli einstakrar náttúru. Hátt í þúsund ný framtíðarstörf bjóðast fólki með margs konar menntun og reynslu. Sveitarfélögin á Mið-Austurlandi hafa kostað kapps um að styrkja innviði samfélagsins og hundruð nýrra íbúðarhúsa eru að rísa. Fjarðaál aðstoðar þá starfsmenn sem flytjast inn á svæðið. Umsóknarfrestur er til 3. júní. Viðkomandi munu hefja störf á næstu fimm mánuðum. Síðustu framleiðslustörfin í boði

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.