Fréttablaðið - 09.06.2007, Blaðsíða 86
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Stefán Pálsson
„Ég er yfirleitt ólétt eða í fæðing-
arorlofi. Síðast þegar ég var í fæð-
ingarorlofi var ég búin að ganga
allar leiðir og sjá allt í bænum svo
ég vildi breyta aðeins til,“ segir Lís-
bet Harðardóttir, 22 ára Ísfirðingur
og tveggja barna móðir, sem hefur
opnað lítinn sjávargarð á Ísafirði.
Garðurinn, sem er í raun eitt 1.800
lítra fiskabúr, er utandyra í Neðsta
kaupstað og hefur vakið mikla
hrifningu bæjarbúa, ekki síst ungu
kynslóðarinnar.
Lísbet sótti fyrir nokkru um styrk
til Ísafjarðarbæjar til að smíða
sjávargarð, með sex fiskabúrum.
Garðurinn átti að kosta eina og hálfa
milljón en Lísbet fékk styrk upp á
300 þúsund. „Það dugði fyrir einu
búri,“ segir Lísbet. „Það var fullt af
fyrirtækjum sem ætluðu að hjálpa
mér við smíðina en þau sviku mig
svo ég varð að gera þetta sjálf.“
Lísbet stóð þó ekki ein í stórræð-
unum því vinur hennar smíðaði
búrið og fyrirtækið Ispan gaf henni
gler í það.
„Svo veitti Muggi hafnarstjóri
mér andlegan stuðning í sex til átta
mánuði. Á lokasprettinum, þegar ég
var komin með magasár af stressi,
flugu pabbi minn og bróðir á Ísa-
fjörð til að hjálpa mér við smíðina,“
segir Lísbet sjávardýragarðsstjóri,
sem auk þess starfar hjá barna-
vernd Ísafjarðarbæjar.
Í upphafi hafði Lísbet þorska,
kola, skötusel og marhnút í búrinu.
Einn þorskurinn var hins vegar svo
grimmur að hún þurfti að losa sig
við hann. „Þorskurinn var alltaf að
bíta í Ágúst skötusel svo ég þurfti
að losa mig við hann. Ágúst er hins
vegar farinn á vit feðra sinna,“
segir Lísbet, sem ætlar að bæta
fleiri dýrum í sjávargarðinn. „Ég á
eftir að fá fleiri dýr, svo sem ígul-
ker og barbapabba, sem er eitthvert
bleikt slím. Og svo er dálítið erfitt
að verða sér úti um sæbjúga.“
Það urðu þau Sara Hrund Gunn-
laugsdóttir, Eiríkur Rósberg Ei-
ríksson og Hallur Örn Guðjóns-
son sem stóðu uppi sem sigurveg-
arar í þáttunum Leitinni sem lauk
á Stöð 2 í gærkvöldi. Auðunn Blön-
dal, Sveppi og Pétur Jóhann lögðu
af stað með þáttaröðina í upphafi
til að koma auga á mögulega arf-
taka sína og munu þremenning-
arnir fá eigin þátt á sjónvarps-
stöðinni Sirkus sem tekinn verður
til sýninga í haust.
„Við náum vel saman og höfum
húmor hvert fyrir öðru. Við erum
líka gífurlega ólík svo ég vona að
útkoman verði góð,” segir Sara, en
hún var önnur af tveimur stúlkum
sem komust í tólf manna lokahóp-
inn en sú eina sem náði alla leið.
„Ég er rosa ánægð því aldrei nokk-
urn tíma átti ég von á að ná svona
langt. Ég bjóst ekki einu sinni við
því að komast í gegnum áheyrnar-
prufurnar,” segir Sara.
Hennar bíður það verkefni að
halda uppi heiðri kvenþjóðarinnar
í sjónvarpsþætti sem snýst um
fíflalæti og hefur göngu sína á
sjónvarpsstöðinni Sirkus í haust.
Engin endanleg mynd er hins
vegar komin á þáttinn. Sara segir
að þau þrjú séu óðum að venjast
myndavélunum og hlakki mikið
til þess að sprella vikulega fyrir
framan myndavélarnar. „Það ekk-
ert mál að vera með fíflalæti fyrir
framan myndavélarnar. Það er
hins vegar miklu erfiðara að horfa
á útkomuna.“
Miklu erfiðara að horfa á fíflalætin
Myndband af fimmta mark-
inu sögulega sem Svíar skor-
uðu í leiknum gegn Íslendingum í
undankeppni EM á miðvikudag er
það vinsælasta á YouTube um þess-
ar mundir, en síðdegis í gær hafði
verið horft á myndbandið yfir 500
þúsund sinnum, næstum helmingi
oftar en það myndband sem var
næstmest skoðað í gær.
Sem kunnugt er varð markið
til upp úr ótrúlegum misskilningi
varnarmannsins Ívars Ingimars-
sonar, sem stóð í þeirri trú að brot-
ið hefði verið á sér í eigin víta-
teig. Ívar sparkaði boltanum í átt
að eigin marki haldandi að dóm-
arinn hefði dæmt aukaspyrnu.
Svo var hins vegar ekki og þökk-
uðu Svíarnir pent fyrir sig með því
að hirða boltann og skora eitt auð-
veldasta mark sögunnar.
Ekki náðist í Ívar Ingimars-
son sjálfan í gær en Gunnar Þór
Gunnarsson, varnarmaður íslenska
liðsins og leikmaður Hammar-
by í Svíþjóð, var einn af þeim sem
komu við sögu í markinu sögulega.
„Það var nú kannski við þessu
að búast. Við sögðum eftir leikinn
að við vildum gleyma þessu en það
er kannski erfitt eins og tæknin er
orðin í dag,“ sagði Gunnar Þór og
gat ekki annað en horft á björtu
hliðar málsins. „Við náum allavega
að skemmta einhverjum einmana
sálum fyrir framan tölvuskjáinn,“
sagði Gunnar Þór og hló við.
Bakvörðurinn ungi segist rata
einstöku sinnum inn á YouTube
en hann býst þó ekki við því að
setja athugasemd við mynd-
bandið eins og notendum
síðunnar gefst kostur á.
„Nei, borgar sig nokkuð að
reyna að verja þetta eitt-
hvað? Þetta mark dæmir
sig alveg sjálft.“
Það er gott að geta skemmt einmana sálum