Fréttablaðið - 09.06.2007, Side 78
Bítillinn fyrrverandi Sir Paul
McCartney spilaði fyrir framan
aðeins eitt þúsund aðdáendur í
London á dögunum. Tilefnið var
útgáfa nýjustu sólóplötu hans,
Memory Almost Full.
Á meðal þeirra sem létu sjá sig
voru dóttir hans Stella, fyrirsætan
Kate Moss, leikarinn Pierce
Brosnan, David Gilmour úr Pink
Floyd og Mackenzie Crook, sem
lék í The Office. McCartney spil-
aði í níutíu mínútur lög af nýju
plötunni og gömul Bítlalög. Til-
einkaði hann Bítlunum John
Lennon og George Harrison og
fyrrverandi eiginkonu sinni Lindu
lagið Here Today.
Plata McCartneys hefur víð-
ast hvar fengið góða dóma. Meðal-
einkunn hennar á Metacritic.com
er 68 af 100 mögulegum.
90 mínútna
veisla hjá
McCartney
Rúnar Freyr Gíslason mun
leika eitt af aðalhlutverk-
unum í stóra barnasöngleik
Þjóðleikhússins í vetur,
Skilaboðaskjóðu Þorvalds
Þorsteinssonar. Á sama
tíma leikstýrir eiginkona
hans, Selma Björnsdóttir,
uppfærslu Borgarleikhúss-
ins á Gosa.
Rúnar Freyr sló á létta strengi
þegar Fréttablaðið spurði hann út
í væntanlega „samkeppni“ þeirra
skötuhjúa og taldi það alls ekki
skjóta skökku við að þau væru að
starfa á sitthvorri vígstöðinni.
„Ég er einn af þeim sem trúa
því að þegar verið er að setja upp
barnasöngleiki í báðum húsum
bakki þeir hvor annan upp. Ég lít
því miklu frekar svo á að við séum
í samvinnu frekar en samkeppni,“
segir Rúnar Freyr, sem verður í
hlutverki Dreitils skógardvergs í
uppfærslunni í ár, en sá er mikill
örlagavaldur í ævintýrinu.
Gunnar Helgason mun leikstýra
Skilaboðaskjóðunni en önnur aðal-
hlutverk eru í höndum Þórunnar
Lárusdóttur, Hjálmars Hjálmars-
sonar og Friðriks Friðrikssonar
auk þess sem Ólafía Hrönn Jóns-
dóttir, Þröstur Leó Gunnarsson og
fleiri eru í stórum hlutverkum.
„Þetta er frábær hópur,“ segir
leikstjórinn, sem stefnir aukin-
heldur á að betrumbæta fyrri upp-
setningu ævintýrsins sem sýnt
var fyrir tæpum fimmtán árum.
„Ég hef unnið mikið í barnaefni í
gegnum tíðina og upp á síðkastið
hef ég mest verið að leikstýra
söngleikjum. Skilaboðaskjóðan
sem barnasöngleikur sameinar
þetta tvennt og því er þetta algjört
draumaverkefni fyrir mig,“ segir
Gunnar.
Fréttablaðið hafði áður greint
frá því að ævintýrið um Gosa
verður stóra barnaleikrit Borgar-
leikhússins í vetur og þá hefur
Leikfélag Akureyrar ákveðið að
sýna Óvitana eftir sögu Guðrúnar
Helgadóttur. Sigurður Sigurjóns-
son situr í leikstjórnarstólnum,
Jón Ólafsson sér um tónlist og
á meðal leikara verða þeir Guð-
jón Davíð Karlsson, Hallgrímur
Karlsson og Þráinn Karlsson.