Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.06.2007, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 09.06.2007, Qupperneq 2
 Eigendum tveggja íbúðarhúsa er meinað að leggja í framkvæmdir á lóðum sínum vegna nálægðar við gestahús for- setaembættisins á Laufásvegi 72. Engar skipulagslegar athuga- semdir eru gerðar við breytingar á húsunum tveimur en skipulags- ráð Reykjavíkur vísar til ríkislög- reglustjóra, sem leggst gegn fram- kvæmdunum af öryggisástæðum. Annað húsið stendur gegnt gestahúsi forsetans og er á Laufás- vegi 73. Þorsteinn M. Jónsson, eig- andi þess húss, hefur í meira en tvö ár óskað eftir heimild borgar- yfirvalda til að þess að rífa gamlan bílskúr og byggja í staðinn tvöfalt bílskýli, stækka kjallarann og hafa verönd þar ofan á, auk þess að byggja jarðhýsi, útbúa nýjar svalir og bæta við kvistum. Í garð- inum vill hann reisa skjólveggi og koma fyrir heitum potti. Hitt húsið stendur við hliðina á forsetahúsinu og er á Laufásvegi 74. Eigandi þess, Einar Eiríksson, vill byggja sólstofu. Ríkislögreglustjóri segir lög- reglu hafa komið að öryggisgæslu á Laufásvegi 72 um áratuga skeið. „Fjölmargir erlendir þjóðarleið- togar hafa gist þar og oft hefur verið um að ræða mjög umsvifa- mikla öryggisgæslu samfara því,“ segir í umsögn ríkislögreglu- stjóra. „Aðstæður eru með þeim hætti að auðvelt er að takmarka aðgengi og setja upp viðeigandi öryggisgæslu til þess að óviðkom- andi komist ekki óséður að húsinu né geti athafnað sig frá nærliggj- andi húsum.“ Einar Eiríksson á Laufásvegi 74 gefur lítið fyrir þessi rök. „Ég hef ekki orðið var við svokallaða tigna gesti á Laufásvegi 72 árum saman. Auk þess er vandséð hvernig þeim getur stafað ógn af sólstofum og bílskúrum nágrannanna,“ segir hann. Jón F. Bjartmarz hjá ríkislög- reglustjóra sagðist í gær ekki muna hvenær embættið hefði síð- ast gætt þjóðhöfðingja á Laufás- vegi 72. Um það þyrfti að senda embættinu formlega fyrirspurn. Á skrifstofu forseta fengust ekki upplýsingar í gær um gestakomur á Laufásvegi þar sem Örnólfur Thorsson forsetaritari var á ferða- lagi. „Það er óþolandi að ekki sé hægt að laga gamalgróið íbúðahverfi að eðlilegum nútíma lifnaðarháttum vegna ímyndaðra eða raunveru- legra öryggishagsmuna. Ef þess- ar öryggiskröfur eiga rétt á sér er þessi starfsemi ekki á réttum stað. Fróðlegt væri fyrir okkur nágrannana að kanna réttarstöðu okkar í málinu,“ segir Einar Eiríksson. Öryggiskröfur forseta bitna á nágrönnunum Skipulagsráð Reykjavíkur neitar að heimila viðbyggingar á tveimur húsum á Laufásvegi eingöngu vegna þess að ríkislögreglustjóri telur breytingarnar ógn við öryggi við gestahús forsetaembættisins á Laufásvegi 72. Vald iðnaðarráðherra til að taka land eignarnámi vegna raforkuframleiðslu ætti hugsan- lega að færast til Alþingis, og ein- skorðast við tilvik sem lúti að brýnum almannahagsmunum, ekki öflun raforku til stóriðju, segir Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra. Ráðherra hefur í dag heimild til að taka land eignarnámi, og metur þá sérstök matsnefnd hæfilegar bætur fyrir landeigendur. Þetta segir Össur að þurfi að skoða nánar. „Ég tel að á þessu kjörtímabili eigi ríkisstjórnin að skoða mjög sterklega hvort ekki sé rétt að breyta heimildum sem iðnaðar- ráðherra hefur í dag til eignar- náms,“ segir Össur. „Þetta er mál sem ég tel að við þurfum að skoða mjög vel og gefa okkur tíma til þess. Þetta er flókið og vandasamt og þarf að skoða alla hagsmuni í þessu,“ segir Össur. Hann segir það sína skoðun að ríkið verði að eiga áfram mögu- leika á eignarnámi ef til þess séu brýnir almannahagsmunir. Slíkt eigi ekki við þegar verið sé að taka lönd til orkuvinnslu til stórra not- enda. Það eigi við um stóriðju, mengandi eða ekki. Össur sagðist ekki viss um að iðnaðarráðherra sem handhafi framkvæmdavaldsins eigi að hafa heimildir til að taka lönd eignar- námi, jafnvel ekki í þeim tilvikum þar sem um brýna almannahags- muni sé að ræða. „Mér finnst mörg rök hníga að því að þetta vald eigi að vera í höndum Alþingis,“ segir Össur. Eignarnám einskorðist við brýna almannahagsmuni Í gær slitnaði upp úr sex daga stjórnarmyndunarvið- ræðum á Írlandi, þar sem stjórnarflokkur Bertie Ahern forsætisráð- herra hafði reynt að mynda stjórn með Græningjum. Ahern á því fáa úrkosti við stjórnarmynd- un, en hægristjórn hans missti meirihluta í þingkosningum í síðasta mánuði eftir að hafa verið við völd í tíu ár. Fulltrúar Græningja sögðu áherslur flokkanna of ólíkar til að samningar tækjust. Á fimmtudag í næstu viku kemur þingið saman og kýs nýjan forsætisráðherra. Græningjar ekki í stjórn Sigurður, er þetta vaxtarverk- fræði? Kona um áttrætt sem dvelur á hjúkrunar- og dvalar- heimilinu Hlíð á Akureyri nýtur læknismeðferðar vegna berkla. Að sögn Haraldar Briem sótt- varnarlæknis greindist konan með berkla fyrir tveimur til þremur vikum síðan og var gripið til við- eigandi ráðstafana. „Sjúklingur- inn fær meðferð og er fluttur í einangrun á meðan lyfin eru að virka en smithættan hverfur mjög fljótlega eftir að meðferð hefst,“ segir Haraldur. Þá fer einnig fram umhverfis- könnun og hafa þeir sem voru í námunda við konuna gengist undir læknisskoðun. Enn sem komið er hefur enginn annar greinst með berkla, en Haraldur bendir á að það taki tíma að ganga úr skugga um það. „Það tekur bakteríuna átta til tíu vikur að koma fram og við sjáum þetta ekki alveg strax.“ Að sögn Haraldar eru hér að öllum líkindum á ferð leifar af berklafaraldrinum sem náði hámarki á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar. „Sumir smituðust á sínum tíma en veiktust ekki. Með aldrinum veikist ónæmiskerfið og berklarnir geta blossað upp. Þetta er ekki óalgengt á Íslandi. Í allt greinast um tíu til fimmtán berkla- tilfelli hér á landi. Hluti af þeim er meðal fólks sem er að flytjast til landsins en kringum fjögur til fimm tilfelli á borð við þetta grein- ast á hverju ári.“ Kona greindist með berkla Kynningarmyndband fyrir merki Ólympíuleikana sem haldnir verða í London árið 2012 hefur verið fjarlægt af vefnum. Í ljós kom að myndbandið hefur valdið því að sumir áhorfendur fá flogaköst af því að berja það augum. Samtök flogaveikra fengu símtöl frá fólki sem hafði fengið flogakast við að horfa á mynd- bandið. Myndbrot sem sýnir sundkappa dýfa sér í laug er talið vera sökudólgurinn. Talsmenn Ólympíuleikanna vildu vekja athygli á því að sjálft merki Ólympíuleikanna hefði ekki valdið köstunum. Myndbandið verður klippt upp á nýtt og myndbrotið fjarlægt. Ólympíumynd veldur flogum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ítrekað þurft að hafa afskipti af ungling- um síðustu daga. Tveir piltar á fermingaraldri voru staðnir að hnupli í matvöruverslun í Kópavogi í fyrradag og skömmu síðar var jafnaldri þeirra tekinn þar sem hann reyndi að stela peningum úr búningsklefa. Þá voru tvær tólf ára stúlkur teknar í Smáralind þar sem þær höfðu stolið ýmsum vörum úr fjórum búðum. Síðar um kvöldið voru tveir fjórtán ára piltar gripnir við veggjakrot í Smáralindinni og kvöldið áður voru þrír piltar teknir við sömu iðju í Breiðholt- inu. Unglingar teknir við búðahnupl og veggjakrot Ehud Olmert, forsætis- ráðherra Ísraels, hefur sagt sýrlenskum yfirvöldum að hann sé tilbúinn að skila Gólan- hæðum. Þetta kom fram í umfjöllun ísraelska blaðsins Yediot í gær. Forseti Sýrlands, Bashar Assad, hefur ekki svarað tillögu Olmerts. Ísrael hertók hæðirnar í Sex daga stríðinu 1967, en segist munu skila þeim ef sýrlensk stjórnvöld minnka tengsl sín við ríkisstjórn Írans og hætta stuðningi við líbanska og palestínska hryðjuverkahópa. Gólan-hæðir voru innlimaðar í Ísraelsríki árið 1981. Segist tilbúinn að skila Gólan
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.