Fréttablaðið - 18.06.2007, Page 8
Sumartilboð Vildarþjónustunnar
Osló, Stokkhólmur
og Gautaborg
með Iceland Express
aðeins
19.900,-
með sköttum
Tilboðið er bókanlegt frá 15. - 30. júní
og er ferðatímabilið 15. - 15. júlí www.spar.is
Þú getur verið viss um gæðin
Mercedes-Benz ML-Class er jeppi sem slær samkeppnisaðilunum við hvað varðar gæði, glæsileika og öryggi. Í boði eru þrjár bensín-
vélar og þrjár dísilvélar. Sú nýjasta, V8 420 CDI dísilvélin, er sannkallað tækniundur sem skilar 306 hestöflum. Hröðun frá 0 og upp í
100 km er aðeins 6,5 sekúndur og togið er ótrúlegt, 700 Nm. Þrátt fyrir þetta er meðaleyðsla bílsins aðeins 11,1 lítrar á hverja 100 km.
ASKJA er eini viðurkenndi umboðsaðili Mercedes-Benz á Íslandi.
Mercedes-Benz ML-Class 280 CDI, verð: 6.370.000 kr. með Íslandspakka*
Íranar hafa gagnrýnt
bresk stjórnvöld harðlega fyrir að
veita rithöfundinum Salman
Rushdie riddaraorðu. Mohammad
Ali Hosseini, talsmaður íranska
utanríkisráðuneytisins, telur að
orðuveitingin sýni hræðslu Breta
við islömsk trúarbrögð. „Að gefa
einhverjum orðu sem er á meðal
hötuðustu persóna í islömsku
samfélagi sýnir hversu breskir
yfirmenn eru andvígir islam,“
sagði Hosseini. Bætti hann því við
að með því að sýna Rushdie
þennan heiður hefðu Bretar fallið
mjög í áliti hjá islamstrúarmönn-
um. Utanríkisráðuneyti Bretlands
vísar gagnrýninni á bug og segir
Rushdie eiga heiðurinn fyllilega
skilinn.
Skáldsaga Rushdie, Söngvar satans,
olli miklu fjaðrafoki hjá múslimum
víða um heim þegar hún kom út árið
1988. Árið eftir lýsti Ayatollah Khom-
eini, leiðtogi Írans, Rushdie réttdræp-
an fyrir „guðlast“ sitt gagnvart spá-
manninum Múhammeð. Var sú
yfirlýsing dregin til baka tíu árum
síðar af írönskum stjórnvöldum. Sneri
Rushdie þá til baka úr tíu ára útlegð.
Rushdie, sem er 59 ára, hefur gefið
út þrettán skáldsögur sem hafa flest-
ar fengið mjög góða dóma og fjölda
verðlauna. -fb
Rúmlega tvítugur
maður hefur í Héraðsdómi
Suðurlands verið dæmdur í
fjögurra mánaða fangelsi fyrir
margvísleg þjófnaðarbrot.
Í fyrra stal maðurinn opinber-
um stimpli úr afgreiðslu Útlend-
ingastofnunar og veggföstum
seðlaskipti með 103 þúsund
krónum. Þá reyndi hann að nota
stolið greiðslukort til að kaupa
gullúr á rúma milljón króna, en
hvarf frá eftir synjun á kortinu.
Þess í stað keypti hann 70 þúsund
króna úr í annarri verslun og þrjá
radarvara, samtals fyrir hundrað
þúsund krónur. Maðurinn er
margdæmdur.
Stal opinberum
stofnanastimpli
Hver var kjörinn borgarlista-
maður Reykjavíkur?
Hvaða rithöfundur hlaut
bresku riddaraorðuna?
Hver var fjallkonan í Reykja-
vík?
Forseti Palest-
ínu, Mahmoud Abbas, skipaði í
gær nýja palestínska ríkisstjórn
sem Hamas-samtökin eiga ekki
aðild að. Abbas beitti tilskipun til
að ógilda lög sem kveða á um að
þing þurfi að staðfesta skipun rík-
isstjórnar en Hamas-samtökin
hafa meirihluta á þingi.
Þrír dagar eru síðan hann rak
Hamas-leiðtogann Ismail Haniyeh
úr embætti forsætisráðherra eftir
að Hamas lögðu undir sig Gaza-
ströndina. Jafnframt leysti hann
upp þjóðstjórn Hamas og Fatah
sem mynduð var fyrir þremur
mánuðum.
Haniyeh, sem hefur hafnað
þessum tilskipunum forsetans,
lýsti yfir að hin nýja ríkisstjórn
væri ólögleg og að hann væri enn
við völd.
Nýja stjórnin er að mestu skip-
uð óháðum og er leidd af Salam
Fayyad sem nýtur mikillar virð-
ingar. Fayyad lagði í ræðu sinni í
gær áherslu á að nýja stjórnin
væri fulltrúi Palestínumanna á
Vesturbakkanum jafnt og á Gaza.
Palestínumenn gera tilkall til þess
að bæði svæðin tilheyri palest-
ínsku ríki en innbyrðis átök hafa
sett það markmið í hættu.
Bandaríkin, Evrópusambandið
og hófsöm arabaríki hafa lýst yfir
stuðningi sínum við Abbas eftir
atburði síðustu daga. Talið er lík-
legt að stuðningsyfirlýsingunum
muni fylgja efnahagsastoð
erlendra ríkja en hún hefur legið
niðri í fimmtán mánuði, allt frá
því að Hamas-menn komust til
valda í þingkosningunum.
Ísrael og Bandaríkin hafa bæði
lýst yfir að þau hyggist styðja við
Abbas og um leið einangra Hamas
sem þau skilgreina sem hryðju-
verkasamtök. Ísrael og Egypta-
land hafa lokað landamærum
sínum að Gaza og Ísraelar hafa
hætt flutningi á eldsneyti til Gaza
nema til orkuvera. Skortur á
vörum er þegar farinn að gera
vart við sig með hækkun vöru-
verðs.
Tvær stjórnir segjast
við völd í Palestínu
Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, skipaði nýja ríkisstjórn í gær. Hamas-leið-
toginn Ismail Haniyeh segir nýju stjórnina ólöglega og að hann sé enn við völd.