Fréttablaðið - 09.06.2007, Side 22
T
ilviljun réð því að Kristján Erlingsson
var á landinu þegar áfallið dundi yfir
Flateyringa
í lok síð-
asta mán-
aðar. Hann býr í Úg-
anda en var á Íslandi til
að sækja ráðstefnu um
þróunarmál og halda
upp á hundrað ára af-
mæli ömmu sinnar,
Maríu Jóhannesdóttur
á Flateyri. Kristján
hefur verið með annan
fótinn þar frá blautu
barnsbeini og rann
blóðið til skyldunnar.
Hann keypti fasteignir
Fiskvinnslunnar Kambs
og ætlar að kappkosta
að sem flestir starfs-
menn fyrirtækisins
haldi vinnunni.
Kristján er fæddur
á Flateyri 1. desem-
ber 1962 en flutti til
Reykjavíkur með
móður sinni eins árs
gamall. Steig sín fyrstu
skref á Bárugötu en
gekk menntaveginn
í Seljaskóla, Hlíða-
skóla og Menntaskól-
anum við Hamrahlíð. Á
sumrin lá leiðin ávallt
til Flateyrar; þrettán
ára fór hann að vinna
í fiskvinnslu Einars
Odds Kristjánssonar,
sem situr nú á þingi, en
alltaf hefur verið kært
með þeim frændum. Að
loknu stúdentsprófi fór
Kristján í viðskipta-
fræði við Háskóla Ís-
lands en flutti vestur á
Flateyri áður en hann
lauk námi, til að koma á
fót skelfisksvinnslunni
með Einari frænda
sínum. Hugur hans stóð
lengi til að ljúka við-
skiptafræðinni en iðu-
lega settu önnur verk-
efni strik í reikninginn.
Á Flateyri kynntist
Kristján konu sinni,
Lesley Wales, en hún
er frá Suður-Afríku.
Þau komu sér upp
heimili á Flateyri og
eignuðust tvíburana
Jóhönnu og Cather-
ine árið 1994. Í kjölfar
snjóðflóðsins sem reið
yfir þorpið árið 1995
voru varnargarðar
reistir yfir eyrinni.
Þau hús sem voru
utan garðsins voru
lýst á hættusvæði. Þar
á meðal var heimili
Kristjáns og Leslie og
gerði það meðal annars
að verkum að þau fóru
að hugsa sér til hreyf-
ings. Tveimur árum
síðar bauðst Lesley
starf hjá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsa í Úg-
anda. Þau tóku slaginn
og fluttu frá Vestfjörð-
um til Austur-Afríku
ásamt dætrum sínum
og hafa búið þar síðan.
Í Úganda stofnaði
Kristján útflutnings-
fyrirtækið Icemart
Africa. Í dag er það
stærsta fyrirtækið á
sínu sviði þar í landi. Í
fyrra flutti það meira
en fimmtán þúsund
tonn af ferskum afurð-
um frá Afríku til Evr-
ópu; fisk, grænmeti og
afskorin blóm.
Þeim sem þekkja Kristján koma í hug orð á
borð við góðmennska, höfðingsskapur og dugn-
aður þegar þeir eru beðnir að lýsa honum. Hann
þykir naskur að koma auga á ný tækifæri og
möguleika. Þá er
hann sagður hafa
mikið úthald og
miklar það ekki
fyrir sér að hlut-
irnir taki tíma. Sem
dæmi nefnir vinur
hans þegar hann ók
á gömlum Trabant
frá Reykjavík vestur
í Borgarfjörð til að
fara á ball. Er haft í
flimtingum að sjald-
an hafi nokkur lagt
jafn mikið á sig til
að komast á dans-
leik. Kristján kann
best við að takast á
við miklar áskoranir,
jafnvel vera öfg-
anna á milli. Það hafi
hann sýnt á Flateyri
og í Úganda. Honum
líður best að kvöldi
dags eftir að hafa
leitt verkefni dags-
ins til lykta. Hann
er þó ekki vinnualki;
setur starfið ekki í
forgang fram yfir
fjölskylduna.
Hann er mikill
áhugamaður um við-
skipti og þróunar-
mál. Eftir að hafa
búið í Afríku í ára-
tug þekkir hann
vandræði álfunnar
frá fyrstu hendi og
hefur sterkar skoð-
anir á þróunarmál-
um. Honum þykir
hugmyndir Vestur-
landabúa um Afr-
íku oft á tíðum
yfirborðskenndar
og byggjast á van-
þekkingu. Fyrir utan
það er ekki vitað
til þess að Kristj-
án eigi sér nein sér-
stök áhugamál. Hann
er þó sagður slark-
fær í knattspyrnu og
fer stundum á völl-
inn þegar tækifæri
gefst.
Kristján hefur
áhuga á heimspeki
og pólitík. Rétt eins
og Einar móður-
bróðir sinn hefur
Kristján sterkar
pólitískar skoðanir
og þykir talsvert
lengra til hægri en
sá gamli. Hann talar
tæpitungulaust um
þjóðfélagsmál, hefur
lítið álit á „sósíalísku
miðjumoði“ og getur
runnið í skap ef
hann þrætir við ein-
hvern á öndverðum
meiði. Langrækni er
aftur á móti ekki til í
honum, að sögn vina.
Hann er höfðingi
heim að sækja, veitir
vel og þykir gaman
að fá vini og ætt-
ingja í heimsókn.
Helsti löstur
Kristjáns er sá að
hann „reykir eins og
síðutogari“, eins og
vinur hans komst að
orði. Hann hefur oft
talað um að hætta en
lítið orðið um efndir.
Fjölskyldan hefur
komið sér vel fyrir
í Úganda og sýnir
ekki á sér neitt
fararsnið. Vinir hans og vandamenn benda hins
vegar á að þótt hann búi í Afríku liggi ræturnar
djúpt vestur í Önundarfjörð.
Glöggur og þrautgóður
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Taktu þátt!
Þú sendir SMS
BT BTF á númerið 1900.
Þú færð spurningu.
Þú svarar með því að senda SMS
skeytið BT A, B eða C á númerið 1900.
hver vinnur!
10.
Aðalvinningur!
FSC Amilo
Pi Core2
Vista
fartölva
SMSLEIKURTak
tu
þátt!
Geggjaðir aukavinningar! Vídeospilari, Sony myndavél, Panasonic tökuvél, Apple iPod Nano/blár, HP
Photosmart, GSM símar, Bíómiðar fyrir 2 á THE INVISIBLE og LAST MIMZY,PSP tölvur,Gjafabréf á
Tónlist.is,PS2 tölvur, Kippur af Gosi og enn meira af DVD, CD´s, tölvuleikjum og fleira
*Aðalvinningar dregnir út úr öllum innsendum skeytum Vinningar verða afhentir í BT Smáralind, Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
99 kr/skeytið. Þú færð 5.mín til að svara spurningu.
Express Fer›ir, Grímsbæ, Efstalandi 26, sími 5 900 100 Fer›askrifstofa í eigu Iceland Express
FORMÚLUFERÐIR
Verð á mann í tvíbýli
98.900 kr.
Innifalið: Flug og skattar, rúta til og
frá Silverstone, gisting á St. Giles í
London í 3 nætur, morgunverður og
miði á kappaksturinn.
Nánar á www.expressferdir.is eða í síma 5 900 100
6.–9. júlí.
Þeir sem fylgjast með Formúlunni eru sammála um að Silver-
stone brautin sé ein sú skemmtilegasta í mótaröðinni. Í fyrra
sýndi Alonzo á Renault mikla yfirburði, en á Silverstone getur allt
gerst. Skelltu þér út og fylgstu með Massa, Räikkönen, heimam-
anninum Coulthard og öllum hinum reyna með sér á brautinni.
Gist verður á St. Giles sem er staðsett í miðborg London og
farið í rútu til Silverstone. Ferðalöngum gefst því líka kostur að
njóta lífsins í stórborginni London.
Silverstone