Fréttablaðið - 22.06.2007, Side 4
Taktu þátt og safnaðu
stimplum hjá Olís.
Glæsilegir vinningar í boði!
Við höldum með þér!
Stjórnvöld í Ástralíu
kynntu í gær áætlun um að banna
áfengi og klám á svæðum frum-
byggja í norðurhluta Ástralíu til
þess að sporna við misnotkun á
börnum sem er útbreidd meðal
frumbyggja samkvæmt opin-
berri skýrslu sem kynnt var í síð-
ustu viku.
Forsætisráðherra Ástralíu,
John Howard, boðaði hertari
reglur um velferðarbætur til
frumbyggja til þess að taka á því
sem hann sagði „neyðarástand í
landinu“. „Við erum að fást við
hóp ungra Ástrala sem hafa
aldrei kynnst hugtakinu sakleysi
æskunnar.“
Samfélagsinnviðir frumbyggja
eru að gliðna í sundur vegna
ofdrykkju, atvinnuleysis, fátækt-
ar og fleiri þátta samkvæmt
skýrslunni. Ofdrykkja er sögð
meginorsök fyrir vanrækslu
barna sem skapi tækifæri fyrir
barnaníðinga. Verði áætlunin
samþykkt verður sala, eign og
flutningur áfengis bannaður í sex
mánuði.
Gróft klám, sem mikið fram-
boð er af meðal frumbyggja sam-
kvæmt skýrslunni, verður einnig
bannað. Fram kemur að börn,
sem hafi greiðan aðgang að grófu
klámi, séu mörg með brenglaða
mynd af kynlífi vegna þess.
Nokkrir leiðtogar frumbyggja
fordæmdu þegar áætlunina og
sögðu hana forsjárhyggju stjórn-
valda sem hefðu skert réttindi
þeirra og skapað hin félagslegu
vandamál sem plaga samfélag
frumbyggja. Þeir gagnrýndu
einnig að ekkert samráð hafi
verið haft við þá og mótmæltu
fyrirhuguðum hömlum á hvernig
frumbyggjar verji velferðarbót-
um.
Aðrir fögnuðu nýju reglunum
sem kveða á um að á sumum
svæðum þurfi frumbyggjar að
verja að minnsta kosti helmingi
bótanna í mat og aðrar nauðsynj-
ar. Er þessu ætlað að draga úr
eyðslu fólks í áfengi og fjár-
hættuspil. Velferðarbætur yrðu
einnig tengdar skólagöngu
barna.
Sumir vara þó við því að svona
aðgerðir, sem eiga bara við frum-
byggja, gætu brotið jafnréttis-
lög.
Áfengis- og klámbann
á meðal frumbyggja
Misnotkun á börnum er útbreidd meðal frumbyggja Ástralíu samkvæmt nýrri
skýrslu. Stjórnvöld vilja banna áfengi og klám á svæðum frumbyggja til þess að
taka á vandanum. „Neyðarástand,“ segir John Howard, forsætisráðherra Ástralíu.
Grenilús hefur leik-
ið tré á höfuðborgarsvæðinu grátt
og víða má sjá tré sem virðast með
litlu lífsmarki. Þórarinn Benedikz,
skógfræðingur á Mógilsá, segir að
ástandið sé óvenju slæmt en trén
muni jafna sig.
„Ef það er komið nýtt brum á
trén þá bendir það til þess að þau
muni ná sér á strik. Trén geta
drepist vegna lúsaskemmda en
það er fátítt,“ segir Þórarinn og
bætir því við að það taki trén lang-
an tíma að ná sér að fullu.
„Það getur tekið nokkur ár. Við
höfum fylgst með trjám eftir lús-
afaraldur austur á Héraði og í
Breiðdal og það hefur tekið þau á
bilinu fimm til tíu ár að ná þeim
trjám sem ekki fengu lús. Þetta er
svo mikið nálatap og tré sem fá lús
missa mikla vaxtaorku.“
Grenilúsin hefur mest herjað á
sitkagreni en aðrar amerískar teg-
undir eins og hvítgreni og blá-
greni hafa einnig farið illa. Þórar-
inn segir að lúsin fari á kreik á
haustin og skemmdirnar séu frá
því síðastliðið haust.
„Nálarnar drepast yfir veturinn
og falla svo á vorin. Lúsin drepst
yfirleitt á veturna en ef veturinn
er mildur nær hún að halda ung-
viðinu á lífi og heldur áfram að
dreifa sér,“ segir Þórarinn.
Fimmtán ára drengur
gerði keisaraskurð á barnshaf-
andi konu undir eftirliti foreldra
sinna, sem bæði eru læknar, í
tilraun til að komast í heimsmeta-
bók Guinnes. Aðgerðin var tekin
upp á myndband. Faðirinn sýndi
starfssystkinum sínum í ind-
versku læknasamtökunum
myndbandið og var í kjölfarið
tilkynnt að athæfið væri ólöglegt
og siðlaust.
Faðirinn, sem gæti verið
ákærður auk þess að missa
læknisréttindi sín, sýnir enga
iðrun og sakar hina læknana um
afbrýðisemi. Hann segist hafa
þjálfað son sinn í þrjú ár.
Gerði keisara-
skurð 15 ára
Þorri foreldra leikskóla-
barna í Reykjavík, eða 93 prósent
þeirra, er mjög eða frekar ánægður
með þjónustu leikskólanna og 97
prósent telja sýnt að barninu þeirra
líði þar vel. Þetta kemur fram í
nýrri könnun meðal foreldra sem
gerð var á vegum leikskólasviðs og
kynnt í leikskólaráði 20. júní.
Þá kom fram í könnuninni að níu
af hverjum tíu foreldrum sem eiga
barn sem fær sérþjónustu í
leikskóla, svo sem vegna fötlunar,
tungumáls eða þroskafrávika, eru
ánægðir með þá þjónustu.
Alls tók 3.141 foreldri þátt í könn-
uninni sem er um 64 prósent allra
foreldra leikskólabarna í borginni.
Flestir foreldrar
eru ánægðir
Íslandspóstur
hefur ráðist í átak til að vekja
almenning, húsbyggjendur og
verktaka til umhugsunar um
byggingareglugerð, er varðar
póstlúgur og póstkassasamstæð-
ur. Markmiðið er að bæta
starfsumhverfi bréfbera.
Þau vandamál sem bréfberar
þurfa einna helst að glíma við eru
ómerktar bréfalúgur, lúgur eða
póstkassar sem eru of litlir og
lúgur sem eru of neðarlega á
útidyrahurðum. Þá vill einnig
brenna við að ekki séu póstkassa-
samstæður í fjölbýlishúsum.
Starfsumhverfi
bréfbera bætt