Fréttablaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 25
H A U S MARKAÐURINN 9MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2007 Ú T T E K T in Metallica fór í mál við fyrirtækið. For- saga málsins mun vera sú að Metallica rakst á óútgefið lag með hljómsveitinni á vefsvæði Napsters sem lekið hafði út um veggi upp- tökuvers hljómsveitarinnar. Þegar hljóm- sveitin kannaði málið nánar komst hún að raun um að allt lagasafn hennar var að finna hjá Napster og greiddu notendur ekkert fyrir að festa sér lög þeirra. Fleiri tónlistarmenn bættust í hópinn með Metallica, þar á meðal rapparinn Dr. Dre og Madonna en hljómplata hennar Music var fáanleg notendum Naps- ter áður en hún kom í verslanir. Fjöldamörg dæmi eru um slíkt en það þekktasta nú um stundir mun vera þegar hljómplatan Volta, nýjasta plata Bjarkar Guðmundsdóttur, lak á netið fyrir nokkrum vikum. Þegar Samtök hljómplötuútgefenda í Banda- ríkjunum blönduðu sér í málið brugðu marg- ir háskólar á það ráð að loka fyrir notkun Napsters. Málaferli Metallica og fleiri aðila á hendur Napster urðu til þess að fyrirtæk- ið batt enda á starfsemi sína um mánuði eftir tveggja ára afmælið árið 2001 og sættust for- svarsmenn fyrirtækisins á að greiða tón- listarfólki og rétthöfum 26 milljónir banda- ríkjadala, jafnvirði rúmlega 2,6 milljarða ís- lenskra króna á þávirði, vegna meintra brota á höfundarrétti. Áætlanir voru uppi um að gera Napster að löglegri tónlistarsöluveitu. Fyrirtækið safnaði hins vegar miklum skuld- um og urðu þær væntingar að engu. ÁGÆT RÖK – EN SAMT Forsvarsmenn Napsters og forráðamenn við- líka vefsvæða, svo sem Istorrent, benda á að þótt netverjar geti nálgast ókeypis tónlist á netinu þá hafi það lítið sem ekkert komið niður á sölu tónlistar. Þvert á móti hafi það aukið áhuga fólks á nýrri tónlist og kvikmynd- um auk þess sem nýjum hljómsveitum opnast vettvangur til að kynna efni sitt fyrir nýjum hlustendum með litlum tilkostnaði. Þá geti skráaskiptiforrit að sama skapi verið góð aug- lýsing fyrir nýjar myndir í kvikmyndahúsum, að þeirra sögn. Þetta eru ágæt rök fyrir ungar og upprenn- andi hljómsveitir, tónlistarmenn og áhuga- menn á kvikmyndasviðinu. Það er hins vegar ólíklegt hvort rök forráðamanna skráaskipti- svæða dugi til þegar skorið verður úr um lög- mæti dreifingar á stafrænu efni sem verndað er með höfundarréttarlögum – í það minnsta hér á landi, ef marka má orð Snæbjörns Stein- grímssonar, framkvæmdastjóra SMÁÍS, hér á opnunni. ÞUNGIR DÓMAR Samtök rétthafa eru hvergi nærri hætt mál- sóknum á hendur forsvarsmönnum neta sem styðja við skráaskipti. Á undanförnum miss- erum hafa fallið þungir og stefnumarkandi dómar víða um heim þar sem ábyrgð hefur verið lögð á aðstandendur skráaskiptakerfa fyrir hlutdeild í óheimilli dreifingu efnis. Fyrsti fangelsisdómurinn í máli sem þessu féll í mánuðinum en þá var maður í Hong Kong dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir dreif- ingu á þremur kvikmyndum um hið vinsæla BitTorrent-jafningjanet. Þótti sýnt að maður- inn hefði átt hlut að dreifingunni þótt hann hefði aðeins hlaðið myndunum inn á netið. Samtök rétthafa tónlistar og myndefnis hér á landi horfa helst til niðurstöðu í málum sem þessum í nágrannalöndunum. Helsti dómur- inn sem féll í viðlíka máli var í Finnlandi í okt- óber í fyrra en þá hlaut 21 forsvarsmaður og stjórnandi skráaskiptinets samtals rúmlega 50 milljóna króna sekt vegna aðildar sinnar að ólögmætri dreifingu efnis á netinu. Dæmt var eftir eldri finnskum lögum um höfundarrétt en ekki nýjum. Er talið að hefði verið dæmt eftir nýjum lögum hefði mátt gera ráð fyrir þyngri dómum. Óvíst er hvað framtíðin ber í skauti sér fyrir þá tíu sem handteknir voru á haustdögum árið 2003 fyrir aðild sína að ólögmætri dreifingu efnis á netinu. Það ætti að skýrast þegar líða tekur á árið. á netinu ngar á tónlist, kvikmyndum og hug- sveinsson kynnti sér stöðu „stóra Snæbjörn Steingrímsson, fram- kvæmdastjóri SMÁÍS, sam- taka rétthafa myndefnis á Ís- landi, segir upplýsingar Hagstof- unnar um þá sem hafi nýtt sér skráaskiptiforrit óhugnanlegar. Bíði allir aðilar sem tengjastst kvikmynda- og tónlistarbransan- um eftir niðurstöðum úr rann- sókn efnahagsbrotadeildar lög- reglunnar á máli einstaklinganna tíu, sem handteknir voru á haust- dögum árið 2004, áður en lengra verði haldið. Snæbjörn reiknar ekki með að mennirnir hljóti dóm í haust. Mun líklegra sé að þeir verði annaðhvort dæmdir sekir eða saklausir. Verði í kjölfarið haft samband við SMÁÍS og Samtón, Samtök rétthafa tónlistar, varð- andi næstu skref. „Það er spurn- ing hvort við förum í skaðabóta- mál fyrir hönd rétthafanna sem búið er að brjóta á í kjölfar- ið á opinberu máli,“ segir Snæ- björn og bætir því við að SMÁÍS horfi mjög til niðurstöðu í svip- uðum málum á hinum Norður- löndunum. Hafi niðurstaðan iðu- lega fallið rétthöfum í hag í flest- um málum. Málið nú er prófsteinn enda hefur aldrei verið dæmt í máli sem þessu varðandi íslenskan höfundarrétt. „Það verður for- vitnilegt að sjá hvernig dómarar túlka lögin,“ segir hann. Snæbjörn segir ýmis rök í gangi hjá þeim sem brjóta á höfundarrétti með því að dreifa og hala niður efni á netinu með skráaskiptiforritum. Hann blæs á þau öll. Ein rökin eru þau að með deil- ingu á nýlegum kvikmyndum, sem sumar hverjar eru enn til sýninga í kvikmyndahúsum, sé verið að berjast gegn bandarísk- um kvikmyndarisum. En því fer fjarri. „Þau finna minnst fyrir þessu,“ segir Snæbjörn og bend- ir á að myndbandaleigur hér- lendis séu fórnarlömbin. Verst er ástandið úti á landsbyggðinni en á dögunum hringdi í Snæbjörn maður sem starfrækir mynd- bandaleigu úti á landi. „Leiga vik- unnar hjá honum er komin niður í það sem sást á einum degi fyrir um 18 mánuðum,“ segir Snæ- björn. „Það kallar maður hrun!“ Hrun hjá mynd- bandaleigum Istorrent er talið umsvifamesta jafningjanetið hérlendis þar sem skráaskipti með tónlist, kvik- myndir og annað stafrænt efni fer fram. Svavar Kjarrval, fram- kvæmdastjóri Istorrent, segir að þvert á það sem margir telji þá fylgist umsjónarmenn nets- ins grannt með því hvaða skrár fari um netið. Bregðist þeir við í ákveðnum tilfellum líkt og þegar ákveðið var að loka fyrir umferð með ofbeldisleik í síðustu viku. Svavar segir meðlimi Istorrent líta á sig sem áhugamannafélag um skráaskipti. Ekki sé reynt að ýta undir ákveðin skipti á skrám heldur séu það notend- ur sem ákveði hvaða skrár fari um það. Þannig séu umsjónarað- ilar Istorrent ekki ábyrgir fyrir því efni sem fari um netið held- ur notendur, að sögn Svavars. „Það eina sem við [stjórnendur Istorrent] höfum er valdið til að hindra aðgang,“ segir hann og bendir á að stundum séu notend- ur settir í bann brjóti þeir reglur Istorrent. Aðspurður hvort Istorrent muni beita sér gegn því að not- endur netsins brjóti á höfund- arrétti með skráaskiptum á efni sem varið er höfundarrétti segir Svavar svo vera. „Ef SMÁÍS myndi senda okkur lista yfir þær skrár þar sem fram kemur hvaða skrár það eru sem varðar eru með höfundarrétti þá munum við fjarlægja þær,“ segir hann en bendir á að ítarlegar upplýsingar þurfi að koma fram um skrárnar. Slíkt hafi samtök rétthafa hins vegar ekki gert. Hvorki SMÁÍS né önnur, að sögn Svavars sem bætir því við að Istorrent hafi áður fjarlægt efni af jafningja- netinu að beiðni höfundar. Verði slíkt gert á ný verði það ekki í fyrsta sinn sem slíkt er gert. Notendur Istorrent ábyrgir fyrir dreifingu

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.