Fréttablaðið - 18.06.2007, Blaðsíða 6
Gríptu augnablikið og lifðu núna
Og1
fyrir tilvonandi
fjölskyldur
Viltu geta hringt heim úr GSM símanum þínum í allt að
60 mínútur á dag án þess að greiða mínútugjald? Vertu
með Heimasíma, GSM og Internet fjölskyldunnar í Og1
– og sparaðu bæði tíma og peninga.
Farðu á www.vodafone.is, komdu við í verslun okkar
eða hringdu í 1414 og skráðu þína fjölskyldu í Og1.
Heimasími, GSM, og Internet
– allt á einum stað
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
1
9
8
2
Hátíðahöldin á 17. júní
gengu víðast hvar vel fyrir sig. Í
gær voru sextíu og þrjú ár frá því
að íslenska þjóðin öðlaðist form-
lega sjálfstæði frá Dönum. Veður
var með skaplegasta móti um allt
land, ólíkt fyrsta þjóðhátíðardeg-
inum árið 1944 en þess dags er
ekki aðeins minnst vegna sjálf-
stæðisbaráttunnar heldur einnig
fyrir að vera einn eftirminnileg-
asti rigningardagur þjóðarinnar.
Samkvæmt venju hófust hátíða-
höldin í Reykjavík með því að
blómsveigur var lagður á leiði
Jóns Sigurðssonar, sjálfstæðis-
hetju Íslendinga, en ákveðið var
að þjóðhátíðardagur Íslendinga
yrði haldinn á fæðingardegi
hans.
Þjóðhátíð fagnað í
blíðskapaveðri
Fjölmenni var í miðborg Reykjavíkur og hélt upp á þjóðhátíðardag Íslendinga.
Er rétt að gera ökutæki þeirra
sem aka langt yfir hámarks-
hraða upptæk?
Tókst þú þátt í hátíðahöldum
vegna 17. júní?
Tíu Íslendingar voru
sæmdir riddarakrossi hinnar
íslensku fálkaorðu við hátíðlega
athöfn á Bessastöðum í gær. Á meðal
þeirra sem verðlaunaðir voru var
Guðjón Sigurðsson, formaður MND
samtakanna, fyrir störf að málefn-
um sjúklinga. „Þetta er mikill heiður
fyrir mig að taka á móti þessari við-
urkenningu en ég vil þó meina að þó
að ég geymi krossinn eigi margir
aðrir í honum,“ sagði Guðjón.
Fálkaorðan er að jafnaði veitt
tvisvar á ári, 1. janúar og 17. júní.
Svokölluð orðunefnd fer yfir
umsóknir og metur hverjum
sæmir að verða heiðursins aðnjót-
andi