Fréttablaðið - 18.06.2007, Síða 12
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Kristján Jón Guðnason, 64
ára gamall starfsmaður hjá
Íslandspósti, hefur mikinn
áhuga á teiknimyndasög-
um. Hann teiknar sjálfur
og á dögunum gaf hann út
teiknimyndasöguna Edens-
garðurinn.
„Þessi saga hafði blundað í mér í
nokkur ár,“ segir Kristján Jón um
Edensgarðinn. Sagan fjallar um
unga konu sem hefur farið villur
vegar í lífinu og lent á upptöku-
heimili fyrir unglinga. Þegar hún
losnar þaðan hvetur sálfræðingur
hana til að snúa við blaðinu og fer
með kínverskt spakmæli sem
segir að vilji menn verða ham-
ingjusamir út ævina skulu þeir
rækta garð. Stúlkan ákveður að
gera svo, finnur sér reit í einu af
hrörlegri hverfum borgarinnar.
Fljótlega berst henni óvæntur
liðsauki þegar nágrannar hennar,
flestir af erlendu bergi brotnir
bjóðast til að leggja hönd á plóg.
Kristján segir hugmyndina að
sögunni hafa kviknað þegar hann
vann hjá Steinsmiðju S. Helga-
sonar í Kópavogi. „Ég vann þar í
33 ár. Dag einn sagði vinnufélagi
minn þetta spakmæli: „Ef þú vilt
vera hamingjusamur í einn dag
skaltu kaupa vínflösku. Ef þú vilt
vera hamingjusamur í eitt ár
skaltu kvænast. En ef þú vilt vera
hamingjusamur alla ævi, þá
skaltu rækta aldingarð.“ Í fyrra-
vor réðst ég svo í að teikna þessa
sögu og lauk við hana á um tveim-
ur mánuðum.“ Garðræktin er
tákn samvinnu segir Kristján og
um það fjallar sagan. „Grunnhug-
myndin er að vinna saman og
sætta ólíkar þjóðir. Persónurnar
koma frá ólíkum löndum og
öðrum þræði fjallar bókin um
fjölmenningarsamfélagið sem er
að verða til á Íslandi.“
Edensgarðurinn er önnur teikni-
myndasagan sem Kristján gefur
út. Sú fyrri hét Óhugnaleg plá-
neta og kom út árið 1993. Hann
var í Handíðaskólanum frá 1961
til 1964 og lærði líka í Listiðnað-
arskólanum í Ósló. Þótt hann hafi
lengst af unnið í steinsmiðjunni
og nú í seinni tíð hjá Íslandspósti
hefur Kristján ávallt gefið sér
tíma fyrir list sína. „Ég á nokkrar
sögur í sarpinum og er að vinna
að einni núna, sem ég gef kannski
út seinna.“
Kristján gefur bókina út sjálf-
ur. „Það er langbest. Þetta er ekki
það mikið fyrirtæki, kostar á bil-
inu sjötíu til áttatíu þúsund.“
Aðeins voru gefin út sextíu eintök
Edensgarðinum og má nálgast
þau í verslunum Pennans og
Nexus. Sjálfur kveðst Kristján
lesa mikið af teiknimyndasögum.
„Mér finnst þó skemmtilegra að
fletta listaverkabókum en sögum
af ofurhetjum. Mér finnast sög-
urnar um Spiderman til dæmis
ekki góðar en hafði þó gaman af
kvikmyndunum.“
Garður er granna sættir
Málar bæinn bleikan 19. júni
Þriggja vikna hraðlestrarnám-
skeið hófst í Hraðlestrarskólan-
um í síðustu viku og er námskeið-
ið sérstakt fyrir þær sakir að öll
námskeiðsgjöld renna óskipt til
ABC-barnahjálpar. Markmið
söfnunarinnar er að byggja
heimavist fyrir 200 stúlkur í
Úganda.
„ABC-barnahjálp hefur unnið
frábært og gífurlega óeigin-
gjarnt starf undanfarin ár víðs-
vegar um heiminn og erum við
bara þakklát fyrir að fá að taka
þátt í því“, segir Jón Vigfús
Bjarnason skólastjóri Hraðlestr-
arskólans.
Til þess að ná að reisa heima-
vistina í Úganda þurfti að safna einni milljón íslenskra króna og
tókst það með sölu gjafabréfa á námskeiðið.
Express Fer›ir, Grímsbæ, Efstalandi 26, sími 5 900 100 Fer›askrifstofa í eigu Iceland Express
SÉRFERÐIR
Verð á mann í tvíbýli
61.500 kr.
Innifalið:
Nánar á www.expressferdir.is eða í síma 5 900 100
20.–24. júní
Express Ferðir bjóða upp á frábæra ferð til Stokkhólms, vatnaborg-
arinnar fögru, við sólstöður sem er fallegasta tímabil sumarsins.
Ferðalýsing
Dagur 1: Komið til Stokkhólms, rúta á hótelið. Frjáls dagur, góður
tími til að kynnast umhverfinu og kíkja í búðir.
Dagur 2: Taka daginn snemma, bóka sig í siglingu um eyjarnar,
jafnvel út í Drottningarhólm eða kíkja á VASA-safnið, Skansen-
safnið/dýragarðinn, Gamla Stan og upplagt að enda daginn í Grona
Lunds Tivoli.
Dagur 3: Boðið upp á val milli þriggja skoðunarferða, Nóbelsferð-
arinnar, Konungaslóða eða Víkingaslóða. Allar frábærar ferðir.
Dagur 4: Afslöppun, verslunarleiðangrar, e.t.v. heimsókn á
flóamarkaðinn við
Östermalm Saluhall og út
að borða, Stokkhólmur er
frægur fyrir góð veitinga-
hús.
Dagur 5: Veglegur
morgunverður, rúta og
flug heim.
Stokkhólmur
Sólstöðuferð til Feneyja Norðurlanda
Ástir samlyndra hjóna
Drulluprammar á
veiðum