Fréttablaðið - 18.06.2007, Side 18
Nýr japanskur tölvuleikur frá
Nintendo á að laða að nýjan
hóp notenda.
Nintendo-leikja-
tölvan mun brátt
þjóna fleirum en
bólugröfnum ungl-
ingum. Reyndar
gætu þeir lært eitt
og annað um húð-
umhirðu af
nýjum tölvuleik
sem nefnist
„Dream Skin-
care.“ Leikur-
inn er ein af
mörgum tilraunum forsvars-
manna Nintendo Co. til að laða að
nýja notendur fyrir Nintendo DS-
leikjatölvuna.
Konur eru meðal þeirra sem
horft er til. Notendur tölvunnar
geta skráð hitastig líkamans og
þyngd daglega í tölvuna þannig að
úr verði graf. Þetta „fegurðarfor-
rit“ spyr spurninga um húðgerð
og mýkt, svo og
hve húðin verði
fyrir miklu áreiti
af sólinni og hve
mikinn svefn
notandinn fái.
Þá koma upp
á skjáinn ýmis
þjóðráð varð-
andi húðum-
hirðu. Til
dæmis:
„Drekktu
meira vatn“ eða „borðaðu epli og
engifer“.
Hvort leikurinn verði vinsæll er
erfitt að spá um en sala á honum
hefst í Japan í október.
Nintendo fræðir
um húðina
Nú er komin lausn fyrir þá sem
eru með lélega blöðru.
Sérfræðingar í San
Francisco hafa hannað
vefsíðu, MizPee.com,
sem geymir upplýsingar
um helstu almennings-
salerni í borginni. Þannig
að þegar manni er mál, er
nóg að fara inn á síðuna í
gegnum farsímann, slá inn
götuheiti og finna hvar sal-
erni er í nágrenninu.
MizPee sýnir hversu langt
er til salernanna og hversu
snyrtileg þau eru, sem bygg-
ist á stjörnu- eða réttara
sagt klósettrúllugjöf fyrri
notenda. Fimm klósettrúll-
ur merkir þá að klósettið sé
tandurhreint, en ein þýðir
hins vegar að maður eigi eftir
fremsta megni að varast það. Þá
sést hvort aðstaða er fyrir fatl-
aða eða til bleiuskipta á sal-
erninu og hvenær það er haft
opið.
Sem stendur býðst aðeins
farsímanotendum í San
Francisco þessi einstaka
þjónusta og hefur hún vakið
lukku, ekki síst hjá þeim sem
eru með lélega blöðru. Þó er
reiknað með að hún eigi eftir að
breiðast út um gervöll Banda-
ríkin og heiminn allan er fram
líða stundir.
Leiðarvísir að lettinu
Sony hefur sett á
markaðinn nýja síma.
Hægt er að fá síma sem
geymt getur 8.000 lög,
einn með 5,0 megapixla
myndavél og annan með
GPS-tæki.
Starfsmenn Sony-fyrir-
tækisins eru varla búnir að
raða síðustu símagerðun-
um í hillurnar þegar nýjar
gerðir eru komnar úr fram-
leiðslu. Eins og alltaf lofar
fyrirtækið betri símum,
fleiri notkunarmöguleik-
um, meira geymsluplássi
og betri myndavélum.
Fremstur í flokki nýju
símanna er Sony Ericsson
W910i Walkman. Hann
getur geymt 8.000 lög og
hægt er að stjórna honum
með „shake controle“. Það
þýðir að mögulegt er að
hrista símann í vissa átt ef
spóla á áfram, í aðra ef
spóla á aftur á bak og svo
framvegis.
Ef 8.000 lög eru ekki nóg
fyrir tónlistarþyrsta símanotend-
ur er alltaf hægt að fá W960i sem
geymt getur 9.000 lög.
Fyrir ljósmyndarana hefur Sony
sett K850i á markað en hann er
búinn 5,0 megapixla myndavél.
Annar sími sem fylgir línunni er
K530i en hann er meðal annars
búinn GPS-staðsetningarkerfi sem
ætti að koma sér vel þegar maður
er gjörsamlega búinn að tapa
áttum á djamminu.
Enn koma nýir símar frá SonySTIGAR
Allar mögulegar gerðir
Handrið og handriðaefni
Sjá heimasíðu okkar
www.byggingavorur.com
Mex - byggingavörur
Lynghálsi 3 Sími 567 1300 & 848 3215
FYRSTUR
MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A