Fréttablaðið - 09.06.2007, Blaðsíða 8
• Orkuveita Reykjavíkur rekur stærstu jarðvarmaveitu í heimi. www.or.is
Orkuveita Reykjavíkur auglýsir styrk til konu sem stundar eða hyggst hefja nám í verkfræði eða
tæknifræði. Einungis nám til fyrstu prófgráðu í greininni er styrkhæft. Styrkurinn verður veittur um
mánaðamótin ágúst-september nk.
Umsóknum, með upplýsingum um náms- og starfsferil ásamt
staðfestingu á skráningu í nám, ber að skila með rafrænum hætti
á vef Orkuveitu Reykjavíkur, www.or.is fyrir 28. júní.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
3
79
09
0
6.
2
0
0
7
Styrkur til náms
í verkfræði
eða
tæknifræði
Hæstiréttur hefur dæmt
33 ára gamla konu, Elísabetu Arnar-
dóttur, í fimm ára fangelsi fyrir að
skipuleggja innflutning á tveimur
kílóum af kókaíni til landsins í ágúst
í fyrra. Héraðsdómur hafði dæmt
hana í fjögurra ára fangelsi.
Þrír samverkamenn henn-
ar voru einnig dæmdir til
fangelsisvistar.
Dómnum þótti ljóst að þátt-
ur Elísabetar hefði verið langveiga-
mestur þeirra sem aðild áttu að
málinu. Að hennar frumkvæði
hefðu verið fundnir samverkamenn
sem fluttu efnin inn, hún hefði fund-
að með öllum málsaðilum og haft
milligöngu um að koma skilaboðum
út til Spánar um afhendingu efn-
anna þar. Hún bar því við að hafa
skipulagt smyglið af ótta við ofbeldi
af hálfu raunverulegra höfuðpaura,
en það þótti ólíkleg skýring.
Kókaínið fannst í Leifsstöð í fögg-
um nítján ára stúlku, Elvu Hlín-
ar Hauksdóttur, sem kom til
landsins frá Spáni um
London. Hún var dæmd í
tveggja ára fangelsi, en hafði
í héraði verið dæmd í þriggja
ára skilorðsbundið fangelsi.
Með henni í ferðinni var hinn þrí-
tugi Friðjón Veigar Gunnarsson,
sem dæmdur var í þriggja ára fang-
elsi í héraði. Þeim dómi var ekki
áfrýjað.
Dómur yfir Arnari Sindra
Magnússyni, 27 ára, var staðfestur
þriggja ára fangelsi. Hann afhenti
Elvu og Friðjóni efnin á Spáni.
Þá var dómur yfir 22 ára manni,
Guðmundi Andra Ástráðssyni, mild-
aður úr þemur árum í tvö. Hann var
dæmdur fyrir að hafa haft milli-
göngu um að útvega fólk til að flytja
efnin inn.
Leikur tíu ára bræðra með
kertaljós fór illa í gær þegar kofi
þeirra brann til kaldra kola.
Eldurinn kom upp á lóð við Löngu-
brekku í Kópavogi og var slökkvi-
lið kvatt á vettvang. Í fyrstu var
talið að kviknað væri í húsinu og
voru tveir dælubílar, ásamt körfu-
bíl og sjúkrabíl, sendir á staðinn.
Þegar þangað var komið kom í
ljós að eldurinn logaði í skúr á lóð-
inni og var öllu minni en talið var í
fyrstu.
Talsverð hætta stafaði þó af bál-
inu enda kofinn aðeins örfáum
metrum frá húsinu. Að sögn lög-
reglu gekk greiðlega að slökkva
eldinn.
Tíu ára tvíburabræður, Brynjar
Arndal og Breki Arndal Brynjars-
synir, áttu kofann. Þeir smíðuðu
hann sjálfir.
Móðir drengjanna, Hólmfríður
Þóra Óskarsdóttir, segir fulla
ástæðu til að brýna fyrir börnum
að vera ekki að leika sér með eld.
„Það var ekki ætlun þeirra að
kveikja í en þeir voru að leika sér
með kertaljós í kofanum og það
fór úr böndunum,“ segir Hólm-
fríður, sem var vitanlega brugðið
við atvikið. „Það sprakk rúða í
húsinu og íbúðin fylltist af reyk,“
segir Hólmfríður.
Talsverðar skemmdir urðu á
lóðinni og er girðingin í kringum
garðinn illa brunnin að hluta. Þá
skemmdust einnig þakrennur á
húsinu auk þess sem nokkrar
skemmdir urðu á gróðri.
Hólmfríður segir strákana hafa
fullan hug á að endurreisa kofann.
Fyrst þurfi að hreinsa til í garðin-
um og þar verði drengirnir látnir
hjálpa til.
Birgir Finnsson, sviðsstjóri hjá
slökkviliði höfuðborgarsvæðisins,
segir að alltaf sé eitthvað um að
börn fikti með eld. „Við fáum reglu-
lega útköll þar sem fikt hefur leitt
til minniháttar óhappa. Stundum
getur það endað illa,“ segir Birgir.
Hann segir að stundum komi for-
eldrar brennuvarganna með börnin
á slökkvistöðina til þess að ræða
við slökkviliðsmennina. „Annars
höfum við lítið komið að eftir-
vinnslunni. Við einbeitum okkur
frekar að forvörnum og heimsækj-
um til dæmis alla átta ára bekki í
grunnskólunum,“ segir Birgir
Finnsson.
Kofinn brann
til kaldra kola
Fikt drengja með kertaljós endaði með ósköpum í
gær þegar kofi við íbúðarhús í Kópavogi brann til
ösku. Rúða í íbúðarhúsinu brotnaði og íbúðin fyllt-
ist af reyk. Slökkvilið var kvatt á vettvang.
Tyrknesk stórskota-
lið sprengdu skotmörk innan
landamæra Írak, þar sem talið
var að uppreisnarmenn úr röðum
Kúrda héldu til. Leiðtogar Kúrda
í Írak og Condoleezza Rice,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
vöruðu Tyrki við að ýta undir
ólgu á svæðinu með aðgerðunum.
Ráðherrann sagði að hvorki
væri gott fyrir Tyrkland né Írak
að hefja meiriháttar árás á Kúrda
í Norður-Írak. Fjórir tyrkneskir
hermenn fórust í sprengingu við
veg rétt norðan við landamærin í
fyrrdag. Uppreisnarmönnum var
kennt um árásina.
Gegn Kúrdum
í Norður-Írak
Þrír karlar og ein
kona voru handtekin í heimahúsi í
Reykjanesbæ aðfaranótt fimmtu-
dags, grunuð um fíkniefnamis-
ferli. Lögregla fann við húsleit
tæp tíu grömm af amfetamíni og
um 35 grömm af kannabis. Þá
fundust sveppir og LSD einnig í
íbúðinni.
Fjórmenningarnir voru yfir-
heyrðir á lögreglustöð í gær og
var sleppt að því loknu. Eyjólfur
Ágúst Kristjánsson, fulltrúi lög-
reglustjórans á Suðurnesjum,
segir að málið sé nánast upplýst.
Hann vill ekki upplýsa hvort
fólkið hafi staðið að fíkniefnasölu
en öll fjögur munu áður hafa
komið við sögu lögreglunnar
vegna fíkniefnamála.
Fjögur tekin með hass