Fréttablaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 22
 30. MAÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR14 fréttablaðið iðnaður Undanfarin ár hefur það færst mjög í vöxt að dreifi- bréf komi inn um bréfalúg- ur landsmanna. Þetta eru aðallega dagblöð og auglýs- ingar af ýmsu tagi ásamt fleiru. Flestir henda slíku efni beint í tunnuna en nú hafa nokkrir aðilar tekið sig saman um að endur- vinna pappírinn, enda er hann upplagður fyrir slíkt. Samtök iðnaðarins, Samtök verslunar og þjónustu, útgefendur blaða og tímarita, prent- fyrirtæki og verslana- keðjur hafa nú hleypt af stokkunum kynn- ingarátaki til að minna fólk á endurvinnslu- gámana og gildi þess að endurvinna. Árið 2005 var um 8.000 tonnum safn- að til endurvinnslu en í fyrra voru tonnin 9.000. Áætlað er að skila- hlutfall sé um 40 prósent en þegar rýnt er í sorptunnur má búast við að um 27 prósent af sorpinu séu dagblöð og annað pappírsefni. Hér á landi er nú unnið að nokkr- um verkefnum þar sem pappírs- úrgangur kemur við sögu, til dæmis áætlar fyrirtækið Grænar lausnir á Mývatni að hefja fram- leiðslu á vörubrettum úr pappír og pappa í haust og komið hefur í ljós að dagblöð henta vel í slíka framleiðslu. Það er því ljóst að hið verðmæta hráefni, pappír, á sér fjölbreytt og tilgangsríkt fram- haldslíf hér á landi. - mhg Gerum gott úr pappírnum Nokkur fyrirtæki og stofnanir hafa sameinast um að hvetja til endurvinnslu á pappír. Þorgeir S. Helgason mann- virkjajarðfræðingur hefur ásamt samstarfsmönnum hérlendis og erlendis þró- að nýja tækni til að greina malarefni og spá fyrir um styrk þess, slit- og frostþol. „Það eru þrír grunneiginleikar sem þarf að mæla þegar möl er valin í vegfyllingar, steypu, stífl- ur og fjölmörg skyld mannvirki. Þeir eru stærð, lögun og berg- tegund. Efnið þarf alltaf að upp- fylla vissar kröfur, eftir notkun- inni,“ byrjar Þorgeir útskýring- ar sínar þegar hann er beðinn að lýsa nýju tækninni. „Algeng- ust er mælingin á stærðinni, þá er mölin sigtuð gegnum mis- munandi möskva. Lögunin er næst. Eru steinarnir flatir, ílang- ir, hornóttir, ávalir eða hnöttótt- ir? Seinlegt hefur verið að mæla það. Síðast er bergsamsetningin. Er um basalt, líparít, gabbró eða granít að ræða? Þær niðurstöður ráða miklu um frostþol og slitþol og þessa þætti alla vilja hönnuðir og aðrir sem nota efnið vita. Þeir setja sínar kröfur. Þá erum við komin að því sem við í Petromodel erum að gera. Við höfum þróað búnað til sjálfvirkra greininga á þess- um þremur grunneiginleikum; stærð, lögun og efnasamsetn- ingu. Við köllum tækið Petros- cope og höfum fengið einkaleyfi á því. Einnig höfum við þróað hugbúnað sem tekur niðurstöð- urnar úr því tæki og spáir fyrir um tæknilega eiginleika efnisins eins og frostþol og endingu. Þetta er bylting, því um hraðvirkan ljóstæknibúnað er að ræða. Eins og staðan er í dag geta liðið dagar og jafnvel vikur áður en niður- stöður liggja fyrir um eiginleika efnis. Kannski er búið að mala helling af því er í ljós kemur að gæðin uppfylla ekki þær kröfur sem gerðar eru.“ Þorgeir segir rannsóknir Pet- romodels byggjast á samstarfi vísindamanna víða um heim, þó að hann sjálfur sé fyrsti höf- undur einkaleyfis tækjanna sem hönnuð hafa verið. Þegar hafi tveir vísindamenn, hvor við sinn háskólann, unnið doktorsrit- gerðir í tengslum við rannsókn- irnar. Hann segir Petromodel vinna fyrir alþjóðlegan markað. „Malarvinnsla og steypa er stór iðja um allan heim og alls staðar svipuð. Ef þróuð er ný aðferð er hægt að yfirfæra hana víða. Allt er orðið meira og minna staðlað á vegum stjórnvalda,“ bendir hann á. „Í samvinnu við Vegagerðina hér og Rannsóknarstofnun bygg- ingariðnaðarins hefur okkur tek- ist að fá það samþykkt að í Evr- ópustöðlum verður ljóstæknileg greining á möl sett inn sem val- kostur.“ Nú er komið að því að markaðs- setja og dreifa nýju tækjunum. Þorgeir segir það geta tekið ein- hvern tíma. „Þetta er hrein nýj- ung en ekki viðbót við eitthvað sem fyrir er og því þarf að sann- færa iðnaðinn um að hann eigi að kaupa tækin. Vegagerðirnar í Bandaríkjunum hafa sýnt veru- legan áhuga og þær eru einmitt að leita að hraðvirkri aðferð til svona greiningar, ekki síst vegna þess að árið 2005 var samþykkt að setja 286 milljarða dollara í endurnýjun á hraðbrautakerfinu á fimm ára tímabili. Á Evrópska efnahagssvæðinu einu má áætla að velta iðnaðarins sem Petro- model gerir út á sé um 7.000 millj- arðar króna á ári. Víða er verið að vinna að svipuðum verkefnum og okkar en við erum komnir lengst og því virðist vera bjart fram undan.“ gun@frettabladid.is Byltingarkennd greiningartækni Malarvinnsla og steypa er stór iðja um allan heim og alls staðar svipuð. Því getur hin nýja greiningartækni nýst mjög víða að sögn Þorgeirs. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR K L E T T H Á L S 9 1 1 0 R E Y K J A V Í K S Í M I 5 6 7 4 2 2 2 F A X 5 6 7 4 2 3 2 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.