Fréttablaðið - 09.06.2007, Blaðsíða 1
Segist vera lýðræðissinni
Söngkonan Birgitta Haukdal og kvikmynda-
frömuðurinn Ásgrímur Sverrisson setjast
á rökstóla.
Tap Orkuveitu Reykjavíkur á þeim 25
árum sem fyrirtækið hefur samið um að
afhenda Norðuráli 100 megavött af raforku
vegna fyrirhugaðs álvers í Helguvík nemur
um 840 milljónum að núvirði, samkvæmt for-
sendum sem Orkuveitan hefur upplýst um. Í
því felst að virkjanirnar yrðu niðurgreiddar
fyrir utan þær 840 milljónir sem eftir standa.
Líklegt er að raforkusalan borgi virkjanafram-
kvæmdirnar, sem kosta á milli fjórtán og
fimmtán milljarða, upp á um þrjátíu árum sam-
kvæmt fyrrnefndum forsendum.
Eins og greint var frá í Fréttablaðinu á
fimmtudag er verð á raforku til Norðuráls um
2,1 króna á kílóvattstund. Það staðfesti Guð-
mundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitunnar.
Það er verð sem tekið var mið af við samnings-
gerðina en raforkuverðið tengist heims-
markaðsverði á áli og gengi Bandaríkjadals og
er því háð markaðsaðstæðum hverju sinni.
Óvissuþættir eru nokkrir en samkvæmt upp-
lýsingum frá Önnu Skúladóttur, fjármálastjóra
Orkuveitunnar, er gert ráð fyrir því að arðsemis-
krafan vegna verkefnisins sé að lágmarki tíu
prósent. Gert er ráð fyrir því að rekstrarkostn-
aður af fjárfestingu verði um 1,5 prósent en
heildartekjur um 41,5 milljarðar.
Arðsemiskrafan er í hærra lagi sé mið tekið
af algengri arðsemiskröfu í áliðnaði, sam-
kvæmt upplýsingum frá CRU Group í London,
sem sérhæfir sig í rannsóknum og ráðgjöf á
áliðnaðinum í heiminum. Meðalarðsemiskrafan
á alþjóðlegum markaði er tæplega átta pró-
sent.
Fastlega má búast við því að virkjanirnar
verði notaðar áfram að 25 árum liðnum og
samningar um frekari orkusölu endurnýjaðir.
Ekki er tekið tillit til hliðaráhrifa út frá þessum
forsendum en forsvarsmenn Orkuveitunnar
hafa haldið því fram að með virkjunum sé
hægt að tryggja ódýrt heitt vatn fyrir almenn-
ing og með virkjunum sparist þannig umtals-
verðir fjármunir.
Borga sig ekki upp á 25 árum
Miðað við tíu prósenta arðsemiskröfu borgar raforkusala Orkuveitunnar til Norðuráls ekki upp virkjanirnar
vegna fyrirhugaðs álvers í Helguvík á samningstímanum. Arðsemiskrafan er há í alþjóðlegum samanburði.
Breski listamaðurinn
Katie Paterson hefur gert
listunnendum kleift að hlusta á
Vatnajökul bráðna með einu
símtali. Paterson varð hugfangin
af íslensku jöklunum á ferð sinni
um landið. Hún kom fyrir hljóð-
nema í Jökulsárlóni og í síma má
heyra skruðninga, brak og bresti
þegar jökullinn molnar og skellur
á yfirborði lónsins.
Símanúmerið hjá Vatnajökli er
00-44-7758-225698.
Símsamband
við Vatnajökul
Stjórn Actavis telur
yfirtökutilboð Björgólfs Thors
Björgólfssonar í félagið of lágt.
Það endurspegli hvorki virði né
framtíðarmöguleika þess.
Tilboðið hljóðar upp á 0,98
evrur á hlut. Það nemur um 84
íslenskum krónum.
Talsmaður Novators segir
forsendur stjórnarinnar skorta.
Staðan verði skoðuð þegar þær
liggi fyrir.
Tilboðið of lágt
„Við ætlum að nota
þessi hjól þar sem mikill mann-
skapur safnast saman, til dæmis á
stórum útisamkomum. Við ættum
að geta sparað okkur nokkrar mín-
útur með því að nota reiðhjólin því
oft tekur það sjúkrabíl nokkurn
tíma að komast í gegnum mann-
þröng,“ segir Jón Knudsen, sjúkra-
flutningamaður og varðstjóri hjá
Slökkviliði Akureyrar. Slökkviliðið
hefur látið útbúa tvö reiðhjól sem
sjúkraflutningamenn munu þeysa
á um bæinn í sumar. Fyrsta reið-
hjólavaktin verður 17. júní.
Á reiðhjólunum er allur nauð-
synlegur skyndihjálparbúnaður
og allt sem þarf til að hefja endur-
lífgun, meðal annars hjartarafstuð-
tæki og súrefnisgríma. Ekki er
ætlunin að flytja sjúklinga á
sjúkrahús á reiðhjóli en þessi nýj-
ung gerir sjúkraflutningamönn-
um kleift að hefja endurlífgun og
fyrstu hjálp meðan beðið er eftir
sjúkrabílnum.
„Þetta verður viðbót við vaktina
og á þessum hjólum verða ein-
göngu menntaðir sjúkra- og
neyðarflutningamenn,“ segir Jón,
sem hlakkar til að sjá hvernig
búnaðurinn reynist.
Neyðarhjálp á reiðhjólum