Tíminn - 30.11.1980, Page 6
6
Sunnudagur 30. nóvémbér 1980.
(itgefandi: Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri:
Steingrfmur Gislason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdótt-
ir. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjóifsson. — Ritstjórar: Þórar-
inn Þórarinsson, Jón Helgason, Jón Sigurðsson. Ritstjórnarfull-
trúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrlmsson.
Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Atli Magnússon, Bjarghildur
Stefánsdóttir, Ellsabet Jökulsdóttir, Friðrik Indriðason, Frlða
Björnsdóttir (Heimilis-Timinn), Heiður Helgadóttir, Jónas Guð-
mundsson, Jónas Guðmundsson (Alþing), Kristln Leifsdóttir,
Ragnar örn Pétursson (Iþróttir). Ljósmyndir: Guðjón Einars-
son, Guðjón Róbert Agústsson. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir.
Prófarkir: Flosi Kristjánsson, Kristin Þorbjarnardóttir, Marla
Anna Þorsteinsdóttir. — Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar:
Síðumúla 15, Reykjavlk. Slmi: 86300. Auglýsingasimi: 18300.
Kvöldslmar: 86387,86392.—Verð I lausasölu : kr. 280. Askriftar-
gjald á mánuöi: kr.5500.— Prentun: Blaðaprent hf.
Á tímum hagfræðinga
Á þvi þingi Alþýðusambands íslands sem haldið
var i liðinni viku urðu að ýmsu leyti athyglisverð
timamót i sögu samtakanna, og er enn sem komið
er auðvitað allt of snemmt að meta þær brey tingar
sem þar urðu á forystuliði launþegahreyfingarinn-
ar.
í fyrsta lagi urðu kynslóðaskipti í fremstu forystu
Alþýðusambandsins. Sú kynslóð sem mótaðist á
kreppuárunum og tók við forystuhlutverki i hörðum
átökum striðsáranna, og þá undir merki kommún-
isma þótt það hafi gengist og greinst siðan, vék nú
til hliðar fyrir yngri mönnum. Sú kynslóð sem ný-
kjörinn forseti Alþýðusambandsins tilheyrir og
þeir timar sem hafa mótað hann eru að mörgu ley ti
allt önnur veröld en sá heimur sem þeir Björn Jóns-
son og Snorri Jónsson ólust upp i.
I öðru lagi markaði þetta Alþýðusambandsþing
þau timamót að trautt verður nú um skeið talað um
einhverja tiltekna stjórnmálaflokka sem „verka-
lýðsflokka” um aðra flokka fram. Eftir þvi sem
marka má af fréttum frá þessu launþegaþingi og af
úrslitum kosninga þar komu allir stjórnmálaflokk-
arnir þarna mjög við sögu og með jafnvel opin-
skárra hætti en lengi hefur tiðkast. Forseti og vara-
forseti ASÍ eru hvor af sinum flokkspólitiska endan-
um, ef svo má segja, en enginn virðist þó hafa orðið
var við snurður á samstarfsþræði þeirra fyrir þá
sök að annar er sósialisti en hinn hægrimaður. Ef
þetta boðar þau timamót að launþegahreyfingin
hætti að blandast inn i deilur stjórnmálaflokkanna,
þá eru það einnig fréttir til næsta bæjar.
í þriðja lagi hlýtur það að þykja markvert að
bæði forseti og varaforseti Alþýðusambands
íslands eru nú félagsmenn i sama félagi innan sam-
bandsins. Sú var tiðin að ráðandi mönnum ASI þótti
hæpið að samtök verslunarmanna og skrifstofu-
fólks ættu þar nokkurt erindi, en nú er svo komið að
æðsta forysta samtakanna er valin úr þeim röðum.
Um þetta var nokkuð rætt á þessu þingi Alþýðu-
sambandsins, en ekki hefur það þótt skipta miklu
máli ef marka má úrslit kosninganna.
í f jórða lagi er það timanna tákn að bæði forseti
og varaforseti Alþýðusambands Islands eru há-
skólamenn, og munu sjálfsagt einhverjir gárungar
segja að þetta sé fagurt vitni um stéttleysið á
íslandi. Báðir eru þeir hagfræðimenntaðir á borg-
aralega visu, talnameistarar miklir og reiknings-
hausar og má það að sönnu einnig teljast timanna
tákn. Ef Alþýðuflokkurinn er eitthvað óánægður
með sinn hlut af þessu þingi, geta flokksmenn i
þeim röðum þó fagnað þvi að sósialistinn á forseta-
stóli er hagfræðilærður á danska jafnaðarmanna-
visu i kóngsins Kaupinhafn,
— Það er nú allur kommúnisminn á þvi herrans
ári 1980.
Hinni nýju forystu Alþýðusambandsins skal ósk-
að alls velfarnaðar i störfum. Það eru mikilvæg
mál sem launþegahreyfingin þarf að sinna á næst-
unni og mikið i húfi fyrir alþýðuna að vel takist til.
Þessa dagana er mest um það spurt meðal almenn-
ings hvort næsti framkvæmdastjóri ASI verður lika
hagfræðimenntaður eða hvort annars konar starfs-
þjálfun verður talin fullnægjandi i starf að svo
komnu máli. JS
Þórarinn Þórarinsson:
Erlent yfirlit
Anders Wall er helzta
fjármálastjarna Svía
Söguleg sameining tveggja stórfyrirtækja
Anders Wall
UM FATT hefur verið meira
ritað í skandinavisk blöð siðustu
tvær vikurnar en samruna'
tvegga stórfyrirtækja I Svíþjóð,
Volvo og Beijerinvest. Samruni
þeirra var tilkynntur á blaða-
mannafundi í Gautaborg 17.
þ.m.
Samruni fyrirtækjanna gerist
með þeim hætti, að Volvofyrir-
tækið kaupir hlutabréfin i Bei-
jerinvest. Endanlega verða
kaupin háð samþykki eigenda
hlutabréfa Beijerinvest, en full-
vlst er talið, að ekki muni
stranda á þvi.
Volvofyrirtækið er þekkt utan
Svlþjóðar, sökum bilafram-
leiðslunnar, en það hefur haft
fleiri járn I eldinum. Forstjóri
þess, Pehr G. Gyllenhammar,
hefur haldið þvi fram, að at-
vinnufyrirtæki nú til dags verði
að byggjast á fleiri en einni at-
vinnugrein. Þess vegna hefur
hann ráðizt i kaupin á Beijerin-
vest.
Beijerinvest er fjárfestingar-
og verzlunarfyirtæki, sem var
formlega stofnað fyrir hálfum
öðrum áratug, en átti sér tals-
verðan aðdraganda, og byrjaði
þvi með verulegt stofnfé. Sföan
hefur það keypt upp fyrirtæki og
stofnað fyrirtæki svo tugum
skiptir. Það var orðið eitt af
stærstu og öflugustu fyrirtækj-
um Sviþjóðar.
Þegar áðurnefnd kaup voru
gerð, námu hlutabréfin í Beijer-
invest 1250 milljónum sænskra
króna, en hlutabréfin i Volvo
1650 milljónum króna. Hluta-
bréfin í báðum fyrirtækjunum
hafa stórhækkað siðan.
Gert er ráö fyrir að á næsta
ári verði velta hins nýja fyrir-
tækis 40 milljarðar sænskra
króna og starfsmenn þess um 75
þúsund, þar af 70 þúsund utan
Sviþjóðar.
ÞAÐ fylgdi kaupunum, að
Anders Wall, framkvæmda-
stjóri Beijerinvest, veröur
stjórnarformaður i hinu nýja
fyrirtæki, sem hefur fengið
nafnið Investment AB
Volvo-Beijer, en Pehr G. Gyll-
enhammar veröur fram-
kvæmdastjóri þess. Verkaskipt-
ing milli þeirra verður á þá leið,
aö Wall mun einkum sjá um
fjármálahliðina, en Gyllen-
hammar um rekstrarhliðina.
Síðan samruni fyrirtækjanna
varð kunnur, hefur mikið verið
rætt um þessa tvo menn, en þó
einkum um Anders Wall.
Um Gyllenhammar má segja,
að hann hafi verið fæddur meö
gullskeið í munninum. Faöir
hans var forstjóri öflugs vá-
tryggingafélags, en tengdafaöir
hans var forstjóri Volvo og erfði
Gyllenhammar sæti hans.
Anders Wall er hins vegar
bóndasonur, sem hefur brotizt
áfram af eigin ramleik. Upp-
haflega hét hann Anders And-
ersson. Hann áleit það of al-
gengt nafn til að geta rutt hon-
um braut I fjármálaheiminum.
Hann tók sér þvi nafnið Anders
Wall. Gárungarnir segja, aö
hann hafi þá jöfnum höndum
haft Wallenberg og Wall Street i
huga.
Þaö var Kjell Beijer, sem rak
fjárfestingarfyrirtæki, er upp-
götvaöi Anders Wall. Ariö 1954,
þegar Anders var 24ára gamall,
fól Beijer honum stjórn á fyrir-
tækinu Kul & Koks, en það átti
dótturfyrirtæki viða i Svíþjóð.
Anders Wall byrjaði á þvi að
leggja niður eða selja ýms
þeirra, en siðan fór hann að
kaupa og stofna fyrirtæki í ýms-
um viðskiptagreinum og reynd-
ist stálheppinn.
Arið 1967 var móðurfyrirtækið
Kul & Koks selt Mobil fyrir 20
milljónir sænskra króna. Jafn-
framt kom fyrirtækið Beijerin-
vest til sögunnar.
ÞETTA fyrirtæki hefur fært
út kviarnar með næstum ótrú-
legum hraða. Mörg fyrirtæki,
sem þaðhefur stofnað, eru kom-
in í röð stærstu fyrirtækja i Svi-
þjóð.
Mest þessara fyrirtækja er
Scandinavian Trading, sem fæst
aðallega við olíusölu. Það hefur
keypt oliu frá Sovétrikjunum,
Nigeriu og Angóla og fengið
leyfi til oliuleitar I Texas. Ariö
1979 var umsetning þess 10,7
milljaröar sænskra króna og
hagnaðurinn 349 milljónir.
Anders Wall hefur haft mikil
viöskipti við löndin i Aust-
ur-Evrópu. Fyrirtæki Beijerin-
vest annast um 25% af öllum
innflutningi til Sviþjóðar af
rússneskum vörum. Þá eiga
tékkneska rlkiö og Beijerinvest
sinn helminginn hvort I fyrir-
tæki, sem sér um innflutning til
Svíþjóðar á tékkneskum vörum.
Það þykir næsta liklegt, að hið
nýja fyrirtæki þeirra Walls og
Gyllenhammars eigi eftir að
færa út kvlarnar. Báðir eru
mennirnir stórhuga. En hvernig
mun þeim lynda saman, því aö
báðir þykja ráörikir?
Sá, sem er talinn llta þennan
samruna mestu hornauga, er
Marcus gamli Wallenberg.
Hann og ættmenn hans eru aðal-
eigendur Skandinaviska En-
skilda Banken. Aðalkeppinaut-
ur hans er Handelsbanken, sem
verður viðskiptabanki hins nýja
fyrirtækis.
Anders Wall og Gyllenhammar