Fréttablaðið - 18.06.2007, Blaðsíða 17
Nýr Laser Tag-salur verður opnaður um næstu
mánaðamót.
„Þetta er skotleikur sem fer fram inni í völundarhúsi
og gengur út á að hæfa andstæðinginn með ljósgeisla-
byssu. Honum svipar til leikja eins og litabolta og M-
16, fyrir utan að vera innan dyra. Auk þess sem maður
fær ekkert í sig, nema ljósgeisla og þá í sérstakt vesti,“
segir knattspyrnuþjálfarinn Elísabet Gunnarsdóttir,
sem hefur ásamt eiginmanni sínum Gylfa Sigurðssyni,
endurvakið Laser Tag á Íslandi eftir fjögurra ára hlé.
Að sögn Elísabetar verður tekið á móti einstakling-
um jafnt sem hópum, sem hægt verður að sækja með
rútum í eigu fyrirtækisins. Gildir þá einu hvort um
óvissuferðir, hópefli, gæsun eða steggjun er að ræða.
„Síðast en ekki síst er vel tekið á móti börnum, enda er
þetta ekki hættulegur leikur þótt leikfangabyssur
komi við sögu. Hér verður meira að segja hægt að slá
upp afmælisveislum, þar sem þar til gerð herbergi
verða í boði,“ segir Elísbet hress í bragði.
Leikurinn fer fram í 400 fermetra rými, sem er þar
með hið stærsta fyrir Laser Tag á Norðurlöndunum og
eitt hið stærsta í Evrópu, þar sem Laser Tag nýtur
mikilla vinsælda. „Til marks um það eru starfsræktir
sérstakir Laser Tag-klúbbar um víða veröld og sérstök
mót haldin, þar sem bestu leikmenn frá hverju landi
etja kappi,“ segir Elísabet og útilokar ekki að efnt
verði til slíkrar keppni hérlendis í náinni framtíð.
Auk Laser Tag-salarins verður húsnæðið, sem er
800 fermetra stórt, útbúið billjarðstofu þar sem menn
geta spilað og horft á fótboltaútsendingar í beinni.
„Síðan er ætlunin að koma upp líkamsræktaraðstöðu,
þar sem stílað verður inn á einkaþjálfun. Að ógleymdu
draugahúsi, sem verður opnað í haust. Annars vil ég
sem minnst segja að sinni,“ bætir Elísabet við, leynd-
ardómsfull í bragði.
Laser Tag endurvakið
VEXTIR FRÁ
AÐEINS
Miðað við myntkörfu 4,
Libor-vextir 23.4.2007.
3,4%
Þannig er mál
með vexti ...
... að það er hægt að létta greiðslubyrðina.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
SAMANBURÐUR Á LÁNUM
MYNTKÖRFULÁN *** BLANDAÐ LÁN ** ÍBÚÐARLÁN
LÁNSUPPHÆÐ 20.000.000 20.000.000 20.000.000
VEXTIR 4,0% * 4,4% * 5,0%
GREIÐSLUBYRÐI**** 66.500 100.800 96.600
* M.v. 1. mánaða Libor vexti 23.04.2007. ** 50% íbúðarlán/50% erlent lán í CHF og JPY.
*** Vextir á erlendri myntkörfu ráðast af veðsetningu og myntsamsetningu og eru á bilinu 3,4% til 4,5% m.v. myntkörfu 4.
**** Mánaðarlegar afborganir fyrsta árið, lánstími 40 ár, einungis greiddir vextir af myntkörfuláninu fyrstu þrjú árin, án verðbóta eða gengisbreytinga.
Reiknaðu út hvernig
greiðslubyrði þín lækkar á
www.frjalsi.is eða hafðu
samband í síma 540 5000.