Fréttablaðið - 18.06.2007, Blaðsíða 10
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
„Af þeim upplýsing-
um sem við sjáum frá lögreglunni
eru fleiri dæmi um alvarlegt
ofbeldi gagnvart hommum og
trans-gender fólki en við höfum
séð í langan tíma,“ segir Hrafnkell
Tjörvi Stefánsson, framkvæmda-
stjóri Samtakanna ´78.
Um er að
ræða alvar-
legt ofbeldi
en Hrafn-
kell bendir
á að enn sé
of snemmt
að dæma
um hvort
aukningin sé marktæk þar sem
ofbeldi hafi almennt aukist í sam-
félaginu. Um alvarlegar árásir sé
að ræða á skömmum tíma og því
sé nauðsynlegt að vera á verði.
Eitt alvarlegasta afbrotið átti
sér stað í fyrrasumar. „Þá reyndi
16 ára piltur að myrða 25 ára karl-
mann sem hann hafði kynnst á
spjallrás fyrir homma. Að sögn
piltsins „langaði hann að prófa að
drepa mann“ og hafði hann farið
gagngert inn á spjallrás til að
„veiða homma“ þar sem hann taldi
að þeir væru „auðveld bráð“ segir
Hrafnkell og vitnar til piltsins.
Í nóvember sl. var svo ráðist á
mann við Öskjuhlíð. Hann var á
ferð í bíl sínum þegar fjórir menn
stöðvuðu hann, spurðu hvort hann
væri hommi og réðust svo á hann
og veittu honum alvarlega áverka
í andliti og missti hann fjórar
tennur. Samkvæmt heimildum
Samtakanna ´78 hafa fréttir af
tveimur svipuðum árásum við
Öskjuhlíð borist til félagsins þó
ekki sé vitað hvort þær árásir hafi
verið kærðar til lögreglu.
Á nýársnótt var ráðist á tvo
menn sem voru á leið á dansleik
Samtakanna ´78. Segir Hrafnkell
að svívirðingar hafi verið kallaðar
til þeirra og þeim svo misþyrmt.
„Nýjasta dæmið er frá því í
febrúar en þá reyndi karlmaður
að myrða unga trans-gender
konu,“ segir Hrafnkell. Hann
furðar sig á fjölmiðlaumfjöllun
um málið og þykir sem látið hafi
verið sem um spaugilegt atvik
hefði verið að ræða og þolandi
árásarinnar hafi sumpart verið
gerður ábyrgur fyrir ofbeldinu.
„Slík umfjöllun viðgekkst um
ofbeldi gagnvart hommum hér á
landi fyrir nokkrum áratugum.
Það líðst ekki í dag,“ segir Hrafn-
kell.
„Það er varasamt að draga of
stórar ályktanir en þessi atvik eru
virkilegt áhyggjuefni. Við höfum
orðið vitni að bakslagi í réttinda-
baráttu samkynhneigðra í öðrum
löndum og verðum að vinna að því
að það gerist ekki hér,“ segir
hann.
Ofbeldi gegn
hommum nú
alvarlegra
Alvarlegar árásir á samkynhneigða eru fleiri en
verið hefur í langan tíma. Framkvæmdastjóri Sam-
takanna ´78 segir málið áhyggjuefni.
Vonir
standa til að eftirlits-
menn Alþjóðlegu
kjarnorkustofnunar-
innar heimsæki Norð-
ur-Kóreu fljótlega.
Viðræður á milli
Bandaríkjanna og
Norður-Kóreu hafa
gengið vel að undan-
förnu og hafa Norð-
ur-Kóreumenn nú
boðið eftirlitsmönn-
unum til landsins.
Að sögn Christopher Hill,
fulltrúa Bandaríkjanna í kjarn-
orkumálum, er þó enn mikið verk
fyrir höndum, sérstaklega eftir
að viðræður
strönduðu í
nokkra mánuði
vegna deilna um
frysta peninga-
sjóði Norður-
Kóreu. „Þetta er
skref í rétta átt.
Vonandi verður
þessu fylgt vel
eftir með enn
fleiri skrefum,“
sagði Hill.
Fimm ár eru liðin síðan Norður-
Kórea rak eftirlitsmenn Alþjóð-
legu kjarnorkustofnunarinnar,
sem starfar á vegum Sameinuðu
þjóðanna, úr landinu.
Eftirlit til N-Kóreu
Imperial 31 cl hvítvínsglös
12 stk.
1.757 kr.
Smart og létt á fæti
heilsteypt glös á tilboðsverði
Tilboðið gildir út júní 2007
eða meðan birgðir endast.
R
V
62
36
B
Þórunn Helga Kristjánsdóttir,
sölumaður hjá RV
Rekstrarvörur
1982–200725ára
Imperial 42 cl rauðvínsglös
12 stk.
1.925 kr.
Maldive 36 cl bjórglös
6 stk.
854 kr.
Imperial 19 cl hvítvínsglös
12 stk.
1.341 kr.
Imperial 23 cl hvítvínsglös
12 stk.
1.579 kr.
Á tilboði íjúní 2007 heilsteypt rauðvínsglös,hvítvínsglös, bjórglös,kampavínsglös ogsérríglös