Fréttablaðið - 22.06.2007, Blaðsíða 64
Þessa dagana standa yfir hljóðrit-
anir á þremur verkum eftir Jón
Nordal á vegum Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands og Ríkisútvarps-
ins. Stjórnandi er Petri Sakari sem
kemur sérstaklega til landsins af
þessu tilefni en þessi fornvin-
ur hljómsveitarinnar hefur stýrt
fjölmörgum tónsmíðum Jóns um
árabil, bæði með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands og öðrum sveitum
víðar um heiminn, og hefur því
staðgóða þekkingu á verkefninu.
Rás 1 átti frumkvæði að þessu
áhlaupaverki en það eru Konsert
fyrir hljómsveit frá 1949, Canto
elegiaco frá 1971 fyrir selló og
hljómsveit og Epitafion fyrir
strengi, tréblásara og slagverk frá
1974 sem verða hljóðrituð.
Næsta starfsár stendur til að
hljóðrita einnig Brotaspil (1962)
og Concerto lyrico (1975) fyrir
hörpu og strengi.
Þessi hljómsveitarverk eru
ýmist til í áratuga gömlum upp-
tökum hljómsveitarinnar eða
þau hafa ekki verið hljóðrituð af
hljómsveitinni. Því var ákveðið að
ráðast í þetta brýna verkefni.
Með því er einnig vonast til að
bregða upp enn gleggri mynd af
tónsmíðaferli Jóns en verkin eru
mörg samin tiltölulega snemma á
ferli tónskáldsins. Það elsta, Kons-
ert fyrir hljómsveit, samdi Jón ein-
ungis 23 ára gamall um það leyti
sem hann útskrifaðist frá Tónlist-
arskólanum í Reykjavík. Jón Nor-
dal hefur verið viðstaddur upptök-
urnar sem lýkur í dag.
Einleikari í Canto elegiaco er
Bryndís Halla Gylfadóttir. Bjarni
Rúnar Bjarnason tónmeistari og
Ólafur Thoroddsen tæknimaður
sjá um hljóðritanir á vegum Rásar
1. Að sögn Bjarna Rúnars hefur
vinnan við þessi verk verið afar
ánægjuleg. „Þetta er kvalitets-
tónlist og gerist ekki betri hér. Jón
er slíkur öðlingur að starfa með.“
Bjarni hefur verið starfandi
við hljóðritanir á vegum Ríkis-
útvarpsins í nær aldarfjórðung.
Hann segir starf tónmeistara
vera að tengja saman hina tækni-
legu hlið og listamennina, hljóð-
færaleikara, hljómsveitarstjóra
og tónskáldið ef það er á staðnum.
Hann segir menn nota frá tveimur
upp í fjörutíu hljóðnema eftir að-
stæðum en þeir hjá RUV hljóðriti
beint í steríó. Þannig vinni þeir
bæði fyrir útsendingar á Rás 1 og
einnig erlend fyrirtæki, Naxos og
Chandos.
Jón Nordal er fæddur 1926 í
Reykjavík. Hann stundaði píanó-
nám hjá Árna Kristjánssyni og
tónsmíðanám hjá Viktori Urbanc-
ic og Jóni Þórarinssyni við Tónlist-
arskólann í Reykjavík en þaðan
útskrifaðist hann 1949 og fór þá
til Zürich í Sviss í framhaldsnám.
Heimkominn gerðist hann mikil-
virkur píanóleikari, tónskáld og
kennari en Jón gegndi stöðu skóla-
stjóra Tónlistarskólans í Reykja-
vík um árabil. Hann hefur auk
þess starfað ötullega að félags-
málum tónskálda hér á landi.
Jón hefur samið fyrir ýmsar
hljóðfærasamsetningar, hljóm-
sveitir, kammerhópa, einleiks-
hljóðfæri og kóra en langflest
verka hans frá liðnum árum eru
fyrir kóra. Nýjasta verk hans
var einmitt frumflutt af Hamra-
hlíðarkórnum við setningu Lista-
hátíðar í Reykjavík í maí síðast-
liðnum. Fáum blandast þó hugur
um að framlag Jóns til íslenskrar
hljómsveitartónlistar er einstakt
enda lagði hann sig sérstaklega
eftir því framan af ferli sínum
að auðga íslenskar hljómsveitar-
bókmenntir. Sinfóníuhljómsveit
Íslands fagnaði áttræðisafmæli
Jóns í fyrra með glæsilegum tón-
leikum þar sem Ásdís Valdimars-
dóttir, Einar Jóhannesson, Erling
Blöndal Bengtsson, Guðný Guð-
mundsdóttir og Víkingur Heið-
ar Ólafsson fluttu fjóra konserta
Jóns ásamt hljómsveitinni.
Hljóðrituð verk
eftir Jón Nordal
19 20 21 22 23 24 25Ljósmyndasýningu Katrínar El-
varsdóttur í Listasafni ASÍ við
Freyjugötu lýkur um helgina.
Sýningin ber yfirskriftina „Af
þessum heimi“.
Katrín útskrifaðist frá Art Ins-
titute of Boston árið 1993 og hefur
tekið þátt í fjölda einka- og sam-
sýninga á Íslandi, Bandaríkjunum
og Evrópu, en hún býr og starfar í
Reykjavík.
Af þessum heimi
Sýningar haustsins komnar í sölu á netinu!
Miðasala á netinu!
www.leikhusid.is
„ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“
GRETTIR
Miðasala 568 8000
www.borgarleikhús.is
grettir.blog. is