Fréttablaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 27
MARKAÐURINN 11MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2007 S K O Ð U N Hollenski prófessorinn Geert Hofstede var staddur hér á landi í maímánuði í boði Þekkingar- miðlunar og viðskipta- og hag- fræðideildar Háskóla Íslands. Hofstede hefur m.a. rannsakað hvernig menning, gildi og upp- eldi hefur áhrif á samfélög og hegðun þeirra í viðskiptum. Hann hefur greint menningu samfélaga og skipt henni í fimm víddir. Hér verður stiklað á stóru á helstu víddum Hofstede: Valdafjarlægð (power dist- ance). Mikil valdafjarlægð lýsir sér meðal annars í því að í sam- félagi er ójöfnuður, miðstýring er rík, valdkerfi er stigskipt og bilið milli undirmanna og yfirmanna er mikið. Hér eru t.d. arabalönd, Mexíkó og Indland. Lönd með litla valdafjar- lægð einkennast meðal annars af trausti og réttlæti í samskipt- um og litlu bili milli undir- og yfirmanna. Þetta á til dæmis við Svíþjóð og Írland. Einstaklings- hyggja/heildarhyggja (individual- ism/collectivism). Þar sem ein- staklingshyggja er ráðandi er frelsi einstaklinga jafnan mikið. Hver sér um sig og sína fjöl- skyldu, frumkvæði er mikið og gagnrýnin hugsun er litin já- kvæðum augum. Á þessum lista eru þjóðir eins og Bandaríkin, Ástralía og Bretland. Þjóðmenn- ing sem einkennist af heildar- hyggju lýsir sér í því að fólk hefur í áranna rás aðlagast reglu- veldi og fjölskylduböndum sem eru sterk og full hollustu. Hér eru lönd eins og til dæmis Kólumbía, Indónesía og Ekvador. Karllægar/kvenlægar víddir (masculinity/femininity). Karl- lægar víddir miðast við karllæg viðmið í samfélagi þar sem þegn- ar eiga að vera harðir af sér, ákveðnir og huga að efnislegum gæðum. Hér eru t.d. Japan, Sviss og Ítalía. Í samfélögum þar sem kvenlægar víddir eru sterkar eru einkennin þau að bæði konum og körlum er ætlað að huga vel að lífsgæðum, vera hógvær og blíð samkvæmt skilgreiningum kven- lægra vídda. Hér er t.d. um að ræða Norðurlönd og Holland. Óvissa/hliðrun (uncertainty av- oidance). Þau samfélög sem taka vel á móti óþekktum aðstæðum og óvissu eru til dæmis Bret- land, Holland og Norðurlönd. Slík samfélög hafa reglur í lágmarki, virða ólíkar skoðanir og eru fylgj- andi nýsköpun. Þau lönd sem á hinn bóginn forðast óvissuástand eru til dæmis S-Kórea, S-Amer- íka og Miðjarðarhafssvæði en þar eru jafnan miklar öryggisráðstaf- anir og lög eru virt. Fimmta vídd Hofstede snýst um langtímaaf- stöðu (long-term orientation) en þar skorar Holland hátt og er talið horfa með seiglu til fram- tíðar þar sem aðlögun er mikil í átt að nútímalegum gildum og hagsýni er höfð að leiðarljósi. Á hinn bóginn eru lönd sem aðhyll- ast skammtímaafstöðu eins og Bandaríkin, Kanada og Nígería sem leggja áherslu á stöðugleika, jafnvægi, hefðir og reglur. ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR Guðjón Svansson, forstöðumað- ur hjá Útflutningsráði Íslands, segir rannsóknir á þjóðmenn- ingu í íslensku samfélagi hafa sýnt fram á að hér er lítil valda- fjarlægð, samskipti eru óform- leg og stéttaskipting lítil. Íslend- ingar eru ekki hræddir við breyt- ingar eða óvæntar aðstæður og hér á landi eru hækkandi karllæg viðmið sem þýðir að ákveðni og fókus á samkeppni fer vaxandi á meðan mýkri gildi eins og umönn- un og umhyggja fyrir öðrum fer minnkandi. Einstaklingshyggja eykst á kostnað félagshyggju og hér á landi er ekki horft langt fram á veginn. Einfaldar og stutt- ar boðleiðir eru Íslendingum að skapi og þeir hafa getu og þor til að standa og falla með ákvörðun- um. (Heimild: www. geert-hofstede.com) Sif Sigfúsdóttir MA í mannauðs- stjórnun. Menningarmunur í alþjóðaviðskiptum S T A R F S M A N N A M Á L H 2 h ö n n u n Samstarf okkar við viðskiptavini snýst um að ná árangri. Í þeirri vinnu sýnum við frumkvæði, áræði, snerpu og traust. Við erum Icebank. Icebank er viðskiptabanki sem leggur áherslu á heildsölu- og fjárfestingarbankastarfsemi fyrir innlend sem erlend fjármálafyrirtæki, fagfjárfesta og aðra stærri aðila. ÁRÆÐI www.icebank.is Ég hef eins og fleiri verið með nokk- uð stórar stöður í Actavis í gegnum tíðina. Þar hafa orðið til miklir pen- ingar. Ég var því þokkalega sáttur þegar yfirtökutilboðið kom, enda búinn að vera að bæta við mig und- anfarna mánuði. Bréfin hækkuðu auðvitað og ég var alsæll. Svo fóru náttúrlega að renna á mig tvær og jafnvel fleiri grímur. Ég á góða vini í apótekara- stétt sem væru auðvitað ágætlega settir ef lífið hefði haldið áfram eins og áður. Eignin í Actavis hefur hins vegar gert þá alveg steinríka. Marg- ir af þeim hafa ekki selt krónu úr fé- laginu og eiga nú nokkra milljarða. Ég fékk símtal frá einum sem var brjálaður yfir þessu yfirtökutilboði. Gæinn er orðinn algjör sérfræðing- ur í fyrirtækinu, enda eina fjárfest- ingin sem hann er með í gangi. Hann er alveg sannfærður um að félagið eigi slatta inni og er búinn að vera að fá menn í lið með sér til að koma í veg fyrir yfirtökuna. Hann vildi fá mig með í þetta. Og hvað gerir maður þá? Það er ekki oft sem maður fær góð tæki- færi til að greenmaila stóra hlut- hafa og pína verðið upp. Það er allt- af reglulega gaman að því. Mikið lifandis ósköp hafði ég gaman af því þegar Hreiðar Már var að pína stjórn Eimskipafélagsins á sínum tíma. Nú er hann sennilega orðinn of fínn í þetta, en þá var þetta helvíti vel gert og Kaupþing græddi hell- ing, þá litlir og tóku mikinn séns. Þetta getum við þessir litlu gert. Hættan er sú að Bjöggi afskrifi fyr- irtækið og loki okkur inni. Stór hluti af þessum fjárfestum hefur hins vegar ekki hreyft sig árum saman og munar ekkert um nokkur ár í viðbót. Ekki víst að Bjöggi nenni að hafa þá í farangrinum til lengdar og sé tilbúinn að borga meira fyrir að vera laus við þá. Þetta er ekki svo slæmt bet, svo ég er með í bili að minnsta kosti. Þetta er samt ekki áhættulaust, en vogun vinnur. Spákaupmaðurinn á horninu S P Á K A U P M A Ð U R I N N Grænpóstur á Bjögga

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.