Tíminn - 30.11.1980, Side 31
Sunnudagur 30. nóvember 1980.
ii !1 ll!. íl !lH i
39
flokksstarfið
Hádegisfundur SUF verður haldinn miðvikudag-
inn 3. des. kl. 12.00 að Rauðarárstíg 18, (fundar-
herbergi)
Fundarefni: Stjórnmálaviðhorfið
Á fundinn kemur Guðmundur G. Þórarinsson
alþm.
Allir velkomnir.
Jólabasar
! Félags framsóknarkvenna i Reykjavik verður á
j Hótel Heklu 6. des. og hefst kl. 2 e.h. Eins og á
| undanförnum árum verður þarna margt góðra
| muna á góðu verði.
Ullarvörur, rúmfatnaður, jólavörur, kökur,
lukkupakkar og svo laufabrauðið vinsæla.
| Tekið verður á móti munum á fimmtudag til kl.
| 119.00 að Rauðarárstig 18 og kökum á laugardag
frá kl. 9 f.h.
Stjórnin.
Jólabingó F.R.
Hið viöfræga jólabingó F.R. veröurhaldiö i Sigtúnifimmtudaginn 4.
des.
Húsiö veröur opnað kl. 19.30.
Spilaöar veröa 18 umferöir og vinningar hver öðrum glæsilegri.
Framsóknarfélag Reykjavikur
Framsóknarforeldrar
Sölubörn
Börn og unglingar aflið ykkur aukatekna fyrir jólin með þvi að selja
hin vinsælu jóladagatöl sem gilda sem 24 happadrættismiðar.
Upplýsingar hjá FUF Rauðarárstig 18, s. 24480.
Árshátíð SUF frestað
Af óviðráðanlegum orsökum er árshátíð SUF frestað
um óákveðinn tíma.
Aðalfundur Framsóknarfélags Skagafjarðar
Veröur haldinn i Framsóknarhúsinu Sauðárkróki laugardaginn 6.
des. og hefst kl. 2 e.h.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Þingmenn flokksins í kjör-
dæminu mæta á fundinn.
Stjórnin.
Reykjaneskjördæmi
Kjördæmisþing framsóknarmanna i Reykjaneskjördæmi veröur
haldið i Hlégaröi I Mosfellssveit sunnudaginn 30. nóvember og hefst
kl. 10.00 fyrir hádegi.
Dagskrá:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. Avörp og umræður, Steingrimur Hermannsson formaöur Fram-
sóknarflokksins, Jóhann Einvarðsson, alþingismaður og Guöni
Agústsson, formaður SUF.
Stjórn kjördæmissambandsins
Jóladagatöl SUF
Nú eru á leiöinni i pósti jóladagatölin vinsælu sem jafnframt eru
miðar i jólahappdrætti SUF. A meðalfjölda glæsilegra vinninga eru
fjögur 10 gira reiöhjól frá Hjól og Vagnar hf.24 vinningsmöguleikar
eru meðhverju dagatali, þvi dregið er daglega frá 1.-24. des.
Framsóknarfólk.
látiðekkihappúrhendisleppaoggeriðskilfljóttogvel. SUF
*
Arnesingar - Framsóknarvist
3ja kvölda spilakeppni framsóknarfélaganna i
Árnessýslu verður i Árnesi 5. des. Góð verðlaun á
hverjukvöldi. Heildarverðlaun verða írlandsferð
fyrir 2.á vegum Samvinnuferða.
Ávarp flytur Böðvar Bragason sýslumaður
Hvolsvelli.
Framsóknarvist
STILLI
HITAKERFI
•
ALHLIÐA
PÍPULAGNIR
EYJAN
eftir Peter Benchley í þýðingu Jóhönnu
Kristjónsdóttur og Illuga Jökulssonar ,
Bókaútgáfan örn og örlygur
h.f. hefur sent frá sér bókina
Eyjan eftir bandariska rithöf-
undinn Peter Benchley i þýðingu
Jóhönnu Kristjánsdóttur og 111-
uga Jökulssonar. Peter Benchley
er sennilega þekktasti spennu-
sagnahöfundur heims um þessar
mundir, ekki sist vegna þess að
frægar kvikmyndir hafa verið
gerðar eftir sögum hans. Ber þar
fyrst að nefna „Jaws” (ókindin)
og „The Deep” (Djúpið) en báður
þær myndir hafa verið sýndar,
hérlendis. Nú hefur einnig verið
gerð kvikmynd eftir Eyjunni, og
hún sýnd við gifurlega aðsókn
viða um lönd.
Bókin Eyjan fjallar um banda-
riskan blaðamenn Blair
Maynard, sem tekur sér það fyir
hendur að kanna orsakir þess aö
fjölmargir bátar hverfa sporlaust
i Karabiska hafinu. Er magn-
þrunginspenna i bókinni frá upp-
hafi til enda.
Berin á lynginu, Gestir í gamla
trénu og Briggskipið Bláliljan
Setberg hefur gefið út skáldsög-
una „Gleym mér ei” eftir
amerisku skáldkonuna Danielle
Steel, en hún hefur getið sér gott
orð sem höfundur ástarsagna. 1
heimalandi hennar, Bandarikjun-
um, seljast sögur hennar i mikl-
um mæli og hafa bækur hennar
verið þýkkar á mörg tungumál.
1 „Gleym mér ei” litur Diana,
aðalpersóna bókarinnár, um öxl
eftir 18 ára hjónaband. Hana
hafði dreymt um frama á lista-
brautinni. En eftir að hún hitt
Marc hélt hún sig öðlast þá ást og
öryggi sem hún saknaði svo sárt
eftir föðurmissinn — og óskaði
þess eins að ala honum son. En
óvæntir atburðir leiddu til þess að
Diana stóð frammi fyrir örlaga-
riku uppgjöri.
Bókin er 190blaðsiður. Þýðandi
Arngrimur Thorlacius. „Gleum
mér ei” er fyrsta skáldsagan eftir
Danielli Steelsem kemur út á
islensku, og fleiri munu fylgja á
eftir.
Berin á lynginu koma nú út I
annarri útgáfu. Bókin kom út hjá
Bjöllunni 1977, seldist upp og hef-
ur verið ófáanleg um skeið. Vin-
sældir bókarinnar urðu til þess að
hún var endurútgefin og ákveðið
að gefa út Gesti i gamla trénu.
Þessar bækur eru baðar úr
norrænum barnabókaflokki,
Barndomslandet. Fjórir sérfrð-
ingar um lesefni barna hafa valiö
1 hann ljóð, söngur, leiki og ævin-
týri og leitað viða fanga I löndum
heims. Þorsteinn frá Hamri hefur
þýtt báðar bækurnar og aukið við
islensku efni.
Briggskipið Bláliljanfékk verð-
laun Bonniers útgáfufyrirtækis-
ins 1955 sem besta sænska barna-
bókin það ár. Ari slðar hlaut hún
Nilla Hólmgerissonar skjöldinn,
virtustu barnabókarverðlaun
Svia. Þýöandinn, Guðni Kolbeins-
son, las söguna i islenska útvarp-
ið fyrir fáum árum.
Otgáfa Briggskipsins Blálilj-
unnar markar upphafiö að nýjum
bókaflokki, Sagnavali Bjöllunnar.
1 honum verða úrvalsbækur frá
ýmsum löndum, einkum ætlaðar
börnum og unglingum.
t
Eiginkona min og móðir okkar
Laufey Jónsdóttir
Stangarhoiti 12.
Verður jarðsungin frá Háteigskirkju þriðjudaginn 2.
desember kl. 13,30
Jörgen Þorbergsson
Agnar Jörgensson, Svana Jörgensdöttir,
Sigurður Jörgenson, Asa Jörgensdóttir.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
Erlendur Björnsson,
sýslumaður og bæjarfógeti, Seyöisfirði
lést á Landakotsspitala 26. nóvember.
Minningarathöfn fer fram i Fossvogskirkju miðvikudag-
inn 3. desember kl. 10.30.
Útför verður gerð frá Seyðisfjarðarkirkju föstudaginn 5.
desember kl. 14.00.
Katrin Jónsdóttir
Jón Erlendsson, Jóhanna Sigriöur Siguröardóttir,
Kristbjörg Erlendsdóttir,
Björn Erlendsson, Sigriöur Agústa Asgrimsdóttir,
Halldóra Erlendsdóttir, ólafur Viöir Björnsson,
Hákon Erlendsson, Ermenga Stefánia Björnsdóttir
og barnabörn.