Fréttablaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 2
MARKAÐURINN 30. MAÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR2
F R É T T I R
G E N G I S Þ R Ó U N
Vika Frá áramótum
365 4% -19%
Actavis -2% 31%
Alfesca 4% 3%
Atlantic Petroleum 32% 127%
Atorka Group 1% 18%
Bakkavör 2% 15%
FL Group 1% 15%
Glitnir 2% 18%
Hf. Eimskipafélagið 7% 27%
Kaupþing 1% 32%
Landsbankinn 1% 41%
Marel 1% 10%
Mosaic Fashions -1% 10%
Straumur 0% 22%
Össur -1% -2%
Miðað við gengi í Kauphöll á mánudaginn
Kaupfélag Suðurnesja á nú tæp-
lega tíu prósenta hlut í öllu stofn-
fé Sparisjóðsins í Keflavík eftir
að félagið festi kaup á 0,8 pró-
sentum stofnfjár. Allur hlutur
Kaupfélagsins er metinn á 2,6
milljarða króna.
Jafnframt hafa tveir stjórn-
armenn í SpKef, þeir Guðjón P.
Stefánsson og Kristinn Jónasson,
fest kaup á stofnfjárbréfum í
sjóðnum.
Auk kaupfélagsins fer lífeyris-
sjóðurinn Festa einnig með um tíu
prósent stofnfjár í SpKef. - eþa
Innherjar
kaupa í SpKefAlexander K. Guðmundsson,
forstöðumaður Glitnis í Noregi,
hefur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri Fjármálasviðs Glitnis.
Á sama tíma var Gísli Heim-
isson ráðinn framkvæmdastjóri
rekstrarsviðs bankans. Ráðning-
ar þeirra taka gildi frá og með
föstudegi. Þeir taka við af Tóm-
asi Kristjánssyni og Finni Reyr
Stefánssyni, sem hafa stofn-
að fjárfestinga- og fasteignafé-
lagið Siglu ehf í félagi við Þor-
gils Óttar Mathiesen. Félagið til-
kynnti í gær að það muni kaupa
fasteignafélagið Klasa hf. af Þor-
gils.
Alexander þekkir flesta
innviði bankans en hann
hóf störf hjá Fjárfestinga-
banka atvinnulífsins, for-
vera Glitnis, árið 1998 og
hefur verið næstráðandi
í uppbyggingu bankans í
Noregi frá árinu 2005.
Alexander gerir er ekki
ráð fyrir miklum breyt-
ingum með nýjum manni á
fjármálasviði Glitnis. „Ég
tek við mjög góðu búi og
held að við höfum skap-
að okkur skemmtilegan og
spennandi grunn, bæði hér
heima og í Skandinavíu,“ segir
hann og hnýtir við að
bankinn muni halda
áfram að nýta betur
stöðu sína í þeim lönd-
um þar sem hann hefur
starfsemi.
Alexander reiknar
með að ljúka nokkrum
verkum hjá Glitni í Nor-
egi fram í ágúst áður
en hann getur alfar-
ið tekið við nýja starf-
inu og gerir ráð fyrir
því að flytja hingað til
lands ásamt eiginkonu
sinni og þremur börn-
um þeirra á haustdögum. - jab
Nýr framkvæmdastjóri hjá Glitni
Frá áramótum hefur
virði hlutabréfa fær-
eyska olíuleitar-
félagsins Atlantic
Petroleum aukist um
rúm 170 prósent. Fé-
lagið er skráð bæði í
kauphöllina hér og í
Kaupmannahöfn.
Greiningardeildir
banka hér hafa lítinn
gaum gefið Atlantic
Petroleum og hafa
ekki á reiðum höndum skýring-
ar á hækkuninni. Viðskipti með
bréfin virðast mest í Færeyjum
og Danmörku.
Jákup Petur Bærentsen, sér-
fræðingur greiningardeildar
Kaupþings í Færeyjum, segir
engar fréttir frá félaginu geta
skýrt hækkun bréfanna, sem er
næstum tvöföld á hálfum mán-
uði. Í byrjun árs stóð
gengi bréfanna í 570
og í 820 fyrir tveim-
ur vikum. Í gær voru
viðskipti með bréfin á
genginu 1.500.
„Í ársfjórðungsupp-
gjörinu voru engar
sérstakar fréttir. Í lok
árs á félagið reyndar
að fá sínar fyrstu tekj-
ur af olíuvinnslu, en
það skýrir ekki þessa
miklu hækkun,“ segir Jákup, en
bendir um leið á að megnið af
viðskiptunum hafi átt sér stað í
Danmörku þar sem félagið hafi
fengið mjög jákvæða umfjöllun
í viðskiptaritinu Penge & Priva-
tøkonomi. „Mestmegnis eru þetta
fremur smáar færslur en nokk-
uð margar og nægja til að toga
gengi bréfanna í þessa átt.“ - óká
Virði bréfa Atlantic
Petroleum margfaldast
Skeljungur gekk í gær frá kaup-
um á færeyska olíufélaginu P/
F Føroya Shell, sem verið hefur
í eigu Shell International Pet-
roleum Company Limited. Kaup-
verð er trúnaðarmál.
Hakun Djurhuss, forstjóri P/
F Føroya Shell, sagði starfi sínu
lausu í síðustu viku og leitar
Skeljungur nú eftirmanns hans.
Í tilkynningu frá Skeljungi
kemur fram að félagið muni
taka yfir alla starfsemi P/F Før-
oya Shell, sem samanstendur
af 10 þjónustustöðvum, tveim-
ur birgðastöðvum, 13 olíuflutn-
ingabifreiðum og olíuflutninga-
skipinu Hjá félaginu, sem fagn-
ar 82 ára starfsafmæli á þessu
ári, starfa um 100 manns. Hagn-
aður félagsins á síðasta ári nam
jafnvirði um 175 milljónum ís-
lenskra króna.
Til samanburðar rekur
Skeljungur hér 60 útsölustaði og
15 birgðastöðvar um allt land.
Hjá Skeljungi, sem er tveimur
árum yngra en færeyska olíufé-
lagið, starfa 300 manns.
Starfsemi Skeljungs í Færeyj-
um verður áfram rekin undir
vörumerki Shell með sama hætti
og hér á landi, að þvi er segir í til-
kynningunni. - jab
Skeljungur kaupir
P/F Føroya Shell
Hólmfríður Helga Sigurðardóttir
skrifar
William Fall hefur tekið við forstjórastöðu Straums-
Burðaráss. Friðrik Jóhannsson yfirgefur forstjóra-
stólinn eftir tæplega ársstarf hjá bankanum. Willi-
am er fyrrum forstjóri Alþjóðasviðs Bank of Am-
erica sem er næststærsti banki í heimi. Hann lét af
störfum þar af persónulegum ástæðum fyrir um ári
síðan. Hann var að hugsa sér til hreyfings á ný þegar
sameiginlegur vinur kynnti hann þá Björgólf Thor
Björgólfsson, stjórnarformann Straums-Burðaráss.
William telur Straum-Burðarás hafa raunhæfan
möguleika á að ná takmörkum sínum um að verða
leiðandi fjárfestingabanki á Norðurlöndunum. Það
verði þó ekki auðvelt. „Við þurfum að vaxa hratt og
ná fótfestu á mörkuðum þar sem bankinn er veik-
ur fyrir í dag. Þá er vöruúrval okkar enn þá ekki
nægilega gott.“ Meðal annars verði aukið vægi lagt
í skuldsetta fjármögn, fjárfestingar í óskráðum fé-
lögum og verðbréfamiðlun. William segir Straum-
Burðarás hafa ýmsa yfirburði fram yfir aðra fjár-
festingarbanka. „Enginn af okkar helstu samkeppn-
isaðilum hefur eins góðan eiginfjárgrunn og við. Það
gefur okkur sveigjanleika til að stökkva á þau tæki-
færi sem upp kunna að koma.“
Björgólfur Thor Björgólfsson boðaði til blaða-
mannafundar í gær þar sem tilkynnt var um for-
stjóraskiptin. Við það tækifæri var hann spurður
hvort höfuðstöðvar bankans verði áfram á Íslandi.
„Við erum skráð í íslensku kauphöllina og upp-
spretta fjármagns okkar er hér. Við viljum beita því
fjármagni í auknum mæli utan Íslands. En höfuð-
stöðvarnar verða hér áfram.“ Við það bætti William
að ætlun bankans væri að byggja á íslenskum grunni
bankans. Hann hyggst þó ekki flytja sjálfur til Ís-
lands og verður áfram búsettur í London. Hann seg-
ist þó muni eyða drjúgum tíma hér á landi.
Friðrik Jóhannsson, fráfarandi forstjóri Straums-
Burðaráss, mun starfa við hlið Williams á næstu
mánuðum til að tryggja að forstjóraskiptin gangi
greiðlega fyrir sig. Hann segist fara sáttur frá bank-
anum. „Mitt verkefni var að koma hérna inn í fyrra
og taka nokkur skref áfram með bankanum í áttina
að aukinni alþjóðavæðingu. Við settum okkur mark-
mið um síðustu áramót til þriggja ára. Við erum að
fara langt með að ná þeim á þessu ári. Við höfum náð
gríðarlega góðum árangri. Ég er mjög stoltur af því
að hafa tekið þátt í þessu.“ Þá bætti hann við að átta-
tíu prósent af tekjum Straums-Burðaráss komi er-
lendis frá og vöxtur félagsins sé allur í útlöndum.
Ráðning Williams sé því eðlilegt og gott skref fyrir
bankann. Óráðið er hvað tekur við hjá Friðriki þegar
hann fer frá Straumi. „Það er fullt af skemmtilegum
og áhugaverðum tækifærum framundan. Ég hlakka
til að takast á við nýja hluti.“
Eðlilegt skref í átt
að alþjóðavæðingu
Fyrrum forstjóri Alþjóðasviðs Bank of America sest í for-
stjórastól Straums-Burðaráss. Friðrik Jóhannsson hættir
störfum eftir tæplega árs starf hjá bankanum.