Fréttablaðið - 09.06.2007, Blaðsíða 28
Hönnunardeild Fjölsmiðjunnar efnir
til listsýningu í Gallerí Ótukt í Hinu
húsinu. Sýningin, sem ber heitið
„Óslípaður demantur“ verður opnuð í
dag klukkan fjögur.
Fjölsmiðjan er vinnusetur fyrir ungt
fólk á aldrinum 16-24 ára, sem stend-
ur á krossgötum. Þar gefst ungu fólki
tækifæri til að þjálfa sig fyrir almenn-
an vinnumarkað eða áframhaldandi
nám. Smiðjan var sett á laggirnar árið
2001 og eru deildirnar alls átta talsins.
Hönnunardeildin er nýjasta viðbótin.
„Markmiðið er að nemar fjöl-
smiðjunnar fari þaðan sterkari
einstaklingar. Með hæfni til að kom-
ast í framhaldsnám eða út á hinn al-
menna vinnumarkað,“ segir Sigríður
Björk Ævarsdóttir, iðnhönnuður, sem
er í forsvari fyrir hönnunardeild Fjöl-
smiðjunnar.
Í deildinni eru átta nemendur sem
allir taka þátt í sýningunni „Óslípaður
demantur“. Nafn sýningarinnar vísar
í efni listmunanna sem allir eru gerðir
úr endurnýtanlegum neysluvörum.
„Efnisviður listsköpunarinnar er
allt hlutir sem fólk hefur hent. Svo
þetta er endurunnin og vistvæn list,“
segir Sigríður Björk.
Fjölsmiðjan leitast við að vera í
góðum tengslum við vinnumarkaðinn
og reynir að vera með félagsleg úr-
ræði að sögn Sigríðar Bjarkar. Fyrir-
mynd Fjölsmiðjunnar er sótt til Dan-
merkur þar sem slíkar smiðjur hafa
verið reknar um árabil. Stofnaðilar
smiðjunnar eru Rauði krossinn, félags-
málaráðuneytið, Vinnumálastofnun og
sveitarfélögin á höfuðborgarsvæð-
inu. Menntamálaráðuneyti tekur þátt
í rekstri með framlögum.
Sýningin „Óslípaður demantur“
verður opnuð laugardaginn 9. júní kl.
16 í Gallerí Ótukt, Hinu húsinu Póst-
hússtræti 3-5. Sýningin er opin alla
virka daga frá kl. 9-17 og stendur til
23. júní. Lokað laugardaga og sunnu-
daga. Allar nánari upplýsingar um
Fjölsmiðjuna er að finna á: www.fjol-
smidja.is
Friðarverðlaunahafi kemur í heiminn
„Ég fer til Ísrael minnst
tvisvar á ári. Ég tala
reiprennandi hebresku og
dreymir alltaf á hebresku
þegar ég er í Ísrael.“
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem auðsýndu samúð og vinarhug
við andlát okkar ástkæru eiginkonu,
móður, tengdamóður, ömmu og langömmu
Agnesar Guðnýjar
Haraldsdóttur
Ólafur Bjarki Ragnarsson
Sigríður Ólafsdóttir Pétur Már Pétursson
Ragnar Ólafsson Hólmfríður Jóna
Guðmundsdóttir
Kristinn Ólafur Ólafsson Helga Þórisdóttir
Haraldur Ólafsson
Helgi Ólafsson Wanpen Srima Ólafsson
Björg Kristín Ragnarsdóttir Sigurgeir Árni Ægisson
Pétur Bjarki Pétursson Kolbrún Gísladóttir
Dagbjört Svana, Davíð Már, Agnes Ólöf, Ólafur Bjarki, Ólöf
Kolbrún, Sigríður Kolbrún, Guðný, Agnes, Sigríður Pálína
og Ægir Frímann.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Ólöf Ólafsdóttir
frá Syðra-Velli, Grænumörk 2, Selfossi,
verður jarðsungin frá Selfosskirkju mánudaginn 11.
júní kl. 13.30.
Ingólfur Kristmundsson Elín Magnúsdóttir
Eyjólfur Kristmundsson Jóhanna Þorsteinsdóttir
Ólafur Kristmundsson Halldóra Óskarsdóttir
Barnabörn og langömmubörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, sonur, tengdasonur og
bróðir,
Sveinn Steindór Gíslason
húsasmíðameistari, Arnarheiði 20, 810
Hveragerði,
lést á Sjúkrahúsi aðfaranótt fimmtudagsins 7. júní.
Útförin verður auglýst síðar.
Magnea Ásdís Árnadóttir
Árni Steindór Sveinsson Jóhanna Sigurey Snorradóttir
Snorri Þór og Eva Björg
Sigurbjörg Sara Sveinsdóttir Þorsteinn Karlsson
Ásdís Erla, Katrín Ósk og Bjarkar Sveinn
Eva Rós Sveinsdóttir
Sigurbjörg Steindórsdóttir
Árni St. Hermannsson
Ástkærmóðirokkar, tengdamóðir, ammaog
langamma,
Halldóra Gísladóttir
Bólstaðarhlíð 45, Reykjavík,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 3. júní. Útförin fer
fram frá Háteigskirkju þriðjudaginn 12. júní kl. 13.00.
Bragi Benediktsson Kristín Eiríksdóttir
Gísli Benediktsson Erna Kristín Bragadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Hafliði Ottósson
Aðalstræti 4, Patreksfirði,
sem lést sunnudaginn 3. júní, verður jarðsunginn frá
Patreksfjarðarkirkju þriðjudaginn 12. júní kl. 14.00.
Ragnar Hafliðason Áslaug Sveinbjörnsdóttir
Rafn Hafliðason Anna Gestsdóttir
Torfey Hafliðadóttir
Ottó Hafliðason
Guðrún Hafliðadóttir
Ari Hafliðason Guðrún Leifsdóttir
Róbert Hafliðason Sigurósk Erlingsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
80 ára
Svava Þuríður
Árnadóttir
frá Bala í Þykkvabæ,
nú búsett að Ástjörn 3, Selfossi,
er áttatíu ára í dag, 9. júní.
Svava heldur upp á daginn með
fjölskyldu sinni og verður að heiman í dag.
Alúðarþakkir til þeirra, sem sýndu okkur
samúð og vinarhug vegna andláts og
útfarar elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
Ólafs Auðunssonar
frá Ysta-Skála, Stuðlaseli 15.
Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæslu og B-6 LSH í
Fossvogi, sem önnuðust hann í veikindunum.
Áslaug Ólafsdóttir
Guðrún Ólafsdóttir
Auður Ólafsdóttir Guðmundur Tryggvi Sigurðsson
Ólafur Haukur Ólafsson Sigrún Konráðsdóttir
Þorri Ólafsson Guðný Gísladóttir.
AFMÆLI