Fréttablaðið - 09.06.2007, Side 34
Bíladagar verða á Akureyri
15. til 17. júní. Keppt verður
í spyrnu og burnout-keppni
og um 200 farartæki verða til
sýnis á einni stærstu bílasýn-
ingu sem haldin hefur verið
hérlendis.
33 sinnum hafa bílaáhugamenn
safnast saman eina helgi á Akur-
eyri, sýnt sig og bíla sína og skoðað
það sem aðrir hafa upp á að bjóða.
Samkoman hefur síðustu ár geng-
ið undir nafninu Bíladagar á Akur-
eyri og hefur þátttakendum fjölgað
frá ári til árs. Nú stefnir í metþátt-
töku á 34. bíladögunum enda hátíð-
in aldrei verið stærri.
„Þetta er flottasta bílasýning árs-
ins,“ segir Gísli Rúnar Víðisson,
sýningastjóri og stjórnarmeðlim-
ur Bílaklúbbs Akureyrar. „Þarna
mæta áhugamenn um bíla, mótor-
hjól, spíttbáta og öll önnur farar-
tæki. “
Bíladagarnir eru næstu helgi,
15. til 17. júní, og hefst dagskráin á
föstudeginum með svokallaðri bur-
nout-keppni. Þá reykspóla menn og
stig eru gefin fyrir flottasta spól-
ið, mesta reykinn og svo framveg-
is. „Keppnin er haldin á íþróttaleik-
vanginum á Akureyri og það er nóg
pláss fyrir alla sem vilja horfa í
stúkunni,“ segir Gísli Rúnar.
Á laugardeginum er keppt í
spyrnu í fjölmörgum flokkum og á
sunnudeginum, þjóðhátíðardegin-
um, er komið að sýningunni sjálfri.
„Sýningin er haldin í Boganum,
nýju íþróttahöllinni á Akureyri,
milli tíu og sex. Höllin er 10.000 fer-
metrar og verður fullt af bílum til
sýnis bæði inni í höllinni og fyrir
utan, allt frá mótorhjólum og sport-
bílum til fornbíla og atvinnutækja,“
segir Gísli Rúnar. „Ég held að þetta
sé stærsti sýningarflötur fyrir bíla-
sýningu sem haldin hefur verið hér-
lendis.“
Skráning ökutækja í burnout-
keppnina, spyrnuna og á sýning-
una stendur yfir á www.ba.is eða í
síma 862-6450. „Við eigum von á 200
tækjum og fullt af fólki og auðvit-
að hvetjum við alla til að mæta og
taka þátt,“ segir Gísli Rúnar. „Þetta
verður afskaplega gaman bæði
fyrir bíladellufólk og bara alla sem
koma norður um helgina.“
Allar nánari upplýsingar um bíla-
dagana er að finna á www.ba.is.
Stærsta bílasýning ársins
FYRSTUR MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is