Fréttablaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 8
MARKAÐURINN 30. MAÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR8 Ú T T E K T llt stefnir í að rannsókn efna- hagsbrotadeildar Ríkislögreglu- stjóra á hugsanlegum hugverka- stuldi netverja ljúki á haustdög- um. Málið er prófsteinn hérlendis og má gera ráð fyrir að kærumál vegna hugsanlegra brota á hugverkastuldi líti dagsins ljós í kjölfarið falli dómur í hag rétthafa tónlistarefnis, kvikmynda og hvers kyns stafræns efnis, sem dreift hefur verið um netið. Í nær öllum er- lendum málum sem þess- um hafa forráðamenn skráaskiptifyrirtækja hlotið dóma, sumir hverj- ir þunga. Málið hófst í septemb- er árið 2004 þegar gerð var húsleit hjá tólf ein- staklingum sem grun- aðir voru um að dreifa og sækja kvikmynd- ir, sjónvarpsefni, tónlist og hugbúnað með DC++ skráaskiptihugbúnað- inum. Tólfmenningarn- ir voru handteknir og tölvubúnaður þeirra gerður upptækur en hann er enn í vörslu lög- reglunnar. Eins og staðan er í dag stefnir í að mál tíu af tólf fari fyrir dómstóla. Rann- sókn á málinu hefur staðið yfir hjá lögreglu allt fram til þessa dags. Brot gegn höfundar- réttarlögum getur varðað allt að tveggja ára fangelsi auk sekta. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands er talið að hátt í 100.000 Íslendingar hafi sótt sér tón- list eða kvikmyndir í gegnum netið, þar af eru um 70.000 sem hafa nýtt sér skráaskipti- hugbúnað á borð við DC++. Á málfundi sem Háskólinn í Reykjavík efndi til í tilefni af íslenska hugverkadegin- um í lok apríl síðastliðins kom fram að ís- lenska vefsvæðið Istorrent er vinsælasta skráaskiptikerfið hérlendis með 16.000 not- endur. Svo vinsælt er það, að notendum hefur fjölgað um 3.000 síðan þá. Á degi hverjum eru 300 skrár aðgengilegar hjá veitunni og geta allir notendur hennar sótt sér þær. Það telst þó ólíklegt að þeir séu allir inni í einu. Og ekki ná þeir í allar skrár sem í boði eru hverju sinni. Engu að síður nemur heildar- verðmæti gagna sem hægt er að fá gríðar- legum fjárhæðum. Samkvæmt útreikning- um SMÁÍS, samtaka rétthafa myndefnis á Ís- landi, nemur verðmæti skránna sem Istorrent veltir 1,8 milljörðum króna á ári hverju. Þá er ótalið verðmæti allra þeirra skráa sem ís- lenskir netverjar hafa aðgang að með öðrum forritum og niðurhali erlendis frá. FRUMKVÖÐULL EÐA SPELLVIRKI? Skráaskiptiforrit hafa verið til í um átta ár. Í byrjun júní árið 1999 setti Shawn nokkur Fanning hugbúnaðinn Napster á netið. Þetta var talsverð bylting og var Fanning hyllt- ur á forsíðum fjölmargra tímarita og dag- blaða sem einn af frumkvöðlum í upplýsinga- tækni. Napster var að nokkru leyti frábrugðið þeim skráaskiptiforritum sem nú eru til en í dag er um svokallað jafningjasvæði (peer- 2-peer) að ræða. Þótt notendur Napster hafi deilt efni sín á milli þá var gagnagrunnur- inn miðlægur, sem þýðir að setja þurfti upp gagnabanka þaðan sem notendur sóttu sér efni. Vegur Napsters óx mjög hratt og varð það fljótlega gríðarlega vinsælt en notend- ur voru 26,4 milljónir talsins þegar mest var. Helstu notendur hugbúnaðarins voru háskóla- nemendur og nýttu þeir háhraðatengingar og stórt geymslurými í netkerfum háskóla til að byggja upp öflugt gagnasafn til að deila tón- list sín á milli og setja saman geisladiska lík- asta þeim sem fengust í rekkum hljómplötu- verslana. Eini munurinn var sá að diskarn- ir kostuðu sitt í versluninni en útgjöldin voru engin hjá nemendunum að undanskildum kostnaði við kaup á tómum geisladiski. Ský dró fyrir sólu hjá aðstandendum Napster þegar bandaríska rokkhljómsveit- Margar hliðar á niðurhali Í haust lýkur rannsókn á hugsanlegum hugverkastuldi tíu netverja sem handteknir voru vegna ólögmætrar dreifin búnaði á netinu. Heildarverðmæti ólöglegs niðurhals hér á landi nemur 1,8 milljörðum króna. Jón Aðalsteinn Bergs niðurhalsmálsins“ og rýndi í þunga dóma sem fallið hafa í álíka málum upp á síðkastið. Fyrsti fangelsisdómur- inn í máli sem þessu féll í mánuðinum en þá var maður í Hong Kong dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir dreifingu á þremur kvikmyndum um hið vinsæla BitTorrent- jafningjanet.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.