Fréttablaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 4
MARKAÐURINN
H U G T A K V I K U N N A R
30. MAÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR4
F R É T T I R
Í nýjustu samantekt viðskipta-
blaðsins Dagens Industri yfir
fjárfestingar Íslendinga í Sví-
þjóð kemur fram að eignarhlut-
ur íslenskra félaga í skráðum
sænskum félögum hefur á einu
ári aukist að verðmæti um 94
prósent. Á sama tíma hefur aðal-
vísitala sænska hlutabréfamark-
aðarins hækkað um 34 prósent.
Straumur-Burðarás heldur
utan um 1,9 milljarða króna eign-
arhlut í bílaframleiðandanum
Volvo. Eitthvað ætti Straumur að
hafa grætt á fjárfestingunni því
gengi hlutabréfa í Volvo hefur
hækkað um tæp sextíu prósent
frá ársbyrjun.
Straumur er með tæpa fjór-
tán milljarða í bréfum í sænsk-
um félögum og virðist vera iðinn
við að kaupa og selja sín hluta-
bréf samkvæmt frétt blaðsins.
Langstærsti eignarhlutur bank-
ans liggur í fimm milljarða króna
stöðu í Betsson og í bréfum í Net
Entertainment sem metin eru á
tæpa tvo milljarða.
Landsbankinn heldur utan
um hluti í sænskum félögum að
verðmæti níu milljarðar króna.
Eignarhlutur bankans í Intrum
Justitia vegur þar langþyngst,
enda er hluturinn metinn á átta
milljarða króna.
Kaupþing er einnig áberandi
þótt bankinn sé ekki jafn stór-
tækur og hinir bankarnir. Alls
nemur hlutabréfasafn bankans í
sænskum félögum um 5,7 millj-
örðum króna. Stærsti eignarhlut-
urinn er um 720 milljóna króna
staða í Invik sem væntanlega
verður seld Milestone á næst-
unni. - eþa
Íslendingar spreða í Svíaríki
Straumur fjárfestir fyrir tvo milljarða króna í Volvo.
Eik Bank Group, sem stefnir að
tvíhliða skráningu í Reykjavík og
Kaupmannahöfn á öðrum ársfjórð-
ungi, hefur fest kaup á Skandia-
Banken, stærsta netbanka Dan-
merkur. Viðskiptavinir Skandia-
Banken eru um 115 þúsund talsins
eða sexfalt fleiri en hjá næsts-
tærsta netbankanum.
Þetta eru stærstu fyrirtækja-
kaup í sögu Færeyja en kaup-
verð er ekki gefið upp. Eignir Eik
Group, sem áður kallaðist För-
oya Sparikassi, vaxa um helming
við þessi kaup og fara úr 12 millj-
örðum danskra króna í 18 millj-
arða sem jafngildir tvö hundruð
milljörðum íslenskra króna. Eftir
kaupin er Eik Banki kominn í hóp
fimmtán stærstu banka Danmerk-
ur með um fjögur hundruð starfs-
menn í Færeyjum og Danmörku.
Marner Jacobsen, forstjóri Eik
Bank, segir í tilkynningu að kaup-
in styrki viðamikla starfsemi
samstæðunnar í Danmörku. „Við
erum nú þegar áberandi á danska
markaðnum og í þessu felst aukn-
ing og frekari vöxtur starfsemi
okkar.“ - eþa
Eik banki stækkar
um helming
YFIRTAKA nefnist þegar eigenda-
skipti verða á skráðum fyrirtækjum
við það að fjárfestir, hópur fjárfesta,
eða fyrirtæki kaupir út aðra eigendur.
Yfirtökur geta svo verið af marg-
víslegum toga. Vinsamleg yfirtaka er
þegar kaupandinn leggur fram tilboð
sem stjórn viðkom-
andi félags leggur
blessun sína yfir og
ráðleggur öðrum
eigendum að ganga
að. Fjandsamleg
yfirtaka er þegar
kaupandinn safnar til sín eignarhlut
án stuðnings og jafnvel í óþökk
stjórnar eða stjórnenda fyrirtækisins
sem verið er að kaupa.
Neytendur eru afar bjartsýnir
um þessar mundir ef marka má
Væntingavísitölu Gallup sem birt
var í gær.
Greiningardeild Glitnis telur
aðdraganda kosninga og kosn-
ingaloforð hafa samkvæmt henni
farið vel í landsmenn. „Vísitalan í
maí telur 154,9 stig og hefur ekki
mælst hærri frá því farið var
að mæla hana í mars árið 2001,“
segir greiningardeildin. Bjart-
sýni hefur aukist hjá öllum þjóð-
félagshópum og bendir bankinn á
að fylgni hafi verið milli aukinna
væntinga og neyslu. - óká
Bjartsýni
neytenda eykst
Hagar hafa tekið yfir helmings-
hlut Baugs Group í færeysku
verslanakeðjunni SMS sem rekur
matvöru- og sérvöruverslanir,
meðal annars nokkrar verslanir
undir merkjum Bónuss. Jóhannes
Jónsson í Bónus, stjórnarfor-
maður Haga, situr í stjórn SMS
en Baugur Group á 95 prósenta
hlutafjár í Högum.
Finnur Árnason, forstjóri Haga,
bendir á að útrás Baugs hafi
hafist í Færeyjum með opnum
Bónusverslunar á sínum tíma.
„Það er svo sem ekkert óeðlilegt
að þessi starfsemi tengist okkur
því í raun og veru erum við gamla
félagið sem var á Íslandi.“
Aö sögn Finns eru tækifæri
fyrir hendi í Færeyjum en hann
tekur þó fram að markaðurinn sé
lítill og landið strjálbýlt.
Hagar greiða Baugi fyrir bréfin
með útgáfu nýs hlutafjár að nafn-
virði 56 milljónir króna. - eþa
Hagar taka við hlut
Baugs í SMS