Fréttablaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 12
 30. MAÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR4 fréttablaðið iðnaður Samtök iðnaðarins sjá flest jákvætt við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. „Við hljótum að minna á að starfs- skilyrði atvinnulífsins verða að vera viðunandi til þess að unnt verði að hrinda í framkvæmd þeim góðu áformum sem þar koma fram. Við bætum ekki vel- ferð fólksins nema skilyrði séu til öflugrar verðmætasköpunar í atvinnulífinu,“ segir Helgi Magn- ússon, formaður Samtaka iðnað- arins. Hann telur fagnaðarefni hve fljótt og fumlaust stjórnarmynd- unin gekk fyrir sig. „Óvissa um stjórn landsins, að ekki sé talað um stjórnarkreppur eins og tíðkuðust á áttunda og níunda áratugnum, geta valdið ómældum skaða. Nú er ekkert að vanbúnaði og við treyst- um öflugri stjórn til góðra verka enda hefur hún nálægt tvo þriðju kjósenda og þingmanna á bak við sig og hefur því mikinn stuðning og pólitískt afl.“ Helgi bendir á að í stefnuyf- irlýsingunni komi meðal annars fram að tryggja beri stöðugleika í atvinnulífinu, lága verðbólgu, lágt vaxtastig, betra jafnvægi í utan- ríkisviðskiptum, jafnan og öflugan hagvöxt og áframhaldandi trausta stöðu ríkissjóðs. Þessar segir hann að séu einnig megináherslur Sam- taka iðnaðarins varðandi efna- hagsumhverfið og því fagni Sam- tök iðnaðarins sérstaklega. Ný ríkisstjórn boðar samráðs- vettvang milli ríkis og vinnu- markaðar og sveitarfélaga um aðgerðir og langtímamarkmið á sviði efnahags-, atvinnu- og félagsmála. „Þetta er skynsamleg tillaga og við tökum þessu boði fagn- andi fyrir okkar leyti. Ný ríkis- stjórn boðar víðtækar aðgerðir til að efla velferðarkerfið og bæta hag þeirra sem verst eru sett- ir í þjóðfélaginu. Það telja Sam- tök iðnaðarins einnig samkeppn- ismál og fagna því. En til þess að þessi göfugu áform nái fram að ganga þarf nú þegar að ráðast gegn þeim gríðarlegu háu vöxt- um sem ríkja í landinu og íþyngja fyrirtækjum og heimilum lands- manna,“ segir hann. „Það verður að viðurkenna að vaxtastefna stjórnvalda sem framkvæmd er af Seðlabank- anum virkar ekki. Þessir ofur- háu vextir sem ætlaðir eru til að ná verðbólgumarkmiðum eru að sliga framleiðsluatvinnugreinarn- ar og valda óraunhæfri styrkingu krónunnar sem hefur styrkst um tólf prósent það sem af er þessu ári. Útflutningsgreinar í iðnaði og sjávarútvegi ásamt ferðaþjón- ustu mega ekki við þessu og sam- keppnisstaða innlendrar fram- leiðslu versnar stórum,“ segir hann og fullyrðir að ekki séu raunveruleg rök fyrir svo sterkri krónu. „Hér er að safnast upp skekkja sem mun leiðréttast með hvelli ef ekki verður farið á móti þess- ari þróun sem fyrst. Ofurvextir styrkja krónuna þannig að gjald- eyrir er á útsölu og leiðir til óeðli- legrar þenslu. Ný ríkisstjórn verð- ur að endurmeta þau verðbólgu- markmið sem Seðlabankanum er gert að framfylgja með ofurvöxt- um. Annars mun atvinnulífið ekki ná að dafna með þeim hætti sem það hefur að öðru leyti allar for- sendur til.“ Atvinnulífið þarf eðlileg rekstrarskilyrði og næði til verð- mætasköpunar til að vel meint áform stjórnarsáttmálans nái fram að ganga, að mati Helga. „Það er allra hagur að nú verði horfst í augu við þessa misheppn- uðu vaxtastefnu og hún leiðrétt. Seðlabankanum er gert að halda einhverjum verðbólgumarkmið- um en það er ekki raunhæft því að vextirnir eru keyrðir svo hátt upp að það ræður enginn við að borga þessa vexti.“ Helgi bendir á að ný ríkisstjórn hafi tekið við völdum og því sé hægt að ryðja öllu því gamla út af borðinu og byrja með hreint borð. „Nú er tækifærið,“ segir hann. „Ríkisstjórnin ákveður þessa stefnu í samráði við Seðlabank- ann. Við segjum: Leiðréttið hana. Áformin eru góð. Vextina verður að lækka þannig að krónan styrk- ist ekki með óeðlilegum hætti. Ef þetta verður gert þá skap- ast rekstrarumhverfi sem gerir að verkum að atvinnulífið dafn- ar, verðmætasköpun verður mikil og aðstæður verða til að bæta hag þeirra sem eru verr settir og lækka skatta fólks og fyrir- tækja.“ Forystumenn Samtaka iðnað- arins hafa gjarnan talað fyrir því að taka upp evru og ganga í Evr- ópusambandið. „Á iðnþingi í mars hvöttum við til þess að nýtt kjör- tímabil yrði notað til þess að gera út um það hvort Íslendingar ættu erindi í Evrópusambandið og tækju þá upp evru í leiðinni. Þetta þýðir ekki að tala um nema helstu stjórnmálaflokkar landsins séu tilbúnir til þess og samstaða náist í atvinnulífinu og hjá verkalýðs- hreyfingunni. Ég segi það sama og áður: Nú er nýtt kjörtímabil og hreint borð. Það gefur tækifæri til að hefja þessa umræðu á annað stig og fá niðurstöðu. Þetta finnst mér mega lesa út úr stjórnarsátt- málanum.“ Vextir verða að lækka „Það er allra hagur að nú verði horfst í augu við þessa misheppnuðu vaxtastefnu og hún leiðrétt,“ segir Helgi Magnússon, for- maður Samtaka iðnaðarins. ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir Daewoo lyftarar Partur-Spyrnan-Lyftarar • Eldshöfða 10 • 110 Reykjavík • Sími: 585-2500 • Fax: 567-9557 Gæði á góðu verði 550 5600 Hringdu ef blaðið berst ekki - mest lesið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.