Fréttablaðið - 18.06.2007, Qupperneq 31
Leikarinn Matthew McConaughey
hefur verið kjörinn piparsveinn
ársins af tímaritinu People. Bar
hann sigurorð af kunnum köppum
á borð við leikarana Zach Braff og
Jake Gyllenhaal, söngvarann Just-
in Timberlake og prinsana Vil-
hjálm og Harry.
McConaughey, sem er 37 ára,
hefur oft verið myndaður ber að
ofan á ströndinni. „Hvar er betri
staður til þess að njóta veðursins
en á ströndinni þar sem fáir eru í
skyrtum,“ sagði hann. „Ég stunda
litla skipulagða líkamsrækt. Ég
lifi bara lífinu og reyni að svitna
á hverjum degi.“ Taylor Hicks,
fyrrverandi sigurvegari í Ameri-
can Idol, var heitasti piparsveinn-
inn á síðasta ári.
Matthew sá
heitasti
SOCOM 3: U.S. Navy SEALs er
þriðji leikurinn í SOCOM-leikja-
röðinni, sem er ágætlega þekkt
hér á landi. Leikirnir eru fyrstu
persónu skotleikir þar sem spil-
arinn er hermaður í SEAL-deild
bandaríska sjóhersins, en þar eru
allir þrautþjálfaðar hetjur.
Eins og áður stjórnar spilarinn
fjögurra manna herliði sem sinnir
verkefnum víða um heim. Einspil-
unarhluti leiksins spannar fjölda
borða í þremur heimsálfum;
Afríku, Asíu og Evrópu. Verkefnin
eru allt frá því að bjarga gíslum,
taka óvini til fanga, beina loftárás
á ákveðin skotmörk eða hreinlega
drepa allt sem fyrir verður.
Einspilunarhlutinn er þó aðeins
helmingurinn af fjörinu, því leik-
urinn býður upp á allt að þrjátíu
og tveggja manna fjölspilun á net-
inu. Hvort það er kostur eða galli
fer allt eftir því hvort viðkomandi
er með nettengda PlayStation 2
tölvu, sem er ekki mjög algengt
hér á landi.
Almennt er leikurinn alveg
ágætur. Grafíkinni er ekki hægt að
kvarta yfir á PlayStation 2, einspil-
unarhlutinn er nokkuð skemmti-
legur með stórum og góðum borð-
um, og vopnabúrið er fullt af raun-
verulegum útgáfum af byssum og
öðrum skotvopnum.
Bardagarnir eru tiltölulega
raunverulegir þótt gervigreind
óvinanna sé stundum af skorn-
um skammti. Farartæki, sem
voru ekki hluti af fyrri leikjunum,
breyta spiluninni einnig til hins
betra.
Í raun er stærsti gallinn ekki
eitthvað sem vantar í leikinn held-
ur eitthvað sem gæti vantað í tölvu
spilarans. Ef hann er ekki með
nettengda PlayStation 2 tölvu fær
hann aðeins hálfan leik, og missir
af betri helmingnum. Án fjölspil-
unarmöguleikans er leikurinn að-
eins sæmilega skemmtilegur skot-
leikur.
Sért þú einn af fáum og hefur
nettengda PlayStation 2 tölvu er
óhætt að mæla með þessum leik.
Aðrir ættu að hugsa sig vel um,
nema þeir hafi þeim mun meiri
áhuga á fyrstu persónu skotleikj-
um.
Selir munu berjast
SNÆFELLSJÖKULL
DRANGAJÖKULL
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
VESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
Njóttu dagsins
- taktu flugið
Aðeins fimm skref á Netinu og þú ferð á loft
Það getur ekki verið auðveldara.
Þú bókar flugið á flugfelag.is þar sem
þú finnur ódýrustu fargjöldin og að
auki frábær tilboð.
Njóttu dagins, taktu flugið
og smelltu þér á flugfelag.is
flugfelag.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/F
L
U
3
77
33
0
5/
07
Bítillinn Paul McCartney er ekki
hrifinn af MP3-tæknivæðingunni
sem á sér stað víðast hvar í heim-
inum í dag og þá sérstaklega vegna
þess að heyrnartól, sem nauðsyn-
leg eru til að geta notað iPod og
aðra sambærilega tónlistarspilara,
séu hinn mesti skaðræðisvaldur.
„Heyrnartól minna mig á vinn-
una, líklega öfugt við flesta aðra,“
segir tónlistarmaðurinn, sem eytt
hefur stórum hluta ævinnar í upp-
tökuveri þar sem heyrnartól eru
vissulega mikið notuð. „Staðreynd-
in er sú að með því að nota heyrn-
artól nærðu að einangra þig frá
umhverfinu. Það er fínt á meðan
þú ert að taka upp plötu en mér
finnst það algjör synd að sjá fólk
með heyrnartólin þegar það geng-
ur úti á götu. Þá missa þau af um-
hverfishljóðunum, fuglasöngnum
og öllu hinu sem er svo dásamlegt
í lífinu.“
Bítill á móti
heyrnartólum