Fréttablaðið - 18.06.2007, Blaðsíða 16
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
Heimstónlistarhljómsveit-
in Andromeda4 frá Boston
verður á Þjóðlagahátíðinni
sem haldin er á Siglufirði
4. til 8. júlí. Sveitin held-
ur tónleika og kennir auk
þess tveggja daga námskeið
í klezmertónlist eða gyð-
ingatónlist en jiddíska orðið
klezmer er notað yfir dans-
tónlist gyðinga.
Áhersla verður lögð á að
fólk geti spilað tónlistina
eftir eyranu. Læri hvern-
ig laglínur eru stíliseraðar
með skreytingum, litbrigð-
um í nótum, og „krekths“
sem þýðir kjökur eða grát-
ur.
Öll hljóðfæri koma til
greina á þessu námskeiði
þó aðallaglínuhljóðfærin í
klezmertónlist séu klarinett
og fiðla.
Námskeiðinu lýkur með
stuttum tónleikum á hátíð-
inni. Nánari upplýsingar um
Þjóðlagahátíðina á Siglu-
firði og námskeiðin á henni
má finna á siglo.is/festival.
Klezmernám-
skeið á Siglufirði
Sumarsólstöður eru fimmtu-
daginn næstkomandi 21.
júní. Þá mega allir sem vilja
og geta taka þátt í rólegri
sólstöðugöngu um Öskjuhlíð
í Reykjavík en gangan er
orðin árlegur viðburður.
Á sumarsólstöðum er
lengsti dagur ársins og
stysta nóttin. Um hádegis-
bil verður sól hæst á lofti
árið 2007. Síðan tekur dag að
stytta á ný og hádegissól að
lækka smám saman.
Árleg sólstöðuhátíð seinni
tíma hér á landi hófst með
sólstöðugöngu frá Þingvöll-
um til Reykjavíkur 21. júní
1985. Síðan voru gengnar ár
hvert ýmsar leiðir í nágrenni
höfuðstaðarins á sumar-
sólstöðum og einnig hefur
vetrarsólstöðum verið fagn-
að með ýmsum hætti. Und-
anfarin ár hefur verið látið
nægja að ganga stóran hring
um Öskjuhlíð.
Þeir sem ætla sér í göng-
una skulu mæta klukkan átta
um kvöldið norðan við Perl-
una en gangan tekur rúm-
lega tvo tíma og endar sunn-
an við Perluna.
Sólstöðuganga
um Öskjuhlíð
Fyrr í þessum mánuði útskrifuðust
52 nemendur með MBA-viðskipta-
fræðipróf, frá Háskólanum í Reykja-
vík. Þetta er í sjötta sinn sem MBA-
nemar eru brautskráðir frá Háskólan-
um í Reykjavík og voru rúmlega 300
aðstandendur útskriftarnemanna við-
staddir hátíðlega athöfn.
Hátíðarræðumaður var Hannes
Smárason, forstjóri FL Group.
Í erindi sínu lagði Hannes áherslu
á að atvinnulíf hérlendis og fyrirtæki
eins og FL Group, ættu mikið undir því
að íslenskir háskólar efldu tengsl við
erlenda háskóla og atvinnulíf. Þannig
yrði best tryggt að sú þekking sem
nemendur afla sér í námi yrði atvinnu-
lífi til hagsbóta. Sem dæmi um slíkt
samstarf nefndi hann nýlegan sam-
starfssamning Háskólans í Reykja-
vík við Massachusetts Institute of
Technology og á sviði orkurannsókna
og verkfræðimenntunar og þá áherslu
í MBA-náminu við skólann að fá til lið-
sinnis erlenda prófessora frá fremstu
háskólum utan Íslands.
Háskólinn í Reykjavík hefur lýst
því yfir að þar leggi fólk metnað sinn
í að bjóða upp á alþjóðlegt MBA-nám
sem jafnast á við það sem best gerist
í heiminum. Námið er markvisst borið
saman við fremstu háskóla í Evrópu
og Norður-Ameríku og áhersla lögð á
nútímalegar og skilvirkar kennsluað-
ferðir sem skila nemendum hagnýtri
þekkingu og færni. Þar fer öll kennsla
fram á ensku og rúmlega 2/3 kennara
koma frá erlendum skólum á borð við
IESE Viðskiptaháskólann í Barcelona,
London Business School, Insead og
Boston University.
Nemendurnir sem útskrifuðust
núna með MBA-viðskiptafræðipróf,
eru þar með orðnir meðlimir í félags-
skap um 250 fyrrverandi MBA-nema
frá Háskólanum í Reykjavík sem kall-
ast RUMBA. Þessi viðbót við RUMBA
gerir félagsskapinn enn öflugri, en
nemar frá Háskólanum láta nú verkin
tala í öllum geirum atvinnulífsins.
Næsta haust hefst áttunda starfsár
MBA-námsins við Háskólann í Reykja-
vík með inntöku nýs hóps nemenda.
Aðsókn í námið hefur aukist mjög síð-
ustu ár og aldrei verið meiri, en vel á
annað hundrað umsóknir bárust fyrir
lok umsóknarfrests sem þýðir að tveir
til þrír eru um hvert sæti.
„Aðeins mæður hafa vit á
framtíðinni –vegna þess að
þær fæða hana af sér með
börnum sínum.“
Unabomber ákærður
Móðir okkar, amma og langamma,
Vigdís Bjarnadóttir
Jörfabakka 6 Rvk.
verður jarðsungin frá Langholtskirkju þriðjudaginn
19. júní kl. 13:00
Þorgeir Ingvarsson Guðrún Þorgeirsdóttir
Margrét Ingvadóttir Kristinn Guðmundsson
börn og barnabörn
Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengda-
móðir, amma, dóttir, systir og frænka,
Jónfríður Valdís
Bjarnadóttir
Mosabarði 15, Hafnarfirði,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 12. júní sl.
Útför verður frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 22.
júní kl. 15.00.
Kristófer Bjarnason
Róbert Örn Kristjánsson
Elsa Esther Kristófersdóttir Bárður Þór Sveinsson
Alexandra Ýr
Bjarni S. Kristófersson Gunnþóra Rut Bragadóttir
og aðstandendur.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Steingrímur Helgi Atlason
fyrrv. yfirlögregluþjónn, Hjallabraut 43
Hf.
sem lést 6.júní sl. verður jarðsunginn frá Víðistaða-
kirkju miðvikudaginn 20 júní kl 13.00. Blóm og krans-
ar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hins látna er
bent á Blindrafélag Íslands og Félag krabbameinssjúkra
barna.
Einar Steingrímsson Steinunn Halldórsdóttir
Atli Steingrímsson Erla Ásdís Kristinnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Kristján Pétursson
húsasmíðameistari og formaður Félags nýrnasjúkra,
Dverghömrum 18, Reykjavík, andaðist þann 30. maí.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudag-
inn 19. júní kl. 11:00. Þeim sem vildu minnast hans er
bent á Félag nýrnasjúkra, s. 568-1865 (Salóme).
Auður Thorarensen
Sólrún Lísa Kristjánsdóttir Olaf Möller
Garðar Kristjánsson Kristín Snore
Magnús Arnar Sveinbjörnsson Jófríður Ósk Hilmarsdóttir
Axel Örn Kristjánsson
Kristján Örn Kristjánsson Steinunn Ýr Hjaltadóttir
og barnabörn.
Fallegir legsteinar
á góðu verði