Fréttablaðið - 30.05.2007, Side 20

Fréttablaðið - 30.05.2007, Side 20
 30. MAÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR12 fréttablaðið iðnaður Norm-x • Auðbrekku 6 • Kópavogi • Sími 565-8899.Skoðaðu heimasíðuna www.normx.is NORM-X Hita pottar Íslensk framleiðsla www.normx.is Viðarkamínur á ótrúlega góðu verði Mest seldu hita pottar á Íslandi Fyrirtækið ORF Líftækni hyggst setja á markað sér- virk prótín síðla sumars sem eru framleidd með hjálp bygg- plöntunnar. Björn Örvar, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, segir þessa nýju framleiðslu- aðferð hafa marga kosti í för með sér. „Undanfarin ár höfum við verið að þróa nýtt kerfi til að framleiða sérvirk prótín sem eru notuð í iðnaði, lækn- isfræði, lyfjum og til rann- sókna,“ segir Björn og útskýr- ir hvernig prótínin hafa verið framleidd fram að þessu. „Þau hafa verið framleidd í tönkum með bakteríum, gersveppum eða spendýrafrumum í. Slík framleiðsluaðferð er mjög dýr og stendur framleiðslunni fyrir þrifum í lyfjaframleiðslu því lyfin verða mjög dýr fyrir bragðið.“ Björn segir menn því hafa velt fyrir sér nýjum aðferðum til að framleiða þessi sérvirku prótín. „Þá var horft í ýmsar áttir en við horfðum til þess að nýta byggplöntuna, eða bygg- fræið sem hýsil fyrir þessa framleiðslu og notum erfða- tækni við framleiðsluna.“ Fyrirtækið, sem var stofnað í ársbyrjun 2001, er nú að ljúka allri tækniþróun og stefnir að því að setja fyrstu afurðir sínar á markað seint í sumar. „Þetta verða tíu mismunandi sérvirk prótín sem eru vaxtarþættir úr manninum,“ segir Björn en fyrstu afurðirnar verða fyrst og fremst settar á er- lendan markað fyrir læknisrannsóknir. „Það er þrennt sem við lítum til með okkar kerfi. Fyrst og fremst getum við keppt mjög vel við verð- in. Svo bjóðum við upp á „bio risk free“ vaxtarþætti en þar er átt við að þar sem þetta er framleitt í byggplöntunni þá eru engir sjúkdóm- ar sem berast frá henni í menn. Hing- að til hafa menn hins vegar verið að framleiða þetta í spendýrafrumum og þá er alltaf ákveð- in hætta á að smitsjúkdóm- ar berist, eða þeir framleiða þetta í bakteríum, sem getur líka haft ákveðna áhættu í för með sér,“ segir Björn og bætir við að í þriðja lagi telji þeir sig geta framleitt þessa vaxtar- þætti í mjög miklum mæli og því verði verðið lægra en hing- að til hefur verið. -sig Framleiða prótín í byggplöntum Björn Örvar er framkvæmdastjóri ORF Líftækni sem framleiðir sérvirk prótín en fyrirtækið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.