Fréttablaðið - 18.06.2007, Page 4
Bankastræti • Fjörður • Kringlan • Laugavegur 178 • Smáralind
IXUS 75
7,1 milljón pixla
3" skjár
Linsa 5.8 - 17.4mm
Myndskeið (video)
Sjálfvirk myndataka
2 eða 10 sek
Sumarstemning
Mynda
vél fyr
ir
ljósm
yndaf
yrirsæ
tur
Fyrsta opinbera
pókermótið sem haldið var á land-
inu var stöðvað af lögreglu í fyrra-
kvöld. Lögregla lagði hald á verð-
launafé og spilavarning og
yfirheyrði forsvarsmann mótsins.
„Lögreglan hafði afskipti af þessu,
stoppaði mótið og lokaði staðnum,“
segir Jón H. Snorrason, aðstoðar-
yfirlögregluþjónn hjá lögreglu höf-
uðborgarsvæðisins. Á milli 20 og
30 þátttakendur voru eftir af þeim
150 sem tóku þátt þegar lögreglan
stöðvaði spilamennskuna.
Vefverslunin Gismo.is stóð fyrir
mótinu. Sindri Lúðvíksson, for-
svarsmaður mótsins, var færður
til skýrslutöku hjá lögreglu og
sleppt að henni lokinni. Að auki
lagði lögregla hald á verðlaunafé á
mótinu, um 600 þúsund krónur, auk
spila og spilapeninga.
Lögreglumenn litu inn á mótið
fyrr um dagin og höfðu tal af
Sindra, en fóru án þess að aðhafast.
Þegar mótið var langt komið kom
lögreglan aftur og stöðvaði mótið.
„Þetta er talið varða við ákvæði
hegningarlaga, sem banna fjár-
hættuspil, að standa að því eða
stofna til fjárhættuspils,“ segir Jón
H. Allt að eins árs fangelsisvist
liggur við því að standa að fjár-
hættuspili, og segir Jón H. að þó
nokkrir hafi verið sakfelldir fyrir
að standa að fjárhættuspili á und-
anförnum árum.
Þáttur þeirra sem tóku þátt í
mótinu er í skoðun. „Það er rök-
studdur grunur um að þarna hafi
átt sér stað refsivert athæfi.“
Sindri Lúðvíksson segir að
afskipti lögreglu hafi komið sér á
óvart, enda hafi forsvarsmenn
mótsins álitið það löglegt þar sem
þeir hafi ekki hagnast á því.
„Þetta er ekkert öðruvísi en
briddsmót sem haldin eru þar sem
fólk fær sín spil á hendi og spilar
úr þeim. Þar er borgað þátttöku-
gjald og félagið tekur hluta af því,
sem við gerðum ekki,“ segir
Sindri. Hann segist vonast til þess
að fá til baka fé og búnað sem lagt
var hald á. Skrifað hafi verið niður
hver staðan hafi verið á mótinu,
og því mögulegt að halda áfram
spilamennsku verði niðurstaða
lögreglumálsins skipuleggjendum
mótsins í hag.
Lögreglan stöðvaði
fyrsta pókermótið
Lögreglumenn stöðvuðu pókermót á föstudagskvöld og lögðu hald á verðlauna-
fé og spilavarning. Rökstuddur grunur var um refsivert athæfi segir aðstoðaryf-
irlögregluþjónn. Ekkert öðruvísi en briddsmót segir skipuleggjandi mótsins.
Söngvarinn Raggi Bjarna var
útnefndur Borgarlistamaður Reykjavíkur 2007
við hátíðlega athöfn í Höfða í gær.
Raggi segist alls ekki hafa átt von á að hljóta
þennan heiður. „Ég var alveg gáttaður á þessu.
Maður tengdi þetta við öðruvísi listamenn
heldur en í þessari léttu músík en það var mjög
ánægjulegt að þau skyldu gera þetta,“ segir
Raggi. Hann telur að verðlaunin hafi mikla
þýðingu, bæði fyrir sjálfan sig og fólkið í land-
inu. „Við höfum bara svo gaman af svona
músík. Við syngjum þessi lög í tjaldinu, í bíln-
um og á pallinum og alls staðar. Þegar okkur
tekst að ná svona til fólksins þá er það alveg
magnað.“
Vilhjálmur Vilhjálmsson borgarstjóri afhenti
Ragga verðlaunin og tók síðan lagið með Ragga
ásamt Páli Óskari Hjálmtýssyni og Milljóna-
mæringunum. Sungu þeir slagarann Vertu ekki
að horfa svona alltaf á mig við góðar undirtekt-
ir. „Það eru ófáir Íslendingar sem hafa náð til
jafnmargra og hann er enn í dag að gera það
með öllum þessum lögum,“ segir Vilhjálmur.
Raggi Bjarna, sem verður 73 ára síðar á
árinu, hefur verið einn vinsælasti dægurlaga-
söngvari þjóðarinnar í rúma hálfa öld. Hann
söng inn á sína fyrstu plötu árið 1954 en fyrir
jól er væntanleg með honum ný jólaplata sem
hann vinnur í samstarfi við Gunnar Þórðar-
son.
Við athöfnina þakkaði Raggi fjölskyldu
sinni og þeim tónlistarmönnum sem hafa
spilað með honum um árin. Söng hann síðan
Vorkvöld í Reykjavík með aðstoð Árna
Scheving og tóku gestirnir í Höfða vel undir
í viðlaginu.
Er alveg gáttaður á upphefðinni
Lögreglan á Akur-
eyri þurfti að kalla út auka
mannskap vegna óspekta sem
fylgdu svonefndum Bíladögum
sem haldnir voru í bænum um
helgina. Voru lögreglumenn kallað-
ir til starfa úr sumarleyfum og
fæðingarorlofi til að halda
mannskapnum í skefjum.
Aðfaranótt sunnudags var þó
rólegri en nóttin á undan. Tíu
manns gistu fangaklefa lögreglu
báðar næturnar, fyrri nóttina voru
flestir færðir þangað vegna
líkamsárása en þá seinni var
ástæðan frekar að fólk fannst
ofurölvi á víðavangi. Sjö menn
voru handteknir vegna líkamsárása
og auk þess þurfti lögregla að hafa
afskipti af mörgum slagsmálum.
Þá voru fjölmargir ökumenn voru
stöðvaðir fyrir að aka of hratt.
Löggur kallað-
ir úr leyfum
vegna óláta
Tveir óbreyttir
borgarar fórust og að minnsta
kosti tólf til viðbótar særðust
þegar sjálfsmorðsárás var gerð á
sænska bílalest NATO í norður-
hluta Afganistans.
Árásin átti sér stað í afgönsku
borginni Mazar-i-Sharif en Svíar
reka bækistöðvar NATO rétt fyrir
utan borgina. Maðurinn sem gerði
árásina hélt lífi og var fluttur á
sjúkrahús. Að sögn sænska
hershöfðingjans Mats Danielsson
særðist enginn hermaður NATO í
árásinni.
Svíar sluppu
með skrekkinn
„Ég hef bara verið á Hótel
Sögu í níu ár og fannst tími til
kominn að ég myndi finna mér
annan
starfsvett-
vang og að
hótelið fengi
annan karl í
brúna,“
segir Hrönn
Greipsdótt-
ir, sem
nýlega sagði
upp starfi sínu sem hótelstjóri á
Hótel Sögu. Mikill styr varð í
kringum hótelið í febrúar vegna
fyrirhugaðrar ráðstefnu klám-
myndaframleiðanda. Bændasam-
tökin, eigendur hótelsins, tóku í
kjölfarið ákvörðun um að meina
hópnum að koma. Hótelið greiddi
svo ráðstefnuhópnum samtals
fimm milljónir í bætur.
Hrönn segir þá uppákomu þó
ekkert hafa með ákvörðun hennar
að gera. „Bændur eru bestu vinnu-
veitendurnir en ég hlakka til að
hefja störf á nýjum vettvangi,“
segir Hrönn sem tekur til starfa
sem framkvæmdastjóri SPRON
Factoring í ágúst.
Klámráðstefnan
ekki ástæðan