Tíminn - 30.11.1980, Síða 15
Sunnudagur 30. nóvember 1980.
15
Fátiðir fuglar, ekki sizt ránfuglar, eru i mikilli
hættu. Víða eruá ferlináungar, sem eru á höttun-
um eftir þessum fuglum,og þeir leggja ekki sizt
leiðir sínar til Norðurlanda, þar á meðal íslands.
Sumir leitast við að ræna ungum, einkum fálka-
ungum, sem þeir hyggjast selja lifandi, en aðrir
leggja mest kapp á að ná i hami fugla.
Mjög oft eru Þjóðverjar að
• verki. Ýmist er, að þeir koma
með bifreiðar sinar eða fá sér
leigubila, sem þeir aka á til
skógar, fjalla eða annarra
þeirra staða, þar sem von er
þeirra fugla, er þeir hafa girnd
á. Þeir hafa lesið vandlega allt,
er þeir hafa náð i, sem þeim má
að gagni koma, og þeir spyrja
þá, er þeir hitta spjörum úr um
fuglalif, varpstöðvar fugla og
hætti. Þeir látast vera áttúru-
unnendur, vegsama fegurð
landanna og yndi hinnar frjálsu
náttúru og þykjast vera komnir
til þess að sjá og skoða og njóta.
hefur fundizt mergð fugla, sem
er i mikilli útrýmingarhættu og
alfriðaðir.
I Skagen, Hjörring, Horsens
og á Skáni eru mál af þessu tagi
fyrir dómstólum, og sakborn-
ingarnir menn.sem gengiðhafa
i þjónustu útlendra safnara.
Tveir þeirra eru sannir að þvi
að hafa skotið nær tvö hundruð
alfriðaða fugla, og gegn um
hendur eins, sem fæst við að
stoppa upp dýr, hafa farið
meira en tólf hundruð friðaðir
fuglar. Meðal þeirra eru ernir,
sem hafa verið seldir
vestur-þýsku fyrirtæki. Annars
Hversu óhultir eru ernirnir okkar fyrir söfnurunum?
Þeir eru allt annað undir niðri
en þeir láta uppi. Þeir eru i' raun
tillitslausir, ágengir og framar
öllur öðru gráðugir i peninga.
Þeir leggjast helst á friðaða
fugla, þá sem fágætastir eru,
þvi að upp úr þeim er mest að
hafa. Þá gildir einu, þótt þeir út-
rýmdu fuglategundum, ef þeir
aðeins fengju nóg i sinn hlut.
Sums staðar reyna þeir jafn-
vel að koma sér upp umboðs-
mönnum, sem kaupa fyrir þá
fáséðra fugla eða hami þeirra
og geyma þá i frysti, unz þeirra
verður vitjað.
Allt byggist þetta á þvi, að
viða um lönd eru menn, sem
safna uppstoppuðum fuglum.
Það er ekki að sökum að spyrja,
þegar menn fara að safna: Þá
verða þeir að fá meira og meira,
og það verður stolt hvers safn-
ara að ná til þess, er torfengið er
og fágætt. Verðið rýkur upp úr
öllu valdi, og mikil freisting að
hafa fágæti á boðstólum.
Stofnuð hafa verið fyrirtæki,
sem kaupa hami, stoppa upp
fugla og selja siðan. Sumir
þeirra, sem á flakki eru á
Norðurlöndum þeirra erinda að
verða sér úti um hami, eiga
sjálfir þess konar fyrirtæki, —
að öðrum kosti eru þeir við-
skiptamenn þeirra eða beinlinis
út á vegum þeirra.
Vafalaust komast margir
þessara náunga klakklaust með
feng sinn til heimalands sins.
En stundum kemst upp um þá. 1
Sviþjóð og Danmörku hafa yfir-
völd fyrir nokkru haft hendur i
hári slíkra óþurftarmanna, er
drepiðhafa eða látið drepa, þús-
undir friðaöra fugla i þvi skyni
að ná i hami. 1 frystigeymslum
voru þetta dúfuhaukar,
músvákar, perluuglur og turn-
fálkar og margt annað fugla-
kyn. A einn sannaðist, að
hann hafði ginnt dúfuhaukana i
fasanabúr og sýðan kyrkt þá.
1 Sviþjóð hefur lögreglan
einnig haft hendur i hári útlend-
inga, sem sjálfir hafa komið til
þess að safna fuglum, og toll-
verðir komið upp þá, er þeir
voru að fara úr landi. I ljós
hefur komið við rannsókn, að
þessir menn höfðu til umráða
blla, sem sérstaklega voru
búnir skápum og geymslum til
þess að varðveita fuglana i
óskemmda.
Þvi er að sjálfsögðu fagnað,
að meira er nú gengið fram i því
en áður að koma upp um menn
af þessu tagi. En þá er þó einn
galli á: Viðurlögin eru hlægi-
lega léttvæg likt-og kom á dag-
inn hér á landi þegar fuglaræn-
ingi var gripinn á flugvelli með
unga i töskum. I Danmörku
liggja einungis litilfjörlegar
sektir við svona athæfi, rétt eins
og hér, auk þess sem svipta má
menn skotleyfi. 1 Sviþjóð má
aftur á móti dæma menn i fang-
elsi fyrir gróf brot, en annað
mál er, hversu stranglega þeim
ákvæðum er beitt.
Að sjálfsögðu væri það ekki
mikið fyrirtæki að breyta
ákvæðum slikra laga og þyngja
viðurlög, áður en meira tjón
hefur hlotizt af verknaði þess-
ara manna en orðið er. En lög-
gjafinn er seinn I svifum og allt
kerfið þungt I vöfum. Menn
fjargviðrast kannski litið eitt
yfir þvi, hvað vel þeir sleppa, er
spilla náttúrufari með þessum
hætti. I
Og við það situr.
MLPLÖTUR
i miklu úrvali
Bjóðum mikið úrval þilplatna í ýmsum viðartegundum og litum, sem gefur óteijandi
möguleika.
Komið og veljið sjálf þá tegund sem ykkur líkar best.
KJæðning sem á eftir að gera vistarveruna hlýlegri og persónulegri.
HUSASMIÐJAN HF.
Súðavogi 3—5,104 Reykjavík, sími: 84599
Traktordrifnar rafstöðvar
Verið viðbúnir rafmagnstruflun-
um og látið þær ekki
trufla mjaltir og önnur bústörf
Rafstöðvar á grind, tengdar við beisli
yfirtengi og drifskaft dráttarvélar á
nokkrum mínútum.
Við500 sn/mín. á drifskafti snýst raf-
allinn 1500 sn/mín. og gef ur út 220 V 50
Rið.
Mælaborð
með tveim tenglum, voltmæli og
útsláttarofa.
Einfasa: 8 stærðir frá 2,8-13,6 kw.
Þrífasa: 8 stærðir frá 4,0-20,0 kw.
Leitið upplýsinga hjá
ÓQ7*CO
5 33 22
BÁTA— OG VÉLAVERZLUN, LVNGÁSI 6, GAROABÆ, fil 5 22 77